Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 4
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Maður fær engin svör ef maður spyr Tollinn. Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður Pírata. STJÓRNMÁL „Það er alls konar fólk sem er að lenda í að það er alltaf verið að gramsa í sendibréfum þess,“ segir Birgitta Jónsdóttir Pírati sem lagt hefur fram fyrir- spurn á Alþingi til fjármálaráð- herra um opnun sendibréfa. Birgitta kveðst fá mikinn póst að utan og iðulega lenda í því að hann hafi verið opnaður áður en hann berst til hennar. Svipað gildi um son hennar. Birgitta nefnir sem dæmi konu frá Bandaríkjunum sem hafi haft við hana samband. „Hennar bréf eru alltaf opnuð. Hún hefur engin fíkniefnatengsl eða þvíumlíkt – það eru engar skýringar.“ Fyrirspurn Birgittu er lögð fyrir fjármála- og efnahagsráð- herra. Meðal annars er spurt hversu oft á árunum 2005 til 2013 stjórnvöld eða einhver í þeirra umboði hafi opnað sendibréf til og frá Íslandi og bréf sem send eru innanlands án þess að það hafi verið hluti af rannsókn saka- máls og í hversu mörgum af þeim tilfellum var beðið um dómsúr- skurð fyrir opnuninni. „Telur ráðherra að það verklag sem viðhaft er við opnun bréfa- sendinga uppfylli kröfur 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs?“ er lokaspurningin í fyrirspurn Birgittu. „Maður fær engin svör ef maður spyr Tollinn,“ segir Birg- itta sem kveður alls kyns send- ingar til sín vera opnaðar, jafnvel þótt þær séu augljóslega ekki í gegnum söluvefi á borð við Ama- zon. Þessu fylgi óþægindi. „Maður þarf að gefa þeim heimild til að opna til að leita að reikningi. Ég er búin að gera sjálfvirkt bréf, sem ég sendi allt- af, um að þeir megi opna allan póstinn minn. Þetta er náttúrlega fáránlegt.“ Birgitta undirstrikar að það sé hins vegar ekki sjálfrar henn- ar vegna sem hún setur fyr- irspurnina fram. „Ég veit að margir mótmælendur og aðgerða- sinnar hafa upplifað þetta áður en fólk fór að kaupa svona mikið í gegnum Amazon og Ali Express. Mér fannst þeir ganga mjög langt eftir að fólk fór að kaupa af Ama- zon. Þá var eins og það væri í lagi að opna allt,“ segir þingmaður- inn. Málið segir Birgitta skipta sérstaklega miklu eftir að sam- antekt um aðgerðir lögreglunn- ar við mótmæli á hrunárunum var opinberuð. „Það er ótrúleg lesning vegna þess hversu langt er gengið í að leggja sumt fólk í einelti. Það er eins og hægt sé að afnema öll borgaraleg réttindi fólks út af stjórnmálaskoðunum eða vegna þess hvernig það lítur út.“ gar@frettabladid.is Ráðherra spurður um opnun á sendibréfum Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, leggur fram fyrirspurn á Alþingi um opnun stjórnvalda á sendibréfum. „Mér fannst þeir ganga mjög langt eftir að fólk fór að kaupa af Amazon. Þá var eins og það væri í lagi að opna allt,“ útskýrir Birgitta. BIRGITTA JÓNSDÓTTIR Segir ekki síst mikilvægt í ljósi samantektar lögreglu um mótmæli að varpa ljósi á opnun stjórnvalda á sendibréfum almennings. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL Gjaldþrotum einka- hlutafélaga hefur fækkað um 17 prósent þegar bornir eru saman síðustu tólf mánuðir, frá október 2013 til september 2014, við mán- uðina tólf þar á undan. Fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands að alls hafi 822 fyrirtæki verið tekin til gjald- þrotaskipta á tímabilinu. „Gjald- þrotum í flokknum Upplýsingar og fjarskipti hefur fækkað mest, eða um 31 prósent á síðustu tólf mán- uðum,“ segir þar. - óká Samdrátturinn 17 prósent: Færri fyrirtæki gjaldþrota í ár Starfssvið 2012/2013 2013/2014 Landbúnaður 32 26 Framleiðsla 52 62 Byggingarstarfs. 193 160 Heild- og smásala 201 143 Flutn. og geymsla 31 30 Gisti- og veitingast. 68 65 UT og fjarskipti 51 35 Fjármálastarfsemi 89 63 Fasteignaviðskipti 119 94 Sérfræðistarfsemi 66 63 Leigustarfsemi ofl. 32 29 Alls 990 822 Heimild: Hagstofa Íslands ➜ Gjaldþrot okt.