Fréttablaðið - 25.10.2014, Qupperneq 50
| ATVINNA |
Fulltrúi á skrifstofu
Borgarholtsskóli er fjölbreyttur, framsækinn og skapandi skóli sem
leggur áherslu á að allir fái nám við sitt hæfi. Boðið er upp á margar
námsleiðir; í bóknámi, listnámi, iðnnámi og starfsnámi.
Einkunnarorð Borgarholtsskóla eru: agi, virðing, væntingar.
Laust er til umsóknar starf fulltrúa á skrifstofu við
Borgarholtsskóla. Um er að ræða 100% stöðu.
Leitað er eftir skipulögðum og stundvísum einstaklingi
með stúdentspróf. Viðkomandi hafi alúðlega framkomu,
þjónustulund og góða íslenskukunnáttu. Mikilvægt er
að viðkomandi hafi áhuga á skólastarfi.
Fulltrúi afgreiðir erindi nemenda, gesta og starfsmanna,
svarar erindum símleiðis, sér um skráningu ýmissa gagna,
útgáfu vottorða og námsferla. Vinnur að skjalavörslu.
Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Við bjóðum upp á gefandi starfsumhverfi og lífleg
samskipti við nemendur og kennara. Sjá upplýsingar
um Borgarholtsskóla: www.bhs.is.
Skriflegar umsóknir um ofangreint starf, ásamt prófskírt-
einum, meðmælum og upplýsingum um nám og fyrri störf,
skulu berast Borgarholtsskóla í síðasta lagi 10. nóvember
2014. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða.
Frekari upplýsingar veitir
Bryndís Sigurjónsdóttir skólameistari í síma 5351702
eða í tölvupósti, bryndis@bhs.is.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins en lýtur sérstakri stjórn. Seðlabankinn
fer með stjórn peningamála á Íslandi og er meginmarkmið hennar stöðugleiki í verðlagsmálum. Seðla-
bankinn skal ennfremur sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem
að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu
og við útlönd.
Laust starf hjá Seðlabanka Íslands
Sérfræðingur - Fjárstýring
Nánari upplýsingar veitir Freyr Hermannsson forstöðumaður fjárstýringar. Sími 569-9600.
Sótt skal um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is. Umsóknir gilda í sex mánuði. Við ráðningar í störf hjá
Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2014.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á markaðviðskipta- og fjárstýringarsviði bankans. Um er að ræða
100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík
Meginviðfangsefni markaðsviðskipta og fjárstýringar eru fyrirgreiðsla við fjármálafyrirtæki og dagleg samskipti við þau, eftir-
lit með innlendum gjaldeyrismarkaði og krónumarkaði, ávöxtun gjaldeyrisforða og umsjón með stýringu erlendra og innlendra
skulda ríkissjóðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
gjaldeyrisforða
Hæfnikröfur
verkfræði eða sambærilegum greinum
rituðu máli
kynningar og erindi á íslensku og ensku
S: 511 1144
S: 511 1144
Rekstrarvörur
réþ ðem anniv -
25. október 2014 LAUGARDAGUR2