Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 72

Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 72
25. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson var duglegur að læra Biblíu- sögurnar sínar í barnaskóla. En fór seinna að efast um ýmislegt af því sem þar stóð. FERÐALÖG GYÐINGA SAMKVÆMT GAMLA TESTAMENTINU Sagan er skrifuð af sigurvegur-unum,“ segir máltækið; það er ekki gott að vita hver sagði þetta fyrstur nema hvað það var altént ekki Churchill eins og oft er fullyrt, en þótt finna megi dæmi um að þetta geti talist rétt er líka hægt að benda á hið þveröfuga, sem sé að sú mynd sögunnar sem verður ofan á í vitund okkar sé ekki runnin frá hinum veraldlegu sigurvegurum eða mestum valdamönnum á hverjum tíma, heldur stundum þvert á móti frá hinum sem óumdeilanlega urðu undir. En tryggir það endilega að sú saga sem að lyktum er skráð sé endilega áreiðan- legri en hin sem sigurvegararnir festa á blað, eða tölvuskjá eða bókfell eða leirtöflur ef svo ber undir? Þeir geta jú haft alveg jafn ríka hagsmuni af því að sveigja og beygja söguna, þótt þeir hags- munir séu kannski ekki alltaf augljósir. Eitt merkilegt dæmi má nefna um hvernig hinar sennilegustu sögur og jafnvel allra trúverðugustu heimildir geta verið tómur tilbúningur er að finna í Gamla testamentinu. Í mínu ungdæmi voru frásagnir Biblí- unnar um uppruna Ísraelsmanna kenndar eins og heilagur sannleikur. Kannski hafa áherslur breyst eitthvað í þeirri trúar- bragðakennslu sem nú fer fram í grunn- skólum, en ég hygg þó að flestir hljóti enn að þekkja í stórum dráttum þá sögu sem þar er sögð. Hún er rakin á kortinu sem fylgir þessari grein, þetta er leiðin sem Abraham ættfaðir Ísraelsmanna fór frá heimaborg sinni Úr í Mesópót amíu og upp til Haran í Sýrlandi en þaðan suður til Kanaanslands, sem þá hét svo, og AÐ SKRÖKVA UPP Á SIG FJÖLDAMORÐUM hreiðraði ætt hans um sig í fáeina manns- aldra eftir að hafa verið úthlutað landi af guði almáttugum. Og ættin varð þjóð og kallaðist altso Ísrael og bjó í landinu um hríð við sæmilegan frið innan um Kana- ansmenn og aðrar þjóðir. Svo lærðum við í Biblíusögunum að ættarlaukurinn Jósef hefði leitt þjóðina til Egiftalands þar sem hann hafði kom- ist til metorða, og þar bjó þjóðin í fáeinar aldir, eða þar til hún hrökklaðist burt undan ofsóknum nýs faraós. Sá maka- lausi leiðtogi Móse stýrði flóttanum aftur til fyrirheitna landsins yfir Sínaí-skaga og þótt ekki væri vegalengdin löng tók ferðin áratugi. Að lokum voru Ísraels- menn þó komnir alla leið til Kanaans- lands og fóru nú ekki með friði eins og hið fyrra sinni heldur réðust formála- laust til atlögu og lögðu landið undir sig með ægilegu blóðbaði, brenndu borgir, stráfelldu heimamenn og rændu eigum þeirra og landi. Þeir stofnuðu svo ríki í rústunum eftir innrásarstríðið og var það allöflugt um tíma en klofnaði svo reyndar í tvennt, Júdeu fyrir sunnan og Ísrael í norðri. Guðinn með plágurnar Þetta er afar fjörug saga ef svo má að orði komast, en réttara sagt er hún blóði drif- in og uppfull af allskonar hroða sem að mestu var skautað yfir í Biblíusögunum mínum, enda margt í þessum frásögnum Mósebóka og annarra rita Gamla testa- mentisins sem er vægast sagt í litlu sam- ræmi við þann kærleiksboðskap Jesúa frá Nasaret sem