Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 94
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 58
„Þegar þú ferð á hátíð er ótrúleg
orka til staðar en þegar hátíðin klár-
ast fara allir heim og drifkrafturinn
hverfur,“ segir Scott Shigeoka. Hann
er einn skipuleggjenda hátíðarinnar
Saga Fest sem haldin verður í maí á
næsta ári. „Við viljum finna leiðir til
að beisla þessa orku.“
Um er að ræða tónlistar- og
listahátíð með sérstaka áherslu á
umhverfisvernd og sjálfbærni, en
sem dæmi verða aðgangsmiðarnir
prentaðir á sérstakan fræjapappír,
sem hægt verður að gróðursetja.
Staðsetning hátíðarinnar hefur ekki
verið staðfest en hún verður haldin
úti á landi.
Nafnið Saga Fest vísar í Íslend-
ingasögurnar. „Hátíðin snýst í kring-
um söguhefð og að deila sögum okkar
á milli. Sem dæmi um það munum við
safna litlum sögum og vinjettum frá
gestunum og síðan munum við bjóða
tónlistarmönnunum og listamönn-
unum sem koma að lífga þær við, til
dæmis í söng eða dansi,“ segir hann
og heldur áfram: „Við skoðum þessa
söguhefð tíundu og elleftu aldar og
það hvernig fólk settist í kringum eld-
inn og leysti vandamál samfélagsins
saman og hugsum: Hvernig komum
við saman og leysum vandamál eins
og loftslagsbreytingar eða samfélags-
leg vandamál?“ - þij
Hægt að gróðursetja miðann
Lista- og tónlistarhátíðin Saga Fest verður haldin úti á landi á næsta ári.
BEISLA HÁTÍÐARORKUNA Hátíðin
er með áherslu á umhverfisvernd og
sjálfbærni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Shawshank Redemption, klassík en
er bara eitthvað svo góð!
Svo verð ég líka að nefna Rent
og Prayers for Bobby, sérstaklega
þessa seinni, rosalega áhrifarík og
mikilvægur söguþráður.
Sandra Sigurðardóttir, markvörður íslenska
kvennalandsliðsins í fótbolta
BESTA BÍÓMYNDIN
María Guðrún Rúnarsdóttir ljósmyndari fékk einstakt
tækifæri upp í hendurnar á dögunum, þar sem hún fékk
tækifæri til að aðstoða við heimildarmynd um goðsögn
í ljósmyndaheiminum, Will McBride. Hún hefur starfað
sem ljósmyndari í sex ár, en býr nú í Berlín þar sem hún
stundar nám í ljósmyndun.
„Belgískur vinur minn, Jordan Todorov, sem ég
kynntist hérna úti, er leikstjóri. Hann er að gera mynd
um hann og bauð mér að vera með,“ segir María.
McBride, sem er 83 ára, var á sínum tíma mjög umdeild-
ur listamaður. „Hann tók frekar óvenjulegar myndir, en
þær voru aðallega af unglingsstrákum og voru þeir oft-
ast naktir. Myndirnar eru þó langt frá því að vera klám-
fengnar, þær eru mjög smekklegar. En á sínum tíma
voru þær mjög umdeildar,“ segir hún.
McBride fluttist ungur frá Bandaríkjunum til Þýska-
lands. Hann giftist fyrrverandi eiginkonu sinni árið
1960, en kom út úr skápnum nokkrum árum síðar. Verk
hans einkenndust af nekt og árið 1975 kom út bókin
Show Me! sem hann gaf út í samstarfi við geðlækninn
Helga Fleischhauer-Hardt. Fjallaði hún um börn sem
kynverur og var hún bönnuð í Bandaríkjunum, þar sem
hún var flokkuð sem barnaklám. McBride tók einnig
myndir af fólki í fötum, þótt nektin hafi vissulega átt
hug hans allan. „Það má eiginlega segja að hann hafi
verið með typpi á heilanum,“ segir María Guðrún.
Á tímabili bjó McBride með söngkonunni Donnu
Summ er, en þau voru miklir vinir. „Hann myndaði hana
mikið og líka Andy Warhol, en þeir voru góðir félagar
líka.“
María segir það mikinn heiður fyrir sig sem ljós-
myndanema að fá að taka þátt í svona verkefni. „Þegar
ég sagði kennaranum mínum frá þessu þá tók hún kast,
hún dauðöfundaði mig.“ Tökur á myndinni hófust á mið-
vikudag og eyddu María og leikstjórinn heilum degi með
McBride.„Hann er orðinn voða gamall og er alveg hætt-
ur að taka myndir. Núna málar hann málverk í staðinn.
