Fréttablaðið - 25.10.2014, Page 49
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
STOFNAÐ 1958
www.vso.is
Laus störf hjá VSÓ Ráðgjöf í Noregi
Með vaxandi umsvifum viljum við fjölga starfsmönnum okkar í Noregi. Viðkomandi þurfa að vera
reiðubúnir að búa og starfa í Noregi og búa jafnframt yfir:
- Góðri kunnáttu í norsku eða öðru skandinavísku tungumáli, bæði skriflegri og munnlegri.
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Faglegum metnaði og vilja til að þroskast í starfi.
Verk- eða tæknifræðingur með a.m.k. 5 ára starfsreynslu
Starfið felst m.a. í samskiptum við verkkaupa og faglegu forsvari fyrir hönnunar- og
ráðgjafarverkefni stofunnar. Einnig verkefnastjórnun, framkvæmdaráðgjöf, áætlanagerð,
verkefnaöflun og virkri þátttöku í þróun fyrirtækisins.
Verk- eða tæknifræðingur með 1-3 ára starfsreynslu
Starfið felst einkum í aðstoð við verkefnastjórnun, framkvæmdaráðgjöf, áætlanagerð
og kostnaðarútreikninga. Miklir möguleikar á faglegri þróun í starfi.
Hægt er að sækja um störfin með því að senda tölvupóst á umsokn@vso.is
merktan Starf í Noregi, fyrir 10. nóvember.
VSÓ hefur frá árinu 2010 sinnt fjölda verkefna í Noregi. Stór hluti þeirra eru fjölbreytt
hönnunarverk sem að miklu leyti eru unnin á Íslandi en krefjast einnig viðveru og
þjónustu ytra, jafnt á hönnunar- sem framkvæmdatíma. Starfsmenn VSÓ í Noregi taka
því virkan þátt í þverfaglegri samvinnu með öðrum starfsmönnum fyrirtækisins.
Skrifstofur VSÓ í Noregi eru tvær, í Jessheim í útjaðri Oslóar og í Stavanger.