Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 74
25. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
Heilabrot
Nafn? Jón Jónsson. EKKI Jón
Ragnar, eins og tónlistarmað-
urinn og FH-ingurinn.
Aldur? Alveg að verða 14 ára.
Fótboltafélag? Þróttur. Besta
lið í heimi.
Staða í boltanum? Vinstra
megin á miðjunni.
Flottasta mark sem þú hefur
skorað? Hjólhestaspyrna á
Gothia Cup í sumar. Ótrúlegt
mark. Og það var njósnari á
vellinum og allt.
Eftirminnilegasti leikurinn?
Úff, ætli það sé ekki fyrsti
leikurinn sem ég sá Eivöru
spila í atvinnumennskunni
með Gautaborg FC. Það fór
sko allt í rugl í stúkunni. Ég
keypti sko blóm handa… æ,
og svo bara var Helena þarna
– og Rósa sá … Æi, þetta var
bara allt einn stór misskilning-
ur. (Vonandi les Helena þetta
ekki!)
Uppáhaldsfótboltamaðurinn
þinn? Gylfi Sigurðsson. Ég ætla að
verða jafn góður og hann.
Uppáhaldsfótboltaliðið? Þróttur
og Arsenal. Og landsliðið, bæði
karla og kvenna. Systir mín er sko
í kvennalands-
liðinu.
Önnur
áhugamál?
Draumaráðn-
ingar. Nei, djók.
Lestur!
Áttu kærustu?
Hvurslags spurning-
ar eru þetta? Nei! Eða
jú, eða sko – það er svolít-
ið flókið akkúrat núna.
Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðinn
stór? Atvinnumaður í fót-
bolta.
Voru stelpur líka að keppa
á Gothia Cup? Já, það eru sko
stelpur á þessu móti alveg eins og
á ReyCup. Það er allt öðruvísi að
vera á móti þar sem stelpur eru
líka að keppa. Það er miklu betra.
Nei, ég meina miklu verra. Eða
sko það getur verið vesen. Sér-
staklega ef stelpurnar eru sætar.
Og það voru mjööög sætar stelp-
ur á Gothia Cup. Alltof sætar. Og
það var ótrúlegt vesen. Reyndar
var algjörlega frábært að hafa
stelpur á ReyCup í fyrra því Rósa
bjargaði Ívari alveg. En á Gothia
Cup fór allt í fipl! Sko, Rósa var
þarna og ég var alveg … sko, og
Helena frá Ísafirði var þarna
líka og hún syngur svo vel og ég
bara … oh! Ég veit það ekki. Þú
verður bara að lesa bók-
ina og ákveða sjálf/
ur. Takk fyrir
mig.
Ætlar sér að verða
jafn góður og Gylfi
Saga Jóns og félaga í Þrótti er sögð í bókinni Gula spjaldið í Gautaborg og er
skrifuð af Gunnari Helgasyni. Þetta er þriðja bókin um þennan skemmtilega
gaur og af því tilefni svaraði Jón nokkrum spurningum Fréttablaðsins.
1. Hver er sá veggur víður og hár, vænum settur röndum gulur, rauður, grænn
og blár gerður af meistara höndum.
2. Hver er það, sem læðist lágt, líka stundum slæðist hátt? Yrði mörgum æði
bágt, opin ef ei stæði gátt.
3. Fuglinn flaug fjaðralaus, settist á vegginn beinlaus, þá kom maður handalaus
og skaut fuglinn bogalaus.
4. Liggur í göngum í löngum spöngum, gullinu fegra, en grípa má það enginn.
Svör:
1. Regnboginn 2. Reykur 3. Snjókornið og vindurinn 4. Sólargeisli
Tekið af síðu menntamálaráðuneytis í flokknum hugmyndabanki fyrir kennara.
FÓTBOLTAKAPPI Jón Jóns-
son skoraði úr hjólhesta-
spyrnu á Gothia Cup og það
er flottasta mark sem hann
hefur skorað.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/AN
TO
N
BRIN
K
HÖFUNDUR
Gunnar Helgason
skrifar sögurnar um
Jón og félaga.
Bragi Halldórsson
119
„Er þetta ekki talnavölundarhúsið þar sem við eigum að byrja
á bláu tölunni neðst og með því að fylgja bara sléttum tölum
lárétt og lóðrétt en ekki á ská, finna leið upp á topp
teningsins, bláu tölunnar sex?“ spurði Kata. „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að fylgja sléttu tölunum 2, 4, 6, og 8.“
„Mig minnti það,“ sagði Kata. „Mér gekk nú ekkert of vel síðast
þegar við glímdum við svona þraut en nú skal það ganga betur,“
sagði hún ákveðin og keppnisskapið leyndi sér ekki.
Getur þú fundið leiðina í gegnum teninginn með því að fylgja
sléttu tölunum lárétt og lóðrétt?
8 6 2 5 3 7 8 6 2 5 7 9
2 5 2 4 1 8 4 3 7 8 3 2
6 8 5 6 4 2 5 4 2 6 7 6
5 4 8 1 7 4 5 9 3 8 2 4
2 5 2 2 6 5 2 3 6 3 5 6
3 4 2 3 5 1 2 6 4 2 8 4
4 6 4 2 5 2 9 1 3 6 2 9
7 6 7 3 1 3 7 3 2 8 7 8
5 8 9 4 8 4 2 5 4 3 9 2
6 8 5 2 1 3 6 8 6 4 2 6
2 1 6 4 3 7 3 2 8 2 7 2
2 6 4 7 8 6 8 4 5 1 5 6
Halla 6 ára
sendi Frétta-
blaðinu þessa
mynd af fallega
skreyttu jólatré.
Líklega er hún
farin að hlakka til
jólanna.
Folkbladet