Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 42
8 • LÍFIÐ 31. OKTÓBER 2014
Þ
ekkingarleitin mín óendanlega hefur
síðustu árin alfarið beinst að hollustu
og heilsufarslegri uppbyggingu og
ég verð sífellt gagnteknari af krafta-
verkum náttúrunnar. Stundum verð
ég svo uppfull af innblæstri og eldmóði að
mér finnst ég ekki vera í rónni fyrr en mér
tekst að deila uppgötvunum mínum og ný-
fundinni þekkingu með sem flestum,“ segir
Sæunn, sem opnaði nýverið heimasíðuna
hugmyndir adhollustu.is. Þar deilir hún með
lesendum sínum uppskriftum og ýmsum
hugmyndum að hollari lífsstíl. Vefurinn
hefur vakið góð viðbrögð, en hugmyndin að
síðunni fæddist þegar fólk leitaði til Sæunn-
ar í auknum mæli í von um góð ráð og aðstoð
varðandi betri heilsu.
„Ég hafði glímt við alvarlegt mígreni frá
barnsæsku sem hamlaði mér mikið og þjáð-
ist einnig af miklum stoðkerfisverkjum.
Þegar ég breytti um mataræði varð allsherj-
arbylting á minni líðan. Mígrenið fór, stoð-
kerfisverkirnir löguðust og ég varð miklu
hressari og glaðari manneskja. Það sem
fylgdi svo í kjölfarið var aukinn áhugi og
forvitni annarra um matinn sem ég borða
og mér finnst ánægjulegt að fá tækifæri til
að stuðla að bættum lífsgæðum fleiri. Einn
stærsti drifkrafturinn í öllu því sem ég
geri er sterk þörf fyrir að breyta heiminum
og hjálpa sem flestu fólki að ganga í fyrir-
hafnarlaust samband við hollustu svo það
geti beint kröftum sínum að verðugri verk-
efnum en að berjast við sjálft sig og matar-
samviskubitið alla daga,“ útskýrir hún og
segist oft velta því fyrir sér hvernig heim-
urinn væri ef enginn hefði áhyggjur af pró-
teinhlutföllum, fitusýrum, chia-fræjum eða
mittismælingum og hversu mikill sköpunar-
kraftur myndi losna úr læðingi.
„Hollustan er nefnilega svo einföld og
fyrir hafnarlaus þegar maður leyfir inn-
sæinu að yfirgnæfa óminn frá skyndilausna-
loforðum og niðursoðnum heilsurannsóknar-
fréttum, og þegar líkaminn er vel nærður
eru talsvert meiri líkur á að heilsan sjái um
sig sjálf,“ útskýrir hún.
Sumarfrí var kveikjan
„Þeir sem umgangast mig eitthvað að ráði
verða því stundum fyrir handahófskenndum
fróðleiksræðum um hollustu!“ segir Sæunn
létt í bragði.
