Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 32
25. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
1932 Fæddur
22. júlí í Santo
Domingo í
Dóminíska
lýðveldinu.
1951 fer til Spánar
að læra listmálun.
Vann fyrir sér
með því að teikna
tískumyndir fyrir
dagblað í Madrid.
1961 fer til Parísar
og fær vinnu sem
aðstoðarmaður
hjá Lanvin undir
stjórn Antonio del
Castillo.
2014 Lést þann
20. október á
heimili sínu
í Kent,
Conneticut.
2003 Carrie
Bradshaw
klæðist
bleika
kjólnum í
Sex and the
City.
Góðhjartaði
fatahönnuðurinn
sem stjörnurnar
elskuðu
Hátískuhönnuðurinn Oscar de la Renta lést í
vikunni, 82 ára að aldri. Banamein hans var krabba-
mein, en hann greindist árið 2006. De la Renta var
einstakur listamaður, hann lærði aldrei fatahönnun
en var engu að síður einn fremsti fatahönnuður heims.
Oscar de la Renta var
einna þekktastur fyrir
brúðarkjólalínurnar sem
hann gerði og voru kjól-
arnir hans eftirsóttir í
brúðkaup stjarnanna. Eitt
af hans síðustu verkum
var að hanna brúðarkjól
Amal Alamuddin-Clooney
mannréttindalögfræðings
sem gekk að eiga leikarann
George Clooney í septem-
ber. Áður hafði hann meðal
annars sérhannað kjóla á
Jennu Bush, dóttur George
Bush Bandaríkjaforseta,
fyrir leikkonuna Kate
Bosworth og leikkonuna
Amöndu Peet.
Brúðarkjólar Oscars
„Tíska er ópólitísk og óhlutdræg“ sagði de la
Renta, en hann var einna þekktastur fyrir að klæða
forsetafrúr Bandaríkjanna. Hann breytti viðhorfi til
klæðnaðar þeirra og hvatti þær til þess að klæðast
fatnaði sem var í tísku en þó klassískur. Oscar var
bara tvítugur þegar forsetafrúin Jackie Kennedy
klæddist kjól eftir hann, en hann sérhannaði fjölda
kjóla á hana síðar. Forsetafrúin Nancy Reagan var
góð vinkona de la Renta og klæddi hann hana fyrir
hin ýmsu tilefni. Hillary Clinton var í gylltum kjól
eftir hann þegar Bill Clinton var endurkjörinn 1997.
Öðru máli gegnir hins vegar um núverandi for-
setafrú, Michelle Obama, en hann gagnrýndi hana
mjög fyrir klæðaburð. Fannst honum óviðeigandi
að forsetafrúin klæddist kjól frá J-Crew, fjölda-
framleiddu merki, og ungum hönnuðum á borð við
Alexander McQueen og Jason Wu. En tveimur vikum
fyrir andlát hönnuðarins klæddist Obama kjól úr
smiðju hans í fyrsta sinn eftir að forðast það í sjö ár.
Oscar og forsetafrúrnar
ÆVI OG FERILL
OSCAR DE LA RENTA
Á VINNUSTOFUNNI Gakktu líkt og það
séu þrír karlmenn á eftir þér.
FLOTT Oscar de la Renta ásamt leikkon-
unni Audrey Hepburn 28. október 1988.
Ummæli þekktra vina
de la Renta
Ég man
ekki hvernig
ég fékk
hugrekkið
til þess að
verða vinur
hans.
Sarah Jessica Parker, leikkona.
Hann
sagði alltaf:
Taktu vinum
þínum eins
og þeir eru,
ekki eins og
þú vilt að þeir séu.
Oscar var allt sem
þú leitar að í vini.
Anna Wintour, ritstjóri Vogue.
Hann
var frábær
dansari.
það var
unaður að
bara að
vera í kringum
hann, sérstaklega
á heimili hans og í
garðinum hans,
þar sem hamingj-
an réð ríkjum.
André Leon Talley,
hjá Vogue.
Oscar de la Renta
var frábær hönnuður,
sannur listamaður,
byltingarmaður.
Rödd hans mun
halda áfram að óma í
hjörtum okkar, bjartsýni
hans og ást á lífinu mun veita okkur
innblástur um ókomna tíð. hans
verður sárt saknað.
Diane von Furstenberg.
Þegar hann bjó á Spáni heillaðist hann af blómum
og litum þeirra, sem endurspeglaðist í hönnun
hans gegnum árin. Hann klæddi margar af þekkt-
ustu stjörnum samtímans, leikkonur, forsetafrúr
og sjónvarpsstjörnur, hvort sem tilefnið var verð-
launahátíð eða brúðkaup. Hönnun hans vakti einn-
ig sérstaka athygli í sjónvarpsþáttunum Sex and
the City, en stílisti þáttanna, Patricia
Field, fékk hönnuðinn með sér í samstarf
og muna flestir aðdáendur þáttanna eftir
bleika kjólnum sem Carrie klæddist í loka-
seríunni. Vinir hans lýsa honum sem ein-
staklega góðhjörtuðum manni sem var vinur
vina sinna og tók þeim eins og þeir voru.
Adda Soffía
Ingvarsdóttir
adda@frettabladid.is
HILARY
CLINTON
1997.
LAURA
BUSH Í
KJÓL Á
LIBERTY
BALL 2005.
AMAL ALAMUDDIN MÆTIR
Í LOKAMÁTUN HJÁ OSCAR
DE LA RENTA 2014.
1956
Gerir
sinn
fyrsta
kjól, sem
birtist á
forsíðu
tímarits-
ins Life.
1962 Jackie Kennedy
klæðist kjól eftir de
la Renta í opinberri
heimsókn í Indlandi.
1963 Fær vinnu hjá
Elizabeth Arden.
1965 Færði sig yfir til
Jane Derby og tók við
því merki er hún lést
sama ár.
1967 Stofnar sitt
eigið fatamerki
og kvænist fyrri
konu sinni,
Françoise de
Langlade.
1973-1976 Forseti
Council of Fashion
Designers of America,
Inc. CFDA. Og aftur
árið 1986-1988.
1977 Fyrsti
ilmurinn hans
kom út, OSCAR.
1983 Eigin-
kona de la
Renta deyr úr
krabbameini.
De la Renta
ættleiðir
dreng frá
Dóminíska
lýðveldinu,
hann Móses.
1989 Kvænist
Anne France
Mannheimer.
1993-2002 Yfirhönn-
uður hjá Balmain og er
sá fyrsti frá Dóminíska
lýðveldinu sem er ráðinn
á franskt tískuhús.
2006 Fer að ein-
beita sér í auknum
mæli að hönnun
brúðarkjóla. Greinist
með krabbamein.
2014 Sýnir á
tískuvikunni í
New York, hannar
brúðarkjól Amal
Alamuddin.
1930 | 1940 | 1950 | 1960 | 1970 | 1980 | 1990 | 2000 | 2010
GLÆSILEG Ásamt
Opruh Winfrey á
Met Gala í New
York 3. maí 2010,
hún að sjálfsögðu
í kjól frá honum.