Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 84
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 48
Hólmfríður Þorgeirsdóttir og
Kristín systir hennar eru búsettar
á Akureyri og hafa haldið upp á
hrekkjavökuna í fimm ár. „Þetta
byrjaði þannig að frænka okkar
sem býr fyrir sunnan var alltaf
að bjóða okkur í hrekkjavökupartí
og okkur fannst svo leiðinlegt að
komast ekki. Svo við tókum málin
í okkar hendur og héldum okkar
eigið,“ segir Hólmfríður.
Þær systur hafa yfirleitt leigt
sal undir herlegheitin, en í ár ætlar
Hólmfríður að bjóða heim til sín
í nýja húsið sitt. „Þetta byrjaði
með frekar litlu partíi, en síðan
hefur þetta vaxið með árunum.
Við skreytum alltaf rosalega mikið
og erum búnar að safna að okkur
miklu af skrauti, og að sjálfsögðu
reynum við að hafa þetta eins
skelfilegt og mögulegt er,“ segir
hún.
Með árunum fóru gestir að
leggja meiri og meiri metnað í bún-
ingana. „Við létum búa til farand-
bikar fyrir besta búninginn, sem
er hnífur sem er búið að stinga
í trékubb og er allur í blóði. Það
vekur mikla lukku.“ En af hverju
halda þær upp á hrekkjavökuna?
„Fyrir okkur er þetta bara einn
eitt tækifærið til þess að skemmta
sér og hafa gaman. Margir eru á
móti því að þetta sé hér og segja
þetta bara amerískt sölutrikk. Von-
andi muna þeir að einu sinni var
enginn rauðklæddur jólasveinn á
jólunum,“ segir Hólmfríður.
Konráð Sigurðsson hefur síð-
ustu fjögur ár haldið hrekkjavöku-
partí sem hann kallar „Sláturhús
Konna.“ „Vinkona mín var alltaf
með svona partí, en svo flutti hún
úr bænum svo ég tók bara við
keflinu.“
Partíið er haldið í stórum sal og
skreytir Konni hann eins mikið
og hann getur. „Ég hef oftast sett
dúka með blóðslettum á veggina og
boðið upp á puttamat, sem er eins
og fingur,“ segir hann. Í fyrra fór
hann huldu höfði mestan hluta af
partíinu og klæddi son sinn upp
sem sjálfan sig. Við innganginn
hafði hann komið fyrir dúkku
sem var eins og djöflabarn,
sem skynjaði ef einhver labb-
aði fram hjá og þá öskraði
það og sneri höfðinu. „Dúkk-
unni var svo stolið í part-
íinu um kvöldið. Við fórum
svo í bæinn og þá sá vinkona
mín einhvern með dúkkuna á
English Pub. Hún reif dúkk-
una af viðkomandi og kom henni
til mín. Ég eyddi svo restinni af
djamminu með öskrandi djöfla-
barn í höndunum. Það var nokkuð
fyndið,“ segir Konráð. En hvers
vegna heldur hann upp á hrekkja-
vökuna? „Mér finnst þetta bara
skemmtilegt tækifæri fyrir fólk
til þess að gera eitthvað skemmti-
legt og vera öðruvísi.
adda@frettabladid.is
HREKKJAVAKAN
Hrekkjavakan er í kvöld og má búast við að sjá margar skelfi legar furðuverur á
ferli um helgina. Margir eru á móti því að fá þessa amerísku hefð til landsins.
Aðrir fagna tækifærinu til að hafa gaman og nota hugmyndafl ugið í að útbúa
fl otta og skemmtilega búninga. Fréttablaðið talaði við þau Konráð Sigurðsson
og Hólmfríði Þorgeirsdóttur en þau halda upp á hrekkjavökuna með stæl.
