Fréttablaðið - 25.10.2014, Síða 90
25. október 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
LAUGARDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.00 Tónleikar Gunnars Guðbjörnsson-
ar óperusöngvara og Jónasar Ingimund-
arsonar píanóleikara í Hömrum í dag. Á
tónleikunum munu þeir flytja norræn
sönglög eftir Jean Sibelius, Oskar Merik-
anto, Edvard Grieg og fleiri. 2.500 krónur
inn, 2.000 fyrir lífeyrisþega en ókeypis
fyrir skólafólk 20 ára og yngra.
17.00 Anna Jónsdóttir sópransöngkona
fagnar útkomu plötunnar Vár með tón-
leikum í Ásmundarsafni í dag.
20.00 The Bootleg Beatles, tribjút-
sveitin treður upp í Háskólabíói í kvöld.
Miðar frá 6990 krónum.
21.00 Hrútaþukl treður upp á Kexi
Hosteli í kvöld.
21.00 DJ GLM spilar á Prikinu í kvöld.
21.00 Halli spilar með Jazzsveit sinni á
Café Rósenberg í kvöld.
21.00 Popprokksveitin 7-9-13 treður
upp á Hressingarskálanum í kvöld.
21.00 Mosi Music spilar á Dillon í
kvöld.
22.00 Sveitin Autonomous spilar á Café
Haíti í kvöld. 1.000 krónur inn.
22.00 Rokkararnir í Agent Fresco
troða upp á Húrra í kvöld. Einnig koma
fram sveitirnar Fufanu og CeaseTone,
og síðan mun DJ Óli Dóri þeyta skífum.
1.500 krónur inn.
22.00 Skálmöld treður upp á Gauknum
í kvöld.
Fræðsla
14.00 Í dag verður taílensk tunga og
menning í brennidepli í Café Lingua,
sem að þessu sinni fer fram í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi. Meðal þess
sem verður á boðstólum er taílenskur
matur og uppskriftir, litríkur dans og
lifandi tónlist, sýning á þjóðbúningum
og ávaxta- og grænmetisskurður.
Viðburðurinn er í umsjón félagsins
Taílensk samvinna. Enginn aðgangseyrir
og allir velkomnir.
Ópera
20.00 Don Carlo verður flutt í Hörpu
í kvöld. Óperan er sungin á ítölsku en
með íslenskum texta. Miðar frá 2.500
krónum.
Sýningar
14.00 Sýningin Land fyrir stafni opnuð
í dag á Minjasafninu á Akureyri.
Kvikmyndir
13.30 Í tilefni af sýningunni Stelpu-
menning verður kvikmyndin Drottning
Versala eftir Lauren Greenfield sýnd í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag og á
morgun. Athugið: takmarkaður sæta-
fjöldi.
Uppistand
20.00 Annar dagur Reykjavík Comedy
Festival fer fram í Hörpunni í dag. New
York’s Funniest koma fram, þeir Andrew
Schulz, Ricky Valez og James Adomian.
Þorsteinn Guðmundsson hitar upp.
Tónlist
21.00 DJ SimSimma spilar á Frederik-
sen Ale House í kvöld.
21.00 Trúbadorinn Ellert spilar á
English Pub og síðan spilar tvíeykið
Hjálmar & Dagur.
21.00 DJ Herr Gott spilar á
Boston í kvöld.
21.00 Benni B-Ruff og DJ Koc-
oon þeyta skífum á Dollý í kvöld.
21.00 DJ KGB spilar á efri hæð
Palóma en DJ Atli Kanill spilar á
neðri hæð.
23.00 DJ Steindór Jónsson
spilar á Kaffibarnum í kvöld.
23.30 DJ Styrmir Dansson
spilar á Bravó í kvöld.
Fyrirlestrar
14.00 Fyrirlestur í
Sjávar minjasafni Íslands
um kanadíska stríðs-
bátinn Skeena sem
fórst hjá Viðey í seinni
heimsstyrjöld. Hægt
verður að skoða ljós-
myndir af atburðinum.