-sept. VIÐSKIPTI Hagnaður VÍS á þriðja ársfjórðungi dregst saman um 52 prósent miðað við sama tímabil í fyrra, sam- kvæmt uppgjöri sem birt var í gær. Hagnað- ur nú var 454,9 milljónir króna, samanborið við 948,8 milljónir þá. Breytingin fyrstu níu mán- uði ársins er svo öllu meiri, 905,8 milljóna hagn- aður, samanborið við rúma tvo milljarða í fyrra. Iðgjöld á þriðja fjórðungi námu 11,9 milljörðum, en voru 12 milljarðar á sama tíma í fyrra. Sagt er í tilkynningu frá Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, for- stjóra VÍS, að tjónaþungi hafi verið talsverður, bæði hafi tjónum fjölg- að og svo hafi stórtjón í júlíbyrjun áhrif. Þá varð stórbruni í Skeifunni í Reykjavík. - óká Tjónaþungi talsverður: Hagnaður VÍS helmingi minni SIGRÚN RAGNA ÓLAFSDÓTTIR Liður 3F2013 3F2014 Breyting Tekjur 5.005 4.715 -5,8% Hagnaður 949 455 -52,1% Eignir 46.253 47.274 +2,2% Eigið fé 16.624 15.392 -7,4% Skuldir 29.630 31.882 +7,6% *Upphæðir í milljónum króna. ➜ Úr uppgjöri VÍS* NOREGUR Norski herinn ákvað í september síðastliðnum að norsk- ir ríkisborgarar af erlendum upp- runa sem tengjast löndum sem Noregur á ekki í samstarfi við um öryggismál skyldu ekki gegna herþjónustu. Samkvæmt frásögn Klassekampen fengu 1.000 manns bréf þess efnis í haust. Ekkert samráð mun hafa verið haft við varnarmálaráðherra Noregs, Ine Eriksen Søreide, um málið. - ibs Ákvörðun norska hersins: Útlendingar ekki í herinn VIÐSKIPTI Eftir skatta nemur hagn- aður Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi 2014 85,8 milljónum Bandaríkjadala, eða sem svarar 10.464 milljónum íslenskra króna. Miðað við sama tíma í fyrra eykst hagnaðurinn um 31,4 prósent, en þá var hann 65,3 milljónir dala, eða sem svarar tæpum átta milljörðum króna miðað við gengi dollars í gær. „Tæplega 970 þúsund farþegar ferðuðust með félaginu í fjórðungn- um og hafa þeir aldrei verið fleiri. Aukin umsvif í millilandaflugi ásamt mikilli fjölgun ferðamanna til Íslands höfðu jákvæð áhrif á aðra starfsemi samstæðunnar,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu til Kauphallar. Fram kemur að framboð í leiða- kerfi flugfélagsins hafi verið aukið um 19 prósent frá fyrra ári. Sæta- nýting er sögð hafa verið 84,2 pró- sent á fjórðungnum, um 0,7 prósent- um betri en á þriðja fjórðungi 2013. Hagnaður Icelandair Group fyrir vexti, skatta, afskriftir og niður- færslur (EBITDA) nam 123,9 millj- ónum dala (15,1 milljarði króna) samanborið við 102,2 milljónir dala (12,5 milljarða króna) árið áður. Fram kemur að heildartekjur félagsins hafi aukist um 13 prósent milli ára og að eiginfjárhlutfall félagsins hafi verið 46 prósent í lok september. Félagið gerir ráð fyrir tólf pró- senta aukningu í millilandaflugi á næsta ári. - óká Metfjöldi farþega með flugvélum Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi stuðlaði að bættri afkomu: Hagnaðurinn nam 10,5 milljörðum króna Fjárhagsliður 3F 2013 3F 2014 Breyting Rekstrartekjur 45.325 51.070 +12,7% Rekstrargjöld 32.856 35.959 +9,4% Hagnaður 7.966 10.464 +31,4% *Upphæðir í milljónum króna m.v. gengi dollars í gær. Úr árshlutauppgjöri Icelandair Group NORÐUR-KÓREA Leyniþjónusta Suður-Kóreu heldur því fram að svokallað Tarsal tunnel-heil- kenni hrjái Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu og hafi átt þátt í því að leiðtoginn hafi haldið sig fjarri sviðsljósinu í um fjörutíu daga. Tarsal tunnel-heilkenni orsakast af klemmdri taug í fæti og er því haldið fram að hann hafi gengist undir skurðaðgerð í september eða október. Í yfirlýsingu leyniþjónustunnar kemur fram að evrópskir læknar og sérfræðingar hafi gert aðgerð á fæti Kim. - glp Kim Jong Un í aðgerð á fæti: Kim er með klemmda taug 84 fjórhjól hafa verið flutt inn til landsins fyrstu níu mánuði ársins. 71% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ ht.is Næsta bylgja sjónvarpa er komin UMBOÐSMENN UM LAND ALLT AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK Philips Ambilight sjónvarp með Android stýrirkerfinu Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá HELGARSPÁIN er því miður ekki góð, en það verður hvöss norðaustanátt á landinu og úrkoma í allflestum landshlutum. Versta veðrið norðvestantil en á sunnudag verður víðast hvasst en léttir til syðra. Kólnar heldur eftir helgi. 3° 19 m/s 5° 19 m/s 8° 13 m/s 10° 18 m/s 10-20 m/s NV- og V- til, annars hægari. 10-18 m/s. Gildistími korta er um hádegi 13° 26° 6° 19° 17° 7° 16° 11° 11° 26° 19° 23° 23° 17° 16° 13° 13° 15° 8° 15 m/s 9° 13 m/s 4° 10 m/s 5° 15 m/s 1° 13 m/s 4° 15 m/s 1° 18 m/s 7° 4° 2° 0° 8° 6° 5° 3° 3° 0° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur SUNNUDAGUR Á MORGUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.