Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 44
FÓLK|HELGIN
mínum og dóttur
og kannski bætast
mamma mín og bróðir í
hópinn.
Til hvers eru helgarfrí, að þínu
mati? Fyrir mig sem dansara eru
helgarfríin til að hvíla líkama og sál
og endurhlaða batteríin fyrir komandi
viku. Síðast en ekki síst eru
helgarnar kær-
komnar til að
verja heilum
dögum með
barninu mínu.
■ thordis@365.is
Hvað er það sem þú gerir alltaf um
helgar? Ég reyni að slappa vel af
og eiga góðar stundir með dóttur
minni og manninum mínum.
Hvað ætlar þú að gera sérstakt um
þessa helgi? Í kvöld ætla ég að
frumsýna dansverkið Emotion-
al með Íslenska dansflokknum
í Borgarleikhúsinu og get ekki
beðið eftir að sýna áhorfendum
þetta magnaða dansverk. Ég
er afar stolt af þessari frábæru
sýningu og hvet fólk til að ná sér
tímanlega í miða því sýningarnar
verða bara fimm.
Hvar finnst þér best að vera um
helgar? Mér finnst best að vera
heima hjá mér eða í góðra vina
hópi.
Vakirðu fram eftir um helgar? Já,
ég vaki yfirleitt aðeins lengur um
helgar, annaðhvort vegna gleð-
skapar eða þá að ég horfi á góða
mynd.
Ertu árrisul eða sefur út? Mér
finnst voða gott að fá að sofa út
um helgar og hef kost á slíku því
ég er svo heppin að eiga barn
sem er algjör B-manneskja.
Hver er draumamorgunverðurinn?
Ég elska vel útilátinn morgunverð
eins og bröns þar sem maður fær
sitt lítið af hverju, bæði matar-
kyns og sætmeti.
Hvernig er dæmigert laugardags-
kvöld í þínu lífi? Ég á mér enga
sérstaka laugardagsrútínu og því
er ekkert laugardagskvöld í mínu
lífi eins.
Ertu með nammidag og hvert er
uppáhaldssælgætið þitt? Ég á
mér engan sérstakan nammidag
heldur borða sætt þegar mig
langar í sætindi. Ég reyni þó að
borða ekki of mikið í einu. Í mestu
dálæti er ís og uppáhaldssúkkul-
aðið Ritter Sport í næstum öllum
bragðtegundum.
Hvað maularðu í sjónvarpssófan-
um á kósíkvöldi? Það fer svolítið
eftir því í hvernig stuði ég er en
oftast verður ofangreint uppá-
haldsnammi fyrir valinu.
Heldurðu hvíldardaginn
heilagan? Nei, það er
vandasamt því ég er
mjög oft með sýn-
ingar á sunnu-
dögum.
Ferðu í
sunnudags-
messu? Nei,
ég fer ekki nógu
oft í kirkju en er þó
byrjuð að fara með
dóttur mína í sunnudaga-
skólann.
Hvað verður með sunnudags-
kaffinu og með hverj-
um drekkur
þú það?
Örugg-
lega
gómsæt
kaka
sem ég
nýt með manni
EKKERT KVÖLD EINS
HELGARSPJALLIÐ Dansarinn Hjördís Lilja Örnólfsdóttir stígur á svið með
Íslenska dansflokknum í Borgarleikhúsinu í kvöld. Hún segist heppin að eiga
barn sem er algjör B-manneskja og geta kúrt lengi frameftir um helgar.
DANS Á RÓSUM Hjördís Lilja Örnólfsdóttir notar helgarnar til
að hlaða batteríin og eiga ljúfar stundir með manni sínum og
dóttur. MYND/STEVE LORENZ
FIMM
SÝNINGAR
„Ég get ekki beðið
eftir að sýna áhorf-
endum þetta magn-
aða dansverk. Ég er
afar stolt af þess-
ari frábæru sýningu
og hvet fólk til að ná
sér tímanlega í miða
því sýningarnar verða
bara fimm.“
Þjóðlegir bolir, handprentað á Íslandi. Sjá útsölust.
á Facebook Auntsdesign, S: 618-3022
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
NÝ
TT
KO
RTA
TÍM
AB
IL
Við erum á Facebook
RÍTA BÆJARLIND
15 ára
Af því tilefni er 15% afsláttur
af öllum fatnaði hjá okkur
fimmtudag, föstudag og laugardag