Myndlist
14.00 Einkasýning Daníels Björnssonar
opnar í Kling og Bang á Hverfisgötu í
dag. Sýningin fjallar um málminn
bismuth.
15.00 Þorsteinn Helgason
opnar einkasýningu á nýjum
málverkum í Galleríi Fold í
dag. Þorsteinn hefur síðustu
tvo áratugi unnið með
abstrakt form, undir áhrifum
af franska skólanum sem
kom fram í París upp
úr miðri síðustu
öld. Áherslan er
á flæðið, bæði
í pensilskrift
og myndbygg-
ingu, með
ágengum
litasam-
setningum
og allt að
því geó-
metrískum
formum.
16.00 Mynd-
listarsýning
Guðlaugs
Bjarnasonar í Listhúsi Ófeigs opnuð í
dag. Við sýningaropnun verður frum-
flutt tónverkið Íshljómar eftir Ingi-
björgu Azimu fyrir fjórar básúnur og
söng sem Magga Stína sér um.
17.00 Sýningin 700IS Hreindýralands
opnar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í
dag.
Markaðir
13.00 Start-up markaður á Kaffistof-
unni á Hverfisgötu. Listamenn mark-
aðarins þetta skiptið eru Borghildur
Tumadóttir, Elísabet Birta Sveinsdóttir,
Fritz Hendrik IV, Gísli Hrafn Magnússon,
Guðrún Heiður Ísaksdóttir, Guðrún
Tara Sveinsdóttir og Harpa Finnsdóttir.
Stendur fram á kvöld.
Dans
18.30 Götudanseinvígi í íþróttahúsi
Seljaskóla. Keppendur mæta klukkan
15:00 en forkeppni hefst klukkan 16:00.
Hinn heimsfrægi dansari Henry Link
mun dæma í keppninni. 1.500 krónur
inn.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is
25. OKTÓBER
BOOTLEG BEATLES
AGENT FRESCO
Í tilefni hrekkjavökunnar ætla
Hafnfirðingar að halda íslenska
hrekkjavökugleði í miðbæ Hafnar-
fjarðar dagana 29. okt. til 2. nóvem-
ber. Menningar- og listafélag
Hafnarfjarðar ásamt Miðbæjarsam-
tökunum, Firði verzlunarmiðstöð,
Bókasafni Hafnarfjarðar, Hafn-
arborg, Leikfélagi Hafnarfjarð-
ar, Pólska menningarsambandinu
og Alþjóðaskólanum hafa tekið sig
saman og ætla að halda hátíðina.
Gleðin byrjar í Bæjarbíó á mið-
vikudeginum með pólskri drauga-
sögustund og íslenskri draugamynd
um kvöldið. Á fimmtudagskvöld
verða meðal annars hryllingsmynd-
ir sýndar í Bæjarbíói og á föstudeg-
inum verður meðal annars lesið
upp úr draugasögum í Bókasafni
Hafnarfjarðar. Á laugardeginum
verður miðbærinn undirlagður af
börnum og foreldrum í Nornaleit,
sem er stafa- og vísbendingaleikur.
Draugadiskó hefst kl. 16 og stend-
ur til 19.00, auk þess sem hryllings-
myndir verða sýndar í Bæjarbíói frá
morgni til kvölds. - fb
Hrekkjavökugleði
haldin í Hafnarfi rði
Nornaleit, hryllingsmyndir og draugadiskó í boði.
BÆJARBÍÓ Þétt
dagskrá verður
í Bæjarbíói í
Hafnarfirði á
hrekkjavöku-
gleðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VAR - Útgáfutónleikar
Anna Jónsdóttir
syngur íslensk þjóðlög.
Ásmundarsafn,
laugardaginn 25.október kl. 17:00
Akranesviti,
sunnudaginn 26.október kl. 15:00
Gestur: Svavar Knútur.