Upphafið að netævintýri Sæunnar var
sumarið 2014 þegar hún var í sumarfríi
með fjölskyldunni og ákvað að birta mynd-
ir á Instagram af öllu sem hún borðaði í eina
viku, vinum sínum til fróðleiks og innblást-
urs. „Áður en vikan var liðin var ég búin
að opna Facebook-síðuna mína, Hugmynd-
ir að hollustu, til að halda utan um uppskrift-
ir sem þessu tengdust og áður en ég vissi af
voru mörg þúsund manns farnir að fylgj-
ast með. Ég fékk mikla hvatningu, hrós og
fyrir spurnir og um ári eftir að ég byrjaði
með Face book-síðuna var ég reglulega farin
að fá þakkir frá fólki fyrir að hafa hjálpað
því að gera jákvæðar breytingar á mataræði
sínu og heilsu – jafnvel þótt ég þekkti sumt
þeirra ekki neitt. Sú vitneskja að þetta tóm-
stundagaman mitt hefði raunveruleg áhrif
á fólk varð mér svo hvatning til að setja
uppskriftirnar saman á aðgengilegri hátt
svo ég opnaði vefsíðuna í september síðast-
liðnum.“
Sæunn segist fylgjast með fjölmörgum
heilsusnillingum á netinu og fá innblástur
úr öllum áttum. „En sú aðferð sem ég nota
einna mest við að þróa uppskriftir eða auka
fjölbreytni í eldamennskunni, er að velja
mér ákveðið hráefni og vinna með það. Þá
les ég til dæmis fjölda greina um viðkom-
andi hráefni, skoða ógrynni uppskrifta þar
sem það er í aðalhlutverki, fer svo inn í eld-
hús og læt andann koma yfir mig. Stundum
vel ég hráefni sem lítur óvenjulega vel út í
grænmetisborðinu úti í búð og stundum er
þetta eitthvað sem ég hef lesið um eða séð
girnilega uppskrift og ákveð að nördast dá-
lítið með í kjölfarið.“
Sæunn lýsir sér sem dæmigerðri íslenskri
konu í Hafnarfirði. Hún er 35 ára viðskipta-
fræðingur, með sex manna fjölskyldu og
eyðir dágóðum hluta frítíma síns í að nörd-
ast í heilsubókum, á næringarvefsíðum og
við eldhústilraunir.
Hin fullkomna megrun
„Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga
á því hvernig maturinn sem ég borða hefur
áhrif á líkama minn og líðan. Ég átti auðvelt
með að tengja saman hvernig það sem ég lét
ofan í mig varð hluti af mér sjálfri og fannst
það heillandi ferli. Ég hef tilhneigingu til að
sökkva mér á kaf ofan í þekkingarleit þegar
eitthvað vekur áhuga minn og ég hef varla
litið upp úr næringartengdum fróðleik síð-
ustu tvo áratugina!“
Hún segir þó upphaflega hvatann ekki
mjög göfugan. „Fróðleiksþorstinn kviknaði í
leit minni að hinni fullkomnu megrun. Ég var
afskaplega upptekin af holdafarslegum mark-
miðum og mér var nokkuð sama hvað þau
kostuðu mig fjárhagslega, líkamlega eða and-
lega. Ég las heilu doðrantana um hitaeiningar
og misgáfulegar megrunaraðferðir en smám
saman fór að renna upp fyrir mér ljós og ég
áttaði mig á að hollusta ætti ekki endilega
skylt við megrunarfæði,“ heldur hún áfram.
Það var svo ekki fyrr en fyrir um þremur
árum, þegar heilsufarsvandi hennar var orð-
inn verulega íþyngjandi, að hún ákvað að
setja næringu og hollustu í fyrsta sæti.
„Ég ákvað að gleyma öllu um bæði hita-
einingar og útlitsleg markmið. Nánast á
einni nóttu breyttist hugarfarið og ég hætti
að hafa nokkrar áhyggjur eða samvisku-
bit yfir mataræðinu. Það skemmtilega er
að síðan þá hef ég aldrei borðað eins mikið
magn af næringarríkum mat með eins lít-
illi fyrirhöfn – og uppskeran er sífellt betri
heilsa og aukinn kraftur. Þá er ótalin öll sú
andlega orka sem ég á skyndilega aflögu til
annarra verka en að hafa áhyggjur af súkk-
ulaðinu sem ég borðaði í gær eða sentimetr-
unum sem ég ber utan á mér í dag.“
Heilsudagurinn einfaldur
Sæunn skipuleggur um þessar mundir
Heilsudag hugmynda að hollustu og segir
hann afskaplega einfaldan í framkvæmd. „Í
haust tók ég eftir því að fjöldi fólks virtist
hafa áhuga á safakúrum eða jafnvel föstum
LEITAÐI LENGI AÐ HINNI
FULLKOMNU MEGRUN
SÆUNN INGIBJÖRG MARINÓSDÓTTIR, sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð
og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu.