kristin kirkja byggði seinna kenningu sína á, þótt henni sjálfri hafi að sönnu oft gengið ærið illa að fylgja þeim boðskap, hvað þá öðrum. Guð Gamla testamentisins er náttúrlega alls ekki kærleiksríkur, hann viðurkennir sjálf- ur fúslega að vera grimmur, hefnigjarn, afbrýðisamur og blóðþyrstur, enda skipar hann hvað eftir annað fyrir um hin viður- styggilegustu fjöldamorð eða fremur þau beinlínis sjálfur. Og í þá daga fóru hvorki Ísraelsmenn né aðrir fram á að guðir þeirra væru „góðir“ í einhverjum raun- verulegum skilningi. Höfundar Gamla testamentisins smíðuðu alveg athuga- semdalaust frásagnir eins og af plágunum tíu sem guð lét koma yfir Egifta af því faraó vildi ekki sleppa Ísraelsmönnum úr landi, en nákvæmir menn hafa reiknað út að plágurnar hafi kostað meira en milljón mannslíf – og væri sjálfsagt hægt að fá út töluvert hærri tölu ef menn vildu. En ekki var nóg með að guð stráfelldi þannig blá- saklausa Egifta í stað þess að ljósta faraó einfaldlega þrumuflaug eins og stallbróð- ir hans Seifur hefði vafalaust gert. Í Mósebókum kemur nefnilega skýrt fram að það var guð sjálfur sem „herti hjarta faraós“ hvað eftir annað svo hann hætti við að leyfa Ísraelsmönn- um að fara, og guð fékk þannig tækifæri til að sleppa nýrri plágu lausri. Þetta er auð- vitað afar sér- kennilegt í augum nútímafólks, en ekki þó af því að svona hafi þetta gerst í raun og veru. Vitaskuld eru sögur Gamla testamentisins um plágurnar einskær tilbún- ingur, en dular- fyllst hlýtur að vera að höfundarn- ir sem settu saman Mósebækur skuli hafa talið þessa hegðun guði sínum til tekna. Það er eitt augljóst merki þess að guði Gamla testamentisins var aldrei ætlað að vera kærleiksríkur, hann var upphaf- lega ættbálkaguð sem hafði það hlutverk eitt að vernda líf og heilsu lítillar þjóðar í ólgusjó Miðaustur- landa, og ýmsir fræði- menn telja reyndar að í Mósebókum og öðrum elstu söguritum Gamla testament- is megi greina augljós merki þess að höf- undar bókanna hafi samein- að í einn guð tvo ætt bálka- guði þegar þeir steyptu allskonar eldri söguritum og þjóðsögum saman í eitt. Hvað er að marka? Enn augljósara merki um að guð Ísraelsmanna var upphaflega í aðra röndina stríðsguð má svo sjá í frásögnunum af því þegar Ísraelsmenn leggja undir sig Kanaansland eftir vistina í Egiftalandi. Lýsingarnar á því morðæði sem grípur þá þegar þeir leggja undir sig hverja borgina af annarri eru ekki við barna hæfi, en hér nægir að nefna að borgin Aí var grjótrúst ein eftir að Ísraelsmenn höfðu farið þar um, segir í 8. kapítula Jósúabókar og þeir stráfelldu 12.000 íbúa – konur, karla og börn – að beinni skipan guðs, og sérlega athyglisvert er reyndar að konungurinn í Aí var krossfestur. Lýsingar á því er Ísra- elsmenn hertaka fleiri borgir eru af sama tagi. Og hin augljósa spurning sem við hljót- um að spyrja okkur er þessi: Hvernig er hægt að byggja hugmyndir um kærleiks- ríkan guð á þeim blóðþyrsta guði sem birtist í sumum köflum Gamla testa- mentisins? En sú spurning er nú samt að mínum dómi ekki sú allra merkilegasta sem kviknar við nánari skoðun á þessari sögu um uppruna Ísraelsmanna. Heldur sú hvað er að marka þetta allt saman yfir- leitt. Ef við tökum guð út fyrir sviga virðist sagan sem Gamla testamentið segir alls ekki ólíkleg