Fréttablaðið - 25.10.2014, Page 112
NÆRMYND
Heimir
Hallgrímsson
annar tveggja þjálfara íslenska
A-landsliðs karla í knattspyrnu
og sjálfstætt starfandi tann-
læknir í Vestmannaeyjum.
ALDUR 47 ára
MAKI Íris Sæmundsdóttir
BÖRN Hallgrímur og Kristófer
Í vikunni bárust þau tíðindi að Ísland væri
í 28. sæti á styrkleikalista Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, FIFA. Sigrarnir í Lett-
landi og Hollandi fyrr í mánuðinum fleyttu
liðinu upp um sex sæti. Þetta er í fyrsta
skipti sem liðið er efst Norðurlandaþjóða
á listanum.
„Heimir er mjög skipulagður og
vandvirkur og skemmtilegur að vinna
með. Hann er metnaðarfullur og
vill leita leiða til að bæta
sig og aðra. Sínar bestu
hugmyndir virðist hann
fá í baði enda er hann
iðulega á leiðinni í bað, í
baði eða nýbúinn í baði.“
Gunnar Gylfason,
samstarfsmaður
hjá KSÍ
„Heimir er mjög metnaðarfullur,
vinnusamur og gerir kröfur.
Hann hefur ótrúlega mikla
þekkingu á öllu sem við-
kemur fótbolta. En fyrst
og fremst er hann frábær
persóna og góður vinur.“
Gunnar Leifsson,
æskuvinur úr
Eyjum
„Ég á fjóra bræður og hinir verða
ábyggilega brjálaðir ef ég segi að hann
sé besti bróðir minn– sem hann er.
Hann var ljúfur og þægur sem barn og
er enn þá sami gæðadrengurinn. Einu
skiptin sem hann er ekki í góðu skapi
er þegar hann tapar fótboltaleik, þá er
ég ekkert að reyna að
tala við hann. Heimir
er mikill húmoristi
og skemmtilegur
og honum hefur
vegnað mjög
vel í lífinu.“
Jónína
Hallgríms-
dóttir
systir
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
ht.is
Næsta bylgja
sjónvarpa
er komin
með Android