Það varð bylting á líðan Sæunnar Ingibjargar þegar hún breytti um matarræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NÆRANDI SÚKKULAÐIDESERT
2 dl bankabygg
6 dl Isola rís- og möndlu-
mjólk
2 msk. hrákakó
1-2 msk. hlynsíróp
1/2 tsk. kanill
1/4 tsk. himalayasalt
Skolaðu byggið í sigti og láttu
það svo sjóða í möndlumjólk-
inni við vægan hita í u.þ.b. 40
mínútur
Blandaðu hinum hráefnunum
saman við og smakkaðu til. Þú
gætir viljað hafa grautinn sætari
eða salta hann aðeins meira til
að dýpka súkkulaðibragðið.
Ef þú vilt gera grautinn að eftir-
rétti er frábært að hafa með
honum þeyttan kókosrjóma,
kókos flögur og kakónibbur.
Hann er einnig dásamlegur með
berjum og ávöxtum, hvort sem er
í morgunverð eða eftirrétt.
Þeyttur kókosrjómi
Geymdu dós af kókosmjólk í ís-
skáp í minnst einn sólarhring.
Opnaðu dósina án þess að
hrista hana eða hvolfa henni.
Skafðu þykka hlutann ofan af
með matskeið og færðu yfir í
skál.
Þeyttu eins og hefðbundinn
rjóma í 1-2 mínútur.
Þennan rjóma má bragðbæta
með vanillukornum eða borða
eins og hann kemur fyrir. Hann
heldur sér vel og geymist vand-
ræðalaust í nokkra daga í ís-
skáp. Vatnið sem eftir verður
í dósinni má svo nota í súpur,
sósur eða drykki!
í þeim tilgangi að afeitra líkamann eða koma
lífsstílnum á heilnæmari brautir. Ég velti því
sjálf fyrir mér hvort ég ætti að fara á nokk-
urra daga safaföstu en ég var ekki tilbúin
í það samhliða krefjandi verkefnum hvers-
dagsins. Ég fór þá að velta fyrir mér hvort
ekki væri hægt að setja saman prógramm
sem þjónaði sama tilgangi en væri bæði
heimatilbúið og án svengdar og gæti fyllt
mig ótrúlegri orku og fjölbreyttri næringu
sem gæfi tafarlaust aukinn kraft. Ég setti
þá saman eins dags matseðil og ákvað að
sjálfsögðu að deila honum einnig til áhuga-
samra.“
Heilsudagurinn samanstendur af fróðleik,
innkaupalista, uppskriftum og leiðbeining-
um sem Steinunn hefur tekið saman í hand-
hægt skjal. Matarneysla Heilsudagsins sam-
anstendur af fjórum næringarríkum, upp-
byggjandi þeytingum og einu salati sem
samanlagt uppfylla orkuþörf dagsins.
„Enginn sérstök dagsetning er á degin-
um, fólk fer í gegnum hann þegar því hent-
ar og eins oft og það vill og ég gef hugmynd-
ir um hvernig megi laga hann að einstak-
lingsbundnum þörfum. Einfaldleiki skiptir
mig miklu máli svo uppistaða matseðilsins
er auðfundin í grænmetis- og ávaxtadeild-
um matvöruverslana og ég nota engin fæðu-
bótarefni eða aðrar viðbætur heldur einung-
is náttúrulegan og heilnæman mat,“ segir
Sæunn, sem sjálf fór í gegnum Heilsudaginn
þrisvar áður en hún fékk nokkur vel valin
tilraunadýr til að sannreyna ágæti hans.
„Við vorum öll sammála um að hann væri
kærkomin orkuinnspýting og einfaldaði dag-
inn til muna að hafa hverja máltíð tilbúna
fyrirfram án mikillar fyrirhafnar. Í kjölfar-
ið kallar líkaminn á meiri góða næringu og
uppskriftirnar má að sjálfsögðu nota einar
sér eftir hentisemi. Ég vona að Heilsudagur-
inn veiti bæði þekkingu og hvatningu til enn
meiri hollustu dagsdaglega,“ segir Sæunn að
lokum. Ragnheidur@frettabladid.is