í sjálfu sér. Litlir ættflokk- ar og smáþjóðir eins og Ísra- elsmenn voru vissulega á flakki um Miðausturlönd og söguþráðurinn um för Ísraelsmanna frá Úr til Egifta- lands og svo aftur til Kanaans- lands hefði vel getað gerst. Og það er auðvelt að hugsa sér að þegar höf- undar Gamla testamentis- ins hafi löngu seinna farið að vinna samfellda frásögn upp úr sögum um fortíð þjóðarinnar þá hafi þeir til dæmis bætt inn í söguna um árásina á borgina Aí að hún hafi verið gerð að beinni fyrirskipun guðs. Það hafi verið auðveldara að sætta sig við að forfeðurnir hafi framið svona viðurstyggileg fjöldamorð ef látið væri í veðri vaka að guð hafi fyrirskipað öll ósköpin. En nú fer nefnilega að vandast málið. Rann- sóknir fornleifafræð- inga hafa gerbylt mynd okkar af for- tíð Ísraelsmanna, og nú er komið í ljós að öll sú frásögn sem Gamla testa- mentið lýsir um ferðalag- ið sem kortið sýnir, hún er sennilega öll eintómur til- búningur. Þar á meðal frásögnin um vistina í Egifta- landi og árásina á Aí og aðrar borgir Kan- aanslands í kjölfarið. Aí var aldrei lögð í rúst af inn- rásarmönnum, að minnsta kosti ekki um þær mundir sem Jósúabók vill vera láta. Minnipokamennirnir skrifuðu söguna Þetta er í meira lagi skrýtið. Eitt er að reyna að kenna guði um fjöldamorð sem forfeðurnir hafi framið. En allt annað og enn dularfyllra að ljúga beinlínis upp á forfeður sína að þeir hafi framið önnur eins grimmdarverk og þetta, sem lík- lega átti sér aldrei stað. Því Ísraelsmenn þróuðust einfaldlega hægt og rólega út frá einum ættbálkanna í Kanaanslandi, þeir komu ekki frá Úr, þeir fóru ekki til Egiftalands og þurftu ekki að flýja þaðan aftur, þeir lögðu ekki undir sig landið með eldi og sverð. Þeir voru bara þarna allan tímann. Um það leyti sem Gamla testamentið var skrifað höfðu hin tvö smáríki Ísraels- manna beðið algjöran ósigur í lífsbarátt- unni. Stórveldin í kring höfðu undirokað þau bæði. En það voru þeir – minnipoka- mennirnir – sem skrifuðu söguna. Og virðast hafa búið hana til frá grunni. Enn augljósara merki um að guð Ísraels- manna var upphaflega í aðra rönd- ina stríðs- guð má svo sjá í frásögn- unum af því þegar Ísraels menn leggja undir sig Kanaans- land eftir vistina í Egiftalandi. Lýs ingarnar á því morð- æði sem grípur þá … eru ekki við barna hæfi. MÓSES GUÐ Verkefnastyrkir Nefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 2015 auglýsir styrki til verkefna árið 2015. Verkefnin þurfa að tengjast megintilgangi nefndarinnar, sem er: • að minnast afmælisins • að auka jafnréttis- og lýðræðisvitund þjóðarinnar • að blása til nýrrar sóknar í jafnréttis- og mannréttindamálum Við það skal miðað að styrkirnir verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög við verkefnin eða draga úr stuðningi annarra við þau. Úthlutanir verða í tvennu lagi. Umsóknir á þessu ári þurfa að berast fyrir 15. nóvember til að hljóta afgreiðslu. Umsóknir um styrki á næsta ári verða auglýstar síðar. Umsóknareyðublöð fást rafrænt á vefsíðu afmælisnefndarinnar, www.kosningarettur100ara.is Frekari upplýsingar veitir Ásta R. Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri nefndarinnar í síma: 563 0100 á skrifstofutíma, póstfang: arj@kosningarettur100ara.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.