Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Félagsmálastjóri
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með ríflega 600 íbúa. Náttúrufegurð er víða mikil og möguleikar óþrjótandi til að njóta frábærrar
útiveru. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar eru næg og fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður
og vaxandi ferðaþjónusta. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á iðnaðarsvæðinu við Grundartanga með fjölmörgum iðnfyrirtækjum.
Í sveitarfélaginu er rekið metnaðarfullt skólastarf í sameinuðum leik- og grunnskóla.
Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög.
Hvalfjarðarsveit
Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra Hvalfjarðar-
sveitar. Um er að ræða 50% starf innan stjórnsýslu
sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra
fjölbreyttum verkefnum félagsþjónustu sveitarfélagsins. Æski-
legt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með rekstri og ber ábyrgð á
allri starfsemi sem heyrir undir málefni félagsþjónustu Hval-
fjarðarsveitar þ.m.t.:
• Barnavernd
• Félagsleg heimaþjónusta
• Félagsleg ráðgjöf
• Fjárhagsaðstoð
• Málefni aldraðra
• Málefni fatlaðra
• Önnur verkefni á málefnasviði fjölskyldunefndar og
fræðslu- og skólanefndar.
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna,
úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og
þjónustugæða. Félagsmálastjóri sinnir teymisvinnu og starfar
með mismunandi fagstéttum á þjónustusvæði sveitarfélagsins.
Þá er félagsmálastjóri starfsmaður fjölskyldunefndar og
fræðslu- og skólanefndar.
Almennt stjórnunarsvið:
Félagsmálastjóri starfar og stjórnar í samræmi við lög og
reglugerðir sem gilda um verkefni félagsþjónustu. Einnig eftir
lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu og samkvæmt
markmiðum félagsþjónustunnar og fjárhagsáætlunar
Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.
Nokkrir helstu samráðsaðilar eru félagsmálanefnd,
barnaverndarnefnd og þjónusturáð í málefnum fatlaðra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg.
• Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra
eða sambærileg störf er mikilvæg.
• Reynsla af stjórnunarstörfum á vettvangi félags-
þjónustu sveitarfélaga er æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og
skipulagshæfileika.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum
viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa
Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórn-
sýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að
stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og umhverfismálum
sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulags- og umhverfisfulltrúi hefur yfirumsjón með skipu-
lags- og umhverfismálum sveitarfélagsins, þjónustar íbúa
Hvalfjarðarsveitar á þeim málefnasviðum, er ráðgefandi fyrir
sveitarstjórn og umhverfis,- skipulags- og náttúruverndarnefnd
og vinnur skv. samþykktum þeirra.
Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið
skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar:
• Skipulagsgerð og útgáfa framkvæmdaleyfa.
• Umsjón með gatnagerð, fráveitumálum, umferðar- og
samgöngumálum.
• Gerð starfs- rekstrar, og framkvæmdaáætlana fyrir þá
málaflokka sem undir hann heyra.
• Umsjón með umhverfis- og hreinlætismálum
sveitarfélagsins.
• Umsjón með náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu.
• Umsjón með fegrun opinna svæða, gróðursetningu
og uppgræðslu
• Umsjón með vinnuskóla í verkefnum sem m.a. varða opin
svæði. Yfirumsjón með merkingu og kortlagningu úti-
vistarsvæða og gönguleiða í sveitarfélaginu.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og
varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun,
þróun verklags og þjónustugæða. Skipulags- og umhverfisfull-
trúi er starfsmaður umhverfis,- skipulags,- og náttúru-
verndarnefndar.
Almennt stjórnunarsvið:
Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi
við lög og reglugerðir sem gilda um skipulags- og umhverfismál
sveitarfélaga. Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og
stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í sam-
ræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast
skipulagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
er skilyrði.
• Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum er
æskileg.
• Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og
gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
• Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi er kostur.
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og
skipulagshæfileika.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur um störf félagsmálastjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar er til og með 7. nóvember nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu skuli@hvalfjardarsveit.is
Einstaklingur með B.S. eða M.S. menntun á sviði lí fvísinda
óskast t il star fa á rannsóknastofu Ísteka ehf.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja star fsreynslu.
Upplýsingar gefur Bryndís Stefánsdót tir
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á net fangið
bryndis@isteka.com f yrir 31. október 2014.
STARF Á RANNSÓKNASTOFU Í LÍFVÍSINDUM
Hjá Ísteka ehf. er unnið við þróun og framleiðslu á próteinlyfjum (biologics) og
mælisettum (diagnostic kits) fyrir erlenda markaði. Starfsemin er GMP vottuð og
framleiðsluferlar og starfshættir samþykktir af lyfjastofnunum út um allan heim, m.a.
af FDA í USA.
YFIR-
DJÚSARI
JOE & THE JUICE LEITAR AÐ MANNESKJU
TIL AÐ SJÁ UM HLUTINA Í LEIFSSTÖÐ
• VERÐUR AÐ HAFA BRENNANDI ÁHUGA Á REKSTRI
• REYNSLA AF STJÓRNUN ÆSKILEG
• FRÁBÆR ÞJÓNUSTULUND SKILYRÐI
• SKIPULAGIÐ Í LAGI
• NETTAR HREYFINGAR Á DANSGÓLFINU KOSTUR
• ÞARF AÐ KUNNA AÐ META GÓÐAN DJÚS
• EKKI VERRA AÐ VERA MORGUNMANNESKJA
Sækja skal um á joeandthejuice.is
Nánari upplýsingar hjá dks@joeandthejuice.is
Umsóknarfrestur til 1. nóvember
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
www.hagvangur.is
25. október 2014 LAUGARDAGUR4