FER ALLA LEIÐ Hólmfríður tekur búningagerðina alla leið
MYND/EINKASAFN
SKELFILEGUR Konráð með djöflabarnsdúkkuna sem vakti
mikla lukku MYND/EINKASAFN
BÚNINGAHUGMYNDIR
Handa þeim sem ekki vita hvað þeir ætla að vera í kvöld fann
Fréttablaðið nokkrar góðar hugmyndir innblásnar af árinu 2014.
PHARRELL WILLIAMS Á GRAMMY-
VERÐLAUNUNUM Það eina sem þú
þarft er hattur sem hefur sitt eigið póst-
númer og dökkur andlistfarði. Svo væri
ekki verra að dusta rykið af danshæfi-
leikunum í leiðinni.
SHIA LABEOUF Á FRUMSÝNINGU
NYMPHOMANIAC Þeir sem eru
hugmyndasnauðir hafa enga afsökun
lengur. jakkaföt og brúnn bréfpoki yfir
höfuðið. Svo er um að gera að leika sér
með það að enginn þekki þig.
EMOJI Þeir sem hafa einhvern tíma
sent sms eða kommentað á Instagram
þekkja þessi merki. Möguleikarnir eru
endalausir og nú er um að gera að
sleppa hugmyndafluginu lausu.
LUIS SUÁREZ OG BITIÐ Án þess að
vilja hvetja til þess að bíta aðra þá
er þetta hugmynd sem má vinna
með. Rétt útfærsla og þú verður sá
skelfilegasti í partíinu! Drakúla hvað?
KIM KARDASHIAN OG FJÖLSKYLDA
Hin nýja Addams-fjölskylda? Foreldrarnir
sem Kanye og Kim og barnið sett í svart.
þau geta að minnsta kosti verið svolítið
skelfileg. Veldu þér uppáhaldsmeðlim í
Kardashian-klaninu og taktu skrefið.
MJÓLK
D-vítamínbætt
léttmjólk í Jack
Daniels-
umbúðum
jafnvel?
Eftir alla
Mjólkursam-
söludrama-
tíkina þá
er fátt
hræðilegra
en mjólkur-
ferna. Verið
hrædd –
mjög hrædd.
BEYONCÉ OG
JAY Z Í
LYFTUNNI
Þetta gæti verið
skemmti-
legt.
upplagt
fyrir þá
sem
elska
að
fara
í kar-
akter.
Græjið
lyftu
og túlkið
tauga-
titrandi
lyftu-
rifrildið á
ykkar hátt.
BÁRÐARBUNGA OG KRISTJÁN MÁR
Hinn fullkomni parabúningur. Eldgosið
óútreiknanlega og Kristján Már í gula
vestinu. Þetta er hugmynd sem getur
ekki klikkað.
GGG er myndlistarsýning þar sem
um þrjátíu myndlistarmenn sýna
verk tileinkuð þremur ástsælustu
kvikmyndaverkum níunda áratug-
arins. Gremlins, Goonies & Ghost-
busters.
Sýningin verður opnuð í Bíói
Paradís á hrekkjavökunni, eða í
dag, og stendur yfir í tvær vikur.
Bíóið mun auk þess taka hina heil-
ögu þrenningu til sýninga í tilefni
hrekkjavökunnar. Gremlins verður
sýnd kl. 18, The Goonies kl. 20 og
Ghostbusters verður sýnd kl. 22.
Á meðal listamanna sem taka þátt
í sýningunni eru Curver Thorodd-
sen, Davíð Örn Halldórsson, Hall-
dór Baldursson, Hugleikur Dags-
son, Lóa Hjálmtýsdóttir, Þórir Karl
Bragason Celin, Julia Mai Linnéa
Maria og Sara Riel.
Þrjátíu sýna á GGG
Myndlistarsýning tileinkuð ástsælum kvikmyndum.
GREMLINS
#BYLGJANBYLGJAN989
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
ÍVAR
GUÐMUNDS
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 10:00 - 13:00ALLA VIRKA DAGA