Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 80
TÍMAMÓT
25. október 2014 LAUGARDAGUR
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SESSELJA MARGRÉT
KARLSDÓTTIR
frá Stokkseyri,
lést laugardaginn 19. október á
hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 28. október kl. 13.00.
Kristján Björn Ólafsson Pála Kristín Ólafsdóttir
Erna Ólína Ólafsdóttir Eggert V. Kristinsson
Kolbrún Kristín Ólafsdóttir Hrafn Þórðarson
barnabörn og langömmubörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
SIGURDÍS SKÚLADÓTTIR
Háaleitisbraut 45, Reykjavík,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi
þann 22. október verður jarðsungin frá
Háteigskirkju, fimmtudaginn
30. október kl. 13.00.
Sigríður Jóhannsdóttir Haraldur Hermannsson
Sigurdís Haraldsdóttir Rosa Sarvarova
Svava Jóhanna Haraldsdóttir Brynjar Örn Ólafsson
Jóhann Haraldsson
Sigurdís Ásta Brynjarsdóttir
Sveinn Skúlason Erna Valsdóttir
Sigríður Á. Skúladóttir Ari K. Sæmundsen
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN SIGFÚSSON ÖFJÖRÐ
lést á heimili sínu þriðjudaginn 14. október.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Þökkum sýndan samhug.
Helga Signý Helgadóttir
Helgi Rafn Þórarinsson
Ellen Þórarinsdóttir Róbert Jónsson
Dagný Þórarinsdóttir Kjell Arne Henriksen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir, amma og langamma,
LILLÝ O. GUÐMUNDSDÓTTIR
Möðrufelli 15, Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 21. október
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 29. október kl. 13.00.
Gunnar Páll Ingólfsson
Laufey Ingibjörg Gunnarsdóttir Guðmundur Karl Snæbjörnss.
Sigurður Árni Gunnarsson Rebecca Yongco
Arnar Freyr Gunnarsson Sigurbjörg Alfreðsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts
og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
RAGNHEIÐAR MAGNÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
meltingar- og nýrnadeildar 13E á LSH og
lyflækningadeild SAK fyrir góða umönnun, hlýju og alúð.
Steindór Hermannsson
Magnús Páll Steindórsson
Þuríður Steindórsdóttir Tobías Sigurðsson
Drífa Steindórsdóttir Jón Sverrir Friðriksson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR
Kringlunni 17, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þann 16. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum ættingjum og vinum
veitta samúð.
Anna Geirsdóttir
Sigurbjörg Geirsdóttir Jón Eiríksson
Guðmundur Ásgeir Geirsson Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Helga Geirsdóttir Jón Páll Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útföt ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GYÐU GUÐJÓNSDÓTTUR
Goðheimum 1, Reykjavík.
Valgerður Franklínsdóttir, Hrafnkell Eiríksson,
Svanfríður Franklínsdóttir, Guðni Axelsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
STURLA GUÐBJARNASON
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 20. október. Útförin fer
fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
29. október kl. 13.00.
Diljá Sjöfn P. Snæfeld
Guðlaug R. Sturludóttir Snæfeld
Sölvi Sturluson Snæfeld Hilda Björk Línberg
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
sambýliskonu og móður,
HÓLMFRÍÐAR V. HAFLIÐADÓTTUR
frá Bolungarvík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi,
Keflavík, 2. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Guðmundsson, Friðrik P. Sigurðsson
90 ára afmæli
Margrét Sæmundsdóttir
Dunhaga 15, 107 Reykjavík,
er 90 ára.
Tekur hún á móti vinum og ættingjum í Iðnó við Tjörnina, milli 15:00 og
18:00 á afmælisdaginn, sunnudaginn 26. október n.k
„Ég er ekkert að gefa upp andann,“ segir
Hreinn Halldórsson, kúluvarparinn ást-
sæli, sem um áramótin lætur af störfum
sem forstöðumaður íþróttamannvirkja
Fljótsdalshéraðs.
„Mér bauðst annað starf vegna skipu-
lagsbreytinga hjá bænum þannig að ég
hoppa úr íþróttamiðstöðinni yfir á bæj-
arskrifstofur og mun sjá um mannvirki
bæjarins,“ segir Hreinn um breyting-
arnar fram undan.
Hreinn átti afar farsælan feril sem
kúluvarpari og var þrisvar útnefndur
íþróttamaður ársins á Íslandi á árunum
1976 til 1979. Hreinn, sem er frá Hrófa-
bergi á Ströndum og gengur undir nafn-
inu Strandamaðurinn sterki, varð Evr-
ópumeistari árið 1977.
Áður en Hreinn fluttist til Egilsstaða
árið 1982 og tók við sundlaug bæjarins
ók hann strætisvögnum í Reykjavík í um
áratug. Þá hafði hann fengið brjósklos í
bak sem batt enda á keppnisferil hans.
„Ég fór í brjósklosaðgerð á Landspítal-
anum og sá bara sæng mína útbreidda;
nennti ekki í sama farið og flutti úr
bænum og austur,“ rifjar Hreinn upp.
Öll íþróttamannvirki Fljótsdalshéraðs
heyra undir Hrein í núverandi starfi.
Íþróttavellirnir munu fylgja honum
áfram í nýja starfið. Núverandi for-
stöðumannsstarf hans var auglýst til
umsóknar í vikunni og hann bíður eftir-
mannsins.
„Ég heyrði í þeim sem tekur við
umsóknum og það er þegar farið að
spyrjast fyrir um starfið,“ segir Hreinn,
sem aðspurður kveður mikla vinnu
fylgja forstöðumannsstarfinu.
„Þetta er eins og hjá bændunum; menn
þurfa alltaf að vera til taks allan sólar-
hringinn. Ekki einn einasta dag hef ég
getað leyft mér að kvarta undan því að
ég hafi ekkert að gera,“ segir Stranda-
maðurinn sterki, sem finnst áratugirn-
ir í sundlauginni hafa skotist hjá. „Ég
er orðinn hundgamall og búinn að vera
lengur en elstu menn muna – en samt
hefur þetta liðið nokkuð fljótt.“
gar@frettabladid.is
Strandamaðurinn sterki
hengir upp sundskýluna
Hreinn Halldórsson, sem eitt sinn varð Evrópumeistari í kúluvarpi, yfi rgefur forstöðu-
mannsstarfi ð í Sundlaug Egilsstaða eft ir 32 ár. Ný áskorun bíður Strandamannsins sterka.
Ekki einn einasta dag
hef ég getað leyft mér að
kvarta undan því að ég
hafi ekkert að gera.
Hreinn Halldórsson, forstöðumaður
íþróttamannvirkja í Fljótsdalshéraði
HREINN HALLDÓRSSON Strandamaðurinn
sterki yfirgefur sundlaugina sem hann hefur stýrt
í meira en þrjátíu ár. Hreinn tók sér sumarfrí í
gær en þá var síðusti dagur sumarsins.
MYND/HEIÐA MÁLFRÍÐUR