Það kannski lýsir honum vel, en þó hann sé orðinn svona
gamall og geti varla gengið, þá á hann enn elskhuga,“
segir María Guðrún. adda@frettabladid.is
Gerir heimildarmynd
um goðsögnina sína
Ljósmyndarinn María Guðrún Rúnarsdóttir sem býr í Berlín tekur þátt í að gera
heimildarmynd um ljósmyndarann og listamanninn Will McBride. Hann var á
sínum tíma mjög umdeildur en hans aðalmyndefni voru naktir unglingsstrákar.
DRAUMAVERKEFNI María Guðrún er mikill aðdáandi McBride
og segir mikinn heiður að taka þátt í gerð myndarinnar.
„Þetta var ótrúlega gaman,“
segir tónlistarmaðurinn Birgir
Steinn Stefánsson, sonur söngv-
arans Stefáns Hilmarssonar.
Hann syngur lag á nýrri jóla-
plötu föður síns, Í desember, sem
kemur út 10. nóvember. Þetta er í
fyrsta sinn sem hann syngur inn
á plötu hjá pabba sínum.
Lag Birgis Steins kallast Ég
þarf ekki margt um jólin, við
texta Stefáns en það heitir á
frummálinu I Don’t Want a Lot
For Christmas og var sungið af
Michael Bublé. „Þetta er ótrúlega
flottur texti sem honum tókst að
gera og það eru mjög flottir tón-
listarmenn sem spila í laginu.“
Stefán sló í gegn hér á árum
áður með lagi Sniglabandsins,
Jólahjól. Spurður hvort nýja
jólalagið muni toppa þann gamla
slagara efast Birgir Steinn um
það.
„Jólahjól er svo mikill smell-
ur að ég held að það sé erfitt að
toppa það og eiginlega bara ekki
hægt. Það var bara virkilega
gaman að fá að vera með í þessu
skemmtilega verkefni,“ segir
Birgir Steinn, sem mun syngja á
jólatónleikum föður síns í Saln-
um 5., 6. og 11. desember.
- fb
Í fyrsta sinn á jólaplötu pabba
Birgir Steinn Stefánsson syngur á væntanlegri jólaplötu Stefáns Hilmarssonar.
BIRGIR STEINN Er mjög ánægður með
textann sem pabbi hans samdi fyrir
lagið Ég þarf ekki margt um jólin.
LJÓSMYNDARINN
WILL MCBRIDE er
hættur að taka ljós-
myndir og málar
málverk í staðinn.
MYND/MARÍA
GUÐRÚN RÚNARSDÓTTIR
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477
Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Frábært verð!
5 svæða skipt
yfirdýna.
Laserskorið
Conforma Foam
heilsu- og hæg-
inda lag tryggir
réttan stuðning við
neðra mjóbak og
mýkir axlasvæði.
Vandaðar
kantstyrkingar.
Vandað
pokagormakerfi.
Minni hreyfing
betri aðlögun.
Slitsterkt og mjúkt
bómullaráklæði.
Þykkt 29 cm.
AÐEINS KRÓNUR
95.920
MEÐ AFSLÆTTI
GOLD120X200
AÐEINS KRÓNUR
122.320
MEÐ AFSLÆTTI
GOLD160X200
Dýna og
Tegund Stærð Classic-botn TILBOÐ
Gold 90x200 96.900 kr. 77.520 kr.
Gold 100x200 104.900 kr. 83.920 kr.
Gold 120x200 119.900 kr. 95.920 kr.
Gold 140x200 139.900 kr. 111.920 kr.
Gold 160x200 152.900 kr. 122.320 kr.
Gold 180x200 164.900 kr. 131.920 kr.
AUKAHLUTIR Á MYND:
GAFL OG FERKANTAÐAR
ÁLLAPPIR
BETRA BAK
Á R A A F
M Æ L I
20%
AFSLÁTTUR AF
HEILSURÚMUM
HEILSURÚM Í SÉRFLOKKI
C&J GOLD heilsurúm
Jólahjól er svo
mikill smellur að ég held
að það sé erfitt að
toppa það og eiginlega
bara ekki hægt.