Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 96
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Er þetta frétt?
2 Hvers vegna raka konur sig að
neðan?
3 Fæðingarbletturinn á rassinum rey-
ndist vera geirvarta
4 Markaðssetning Securitas vekur ótta
á Suðurlandi
5 Húsráð Vísis: Snjallræði til að loka
plastpokum
*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðis-
aukaskatt af söluverði. 20,32% afslátturinn
er alfarið á kostnað DORMA.
Ekki
missa
af
þessu
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Íslensk dansmynd
tilnefnd til verðlauna
Íslenska dans-stuttmyndin Requiem
eftir parið Marinó Thorlacius og
Sigríði Soffíu Níelsdóttur hefur
verið valin til sýninga á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni Aesthetica Short
Film Festival, sem haldin verður í
York á Bretlandi 6. til 9. nóvember
næstkomandi. Myndin
er þar að auki tilnefnd
til verðlauna á há-
tíðinni, þar á meðal
sem besta myndin.
Marinó og Soffía
komast því miður
ekki á hátíðina
þar sem þau
eignuðust
dóttur fyrr í
mánuðinum.
- asi
LJÓS OG PERUR
Á VERÐI FYRIR ÞIG
Í BLAÐINU Í DAG
Ekki við eina fjölina felldur
Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórs-
son er svo sannarlega ekki við eina
fjölina felldur því hann býður nú upp
á matarblogg á Facebook-síðu sinni.
Í gær birti hann til að mynda
gómsæta uppskrift að pastarétti með
risarækjum og lét hann myndir fylgja
svo ekkert færi á milli mála.
„Það er ekkert planað svo sem, ég
var bara svo glaður þegar ég sá hvað
þetta var flottur réttur. Ég er alveg
vís til að gera þetta af og til,“ segir
Stefán Máni spurður út í hvort hann
ætli sér að vera virkur matarbloggari
í framhaldinu.
Stefán Máni sem er líklega
best þekktur sem rit-
höfundur segist vera
nokkuð lipur í eld-
húsinu. „Ég er fínn
kokkur þegar ég gef mig
í það og fæ mikið út
úr því. Ég hef gaman
af þessu,“ segir
Stefán Máni um
færnina í eld-
húsinu.
- glp
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja