Fréttablaðið - 25.10.2014, Qupperneq 22
25. október 2014 LAUGARDAGUR
| HELGIN | 22
Verk Brians, Meadow, er fyrsta dansverkið sem hann semur einn síns liðs fyrir Íslenska dans-flokkinn og verður það frumsýnt í kvöld á sýn-
ingunni Emotional.
Gleðin var helsti innblástur Bri-
ans. „Þegar ég samdi verkið var
ég á þeim stað í lífi mínu að ég
þurfti virkilega á því að halda að
muna eftir gleðinni, skynjun lík-
ama míns, svita og svo framveg-
is. Ég hafði upplifað erfiðan tíma
og mér fannst ég þurfa að vera
meðvitaður um að muna eftir því
góða og fallega í lífi mínu,“ segir
Brian, sem flutti til Íslands fyrir
sjö árum.
Þegar hann fór í heimsókn til
foreldra sinna á æskuslóðirnar í
Montana í Bandaríkjunum fékk
hann innblástur fyrir verkið. „Ég
er mjög hrifinn af gömlu Disney-
myndunum, eins og Lísu í Undra-
landi og Fantasíu, og dularfullu
verunum og dýrunum í þeim.
Síðan þegar ég var í Montana og
horfði á stórkostlegt landslagið
þar fór ég að hugsa um hversu
mörg falin vötn og sléttur eru í
skógunum, sem enginn veit af.
Það þótti mér ótrúlega heillandi
og ég ímyndaði mér að alls kyns
dýr byggju á felustaðnum og hugs-
aði um hvernig þau myndu haga
sér, berjast, elskast og leika.“
Út frá hugmyndum um gleði,
Disney-verur og felustaði í skóg-
inum fór Brian að sjá fyrir sér
dansara dansflokksins á hreyf-
ingu sem tjáði þessar tilfinning-
ar. „Meadow er í raun blanda af
minningu og fantasíu. Ég myndi
lýsa verkinu sem lostafullu, gleði-
legu, fullu af gáska og fallega sak-
lausu.“
Brian talar fallega um sam-
starfsfólk sitt í Íslenska dans-
flokknum og segist hafa viljað
vinna verkið með þeim vegna
ótrúlegra hæfileika þeirra. „Allir
dansararnir eru svo hæfileikarík-
ir og hver og einn dansari er ein-
stakur. Þau eru eins og ofurhetju-
lið, hver og einn með sinn einstaka
ofurkraft.“
Brian líður vel á Íslandi og
heillast af því hversu duglegir
Íslendingar eru að sækja listvið-
burði. „Íslendingar fara í leik-
hús eins og Bandaríkjamenn
fara í bíó. Það er yndislegt og
ég vona að yngri kynslóðir haldi
þessu áfram. Vonandi munu fleiri
Íslendingar sækja sýningar dans-
flokksins. Ég held að fæstir átti
sig á því að hér á landi starfar
dansflokkur á heimsmælikvarða,
sem er þekktur og virtur úti í
heimi. Það er fyndið en Íslenski
dansflokkurinn er í raun frægari
erlendis en hér heima.“
Sýningin Emotional saman-
stendur af tveimur dansverkum,
Meadow og EMO1994 eftir Ole
Martin Meland. Verk Brians verð-
ur frumsýnt í kvöld ásamt verkinu
EMO1994 eftir Ole Martin Meland.
Á SÝNINGUNA
LITAFLÓÐ
með verkum eftir
Þorstein Helgason sem
hefst í Galleríi Fold í dag.
Á SVEFNLJÓÐ,
nýja diskinn hennar
Ragnheiðar Gröndal
sem semur öll lögin og
leikur sjálf á píanóið.
52 SONNETTUR,
ástarsögu eftir Þórð
Helgason, sem færði
konunni sonnettu vikulega
fyrsta sambúðarár þeirra.
Á THE BIG BANG
THEORY á Stöð 2 í
kvöld en fimmta röð
gamanþáttanna er nú að
hefja göngu sína.
HELGIN
25. október 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
iPad Air 2
iPad mini 3
Nýir iPad-ar
Lostafullar verur
á fögrum felustað
Verkið Meadow er unnið út frá hugmyndum um gleðina í dansinum,
Disney-verur og felustaði í Montana sem eru æskuslóðir höfundar.
DANSHÖFUNDUR
OG DANSARI Mead-
ow er fyrsta verk
Brians sem hann
vinnur með Íslenska
dansflokknum. Hann
segist þó njóta þess
enn betur að dansa
en að semja eigin
verk, enda sé hann
fullkomlega í núinu
uppi á sviði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is
Allir dansararnir
eru svo hæfileikaríkir og
hver og einn dansari er
einstakur. Þau eru eins
og ofurhetjulið, hver
og einn með sinn einstaka
ofurkraft.
Egill Ólafur Thorarensen, tónlistarmaður
Kósýslæda helgina
Það er ekki séns að ég missi af Steve Merchant á
sunnudagskvöldinu. Ég hef verið mikill aðdáandi verka
hans og Ricky Gervais síðan ég sá The Office í fyrsta
skiptið. Annars er helgin mín bara róleg fyrir utan það. Ég
er heimakær á veturna. „Kósýslæda“ þetta sjitt.
Sigrún Eldjárn, rithöfundur
Í ítalskri sveit
Um helgina ætla ég að vera í
sveitinni á Ítalíu. Ég er stödd
í litlum bæ og ég mun nýta
tímann til að labba um, borða
góðan mat, sinna myndlistinni
og skrifa, en nú vinn ég að þriðju
bókinni í seríunni um börnin á
Skuggaskeri.
Bergþóra Njála Guðmunds-
dóttir, upplýsingafulltrúi
Les fræðibækur
Samhliða starfi er ég í umhverfis-
og auðlindafræði í HÍ og þarf því
að nýta hverja stund til lesturs
fræðibóka um helgina. Í dag fer ég
með dóttur mína á sirkusæfingu
og hjálpa henni síðan að æfa sig á
þverflautuna.
Edda Hermannsdóttir,
aðstoðarritstjóri
Stelpuhelgi
Helgin verður hugguleg stelpu-
helgi með dóttur minni. Við
kunnum ekki annað en að byrja
daginn á sundi og bakstri. Í
kvöld er frumsýning hjá Íslenska
dansflokknum og á morgun
undirbúum við matarboð.