Fréttablaðið - 25.10.2014, Page 87
LAUGARDAGUR 25. október 2014 | MENNING | 59
„Við ræddum Illsku og þar með
töluðum við auðvitað mikið um
stöðuna í dag – þetta síversn-
andi ástand þar sem skandinav-
ísku popúlistaflokkarnir ná allt-
af meiri og meiri fótfestu,“ segir
Eríkur um efni umræðnanna í
Kulturhuset.
Eiríkur bjó bæði í Finnlandi og
Svíþjóð á meðan hann skrifaði
bókina og fylgdist með uppgangi
þjóðernisflokkanna Svíþjóðar-
demókratanna og Sannra Finna.
„Ég kom reyndar líka inn á mik-
ilvægi þess að hætta að tala um
popúlistaflokka, eiginlega – og
kalla spaðann bara spaða, þetta
eru nasistaflokkar,“ segir Eirík-
ur. „Jimmie Åkesson er miklu
nær mörgum framámönnum hins
eiginlega nasistaflokks en flestir
sósíaldemókratar samtímans eru
sósíaldemókrötum fjórða áratug-
arins. Þótt það séu líka mikilvæg
atriði sem skilja að, þá eru líka
mikilvægir þræðir sem sameina
þá. Í Danmörku vill Folkepart-
iet nú til dæmis útvista rekstri á
heimilum fyrir hælisleitendur og
flóttamenn til þriðja heimsins, að
hælisleitendur verði bara settir
beint upp í flugvél og svo geymd-
ir í Líbanon.
Þetta á sér nánast beina sam-
svörun í fangabúðum í Das Gen-
eralgouvernement. Nasistar lögðu
mjög hart að því að færa þetta allt
út úr Þýskalandi, svo þýska fólkið
þyrfti að verða sem minnst vart
við óhugnaðinn og ætti auðveld-
ara með að loka augunum. Svona
eins og við lokum augunum fyrir
því sem gerist í fataverksmiðjum
í þriðja heiminum.“
En telur Eiríkur viðbrögðin við
þessum flokkum hafa verið sam-
bærileg á milli Norðurlanda?
„Viðbrögðin hafa verið misjöfn á
milli landanna. Danir vildu taka
slaginn, ræða málin opið. Þar er
mikil virðing borin fyrir opnum
debatt, sem er þá oft kengrasísk-
ur líka. Svíar hafa viljað standa
fast á því að vissa hluti ræði
maður einfaldlega ekki – það
sé ekkert til umræðu að sumir
þjóðflokkar séu síðri en aðrir,
sem dæmi. En niðurstaðan hefur
verið sirka sú sama, að minnsta
kosti hvað varðar vöxt flokk-
anna.“ Eiríkur segist telja Fram-
sóknarflokkinn vera heldur ótýp-
ískan í þessum efnum. „Að það
skuli fyrst og fremst vera í höf-
uðborginni þar sem þeir finna
sér sóknarfæri er áhugavert.
Víðast hvar annars staðar eiga
flokkar af þessu tagi meira fylgi
að fagna á jaðarsvæðum.
Framsóknarflokkurinn flutti
inn þessa retórík meira og minna
óbreytta og skeytti henni inn í
stefnuskrána sína. Að „vernda
þjóðareinkennin“ og að múslim-
um fylgi einhver barbarismi. Að
þeir hugsi um að umskera börn,
plotta hryðjuverk og taka undir
sig heiminn, og þetta standi nú
allt í Kóraninum,“ segir Eiríkur.
„Svíþjóðardemókratarnir eru
stofnaðir upp úr félagsskap sem
beinlínis heitir Höldum Svíþjóð
sænskri, og þeir eru mjög upp-
teknir af sænskleikanum. En nú
er Jimmie Åkesson víst útbunn-
inn, hann hefur meldað sig inn
veikan næstu vikurnar. Í tilkynn-
ingunni segir að hann skilji ekki
hvers vegna honum líði svona
illa, þrátt fyrir stóran kosninga-
sigur. Hann fattar ekki að honum
líður illa vegna þess að hann er
nasisti.“
Hvernig kemur það til að rök-
semdirnar gegn íslam á Norður-
löndunum eru oft svo keimlíkar?
„Það er sýnt og sannað að fólk
óttast fyrst og fremst einhverja
óséða framtíð. Það óttast það
sem það hefur ekki upplifað. Sá
sem hefur séð unglingsstelpur í
hijab rífa kjaft eða frussa út úr
sér kóki í hláturskasti eða bara
hanga í Candy Crush í strætó
sér strax að þær eru bara alveg
eins og aðrar unglingsstelpur.
Fylgi nasistaflokkanna er mest á
svæðum þar sem ekki er mikið
um útlendinga,“ segir Eiríkur.
„Við óttumst ósýnileg skrímsli.
Kannski er þar komin skýring-
in á Framsóknarfylginu í RVK –
útlendingar á Íslandi eru mikið
til einmitt frekar ósýnilegir.
Ísland er hvítasta land í heimi.
Það vita allir að það er mikið
af útlendingum í Reykjavík, en
maður verður ekkert gríðarlega
var við þá.
Þessi retórík sigtar inn á það
– að lýsa annars vegar mögu-
legri ömurlegri framtíðarsýn og
hins vegar einhverju sem ger-
ist á bak við luktar dyr. Að lýsa
því sem við sjáum ekki og vitum
ekki. Það getur enginn haldið
því fram að verði byggð moska
í Reykjavík muni aldrei verða
skipulögð hryðjuverk þar, því það
er ekki til nein moska og fram-
tíðin er algjörlega óráðin. En svo
þarf heldur enginn að færa rök
fyrir því hvers vegna það sé ekki
hætta á því að fólk skipuleggi
hryðjuverk á Mokka.“
thorduringi@frettabladid.is
Ísland er hvítasta
land í heiminum
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl var staddur í Kulturhuset í Stokkhólmi í
síðustu viku. Þar ræddi hann um bók sína Illsku, sem tilnefnd er til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs í ár, og uppgang þjóðernisfl okka í Skandinavíu.
EIRÍKUR ÖRN Kýs að kalla þjóðernisflokkana nasistaflokka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Svíþjóðardemókrat-
arnir eru stofnaðir upp
úr félagsskap sem bein-
línis heitir Höldum
Svíþjóð sænskri.
Saga sem
sprengir upp
íslenskan
samtíma
ÓKEYPIS AÐGANGUR
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 28. OKTÓBER KL.12:15
SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR
SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
PÍANÓ
ALABIEFF - BELLINI - VERDI
BLÓM OG
NÆTURGALAR