Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 42

Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 42
8 • LÍFIÐ 31. OKTÓBER 2014 Þ ekkingarleitin mín óendanlega hefur síðustu árin alfarið beinst að hollustu og heilsufarslegri uppbyggingu og ég verð sífellt gagnteknari af krafta- verkum náttúrunnar. Stundum verð ég svo uppfull af innblæstri og eldmóði að mér finnst ég ekki vera í rónni fyrr en mér tekst að deila uppgötvunum mínum og ný- fundinni þekkingu með sem flestum,“ segir Sæunn, sem opnaði nýverið heimasíðuna hugmyndir adhollustu.is. Þar deilir hún með lesendum sínum uppskriftum og ýmsum hugmyndum að hollari lífsstíl. Vefurinn hefur vakið góð viðbrögð, en hugmyndin að síðunni fæddist þegar fólk leitaði til Sæunn- ar í auknum mæli í von um góð ráð og aðstoð varðandi betri heilsu. „Ég hafði glímt við alvarlegt mígreni frá barnsæsku sem hamlaði mér mikið og þjáð- ist einnig af miklum stoðkerfisverkjum. Þegar ég breytti um mataræði varð allsherj- arbylting á minni líðan. Mígrenið fór, stoð- kerfisverkirnir löguðust og ég varð miklu hressari og glaðari manneskja. Það sem fylgdi svo í kjölfarið var aukinn áhugi og forvitni annarra um matinn sem ég borða og mér finnst ánægjulegt að fá tækifæri til að stuðla að bættum lífsgæðum fleiri. Einn stærsti drifkrafturinn í öllu því sem ég geri er sterk þörf fyrir að breyta heiminum og hjálpa sem flestu fólki að ganga í fyrir- hafnarlaust samband við hollustu svo það geti beint kröftum sínum að verðugri verk- efnum en að berjast við sjálft sig og matar- samviskubitið alla daga,“ útskýrir hún og segist oft velta því fyrir sér hvernig heim- urinn væri ef enginn hefði áhyggjur af pró- teinhlutföllum, fitusýrum, chia-fræjum eða mittismælingum og hversu mikill sköpunar- kraftur myndi losna úr læðingi. „Hollustan er nefnilega svo einföld og fyrir hafnarlaus þegar maður leyfir inn- sæinu að yfirgnæfa óminn frá skyndilausna- loforðum og niðursoðnum heilsurannsóknar- fréttum, og þegar líkaminn er vel nærður eru talsvert meiri líkur á að heilsan sjái um sig sjálf,“ útskýrir hún. Sumarfrí var kveikjan „Þeir sem umgangast mig eitthvað að ráði verða því stundum fyrir handahófskenndum fróðleiksræðum um hollustu!“ segir Sæunn létt í bragði. Upphafið að netævintýri Sæunnar var sumarið 2014 þegar hún var í sumarfríi með fjölskyldunni og ákvað að birta mynd- ir á Instagram af öllu sem hún borðaði í eina viku, vinum sínum til fróðleiks og innblást- urs. „Áður en vikan var liðin var ég búin að opna Facebook-síðuna mína, Hugmynd- ir að hollustu, til að halda utan um uppskrift- ir sem þessu tengdust og áður en ég vissi af voru mörg þúsund manns farnir að fylgj- ast með. Ég fékk mikla hvatningu, hrós og fyrir spurnir og um ári eftir að ég byrjaði með Face book-síðuna var ég reglulega farin að fá þakkir frá fólki fyrir að hafa hjálpað því að gera jákvæðar breytingar á mataræði sínu og heilsu – jafnvel þótt ég þekkti sumt þeirra ekki neitt. Sú vitneskja að þetta tóm- stundagaman mitt hefði raunveruleg áhrif á fólk varð mér svo hvatning til að setja uppskriftirnar saman á aðgengilegri hátt svo ég opnaði vefsíðuna í september síðast- liðnum.“ Sæunn segist fylgjast með fjölmörgum heilsusnillingum á netinu og fá innblástur úr öllum áttum. „En sú aðferð sem ég nota einna mest við að þróa uppskriftir eða auka fjölbreytni í eldamennskunni, er að velja mér ákveðið hráefni og vinna með það. Þá les ég til dæmis fjölda greina um viðkom- andi hráefni, skoða ógrynni uppskrifta þar sem það er í aðalhlutverki, fer svo inn í eld- hús og læt andann koma yfir mig. Stundum vel ég hráefni sem lítur óvenjulega vel út í grænmetisborðinu úti í búð og stundum er þetta eitthvað sem ég hef lesið um eða séð girnilega uppskrift og ákveð að nördast dá- lítið með í kjölfarið.“ Sæunn lýsir sér sem dæmigerðri íslenskri konu í Hafnarfirði. Hún er 35 ára viðskipta- fræðingur, með sex manna fjölskyldu og eyðir dágóðum hluta frítíma síns í að nörd- ast í heilsubókum, á næringarvefsíðum og við eldhústilraunir. Hin fullkomna megrun „Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á því hvernig maturinn sem ég borða hefur áhrif á líkama minn og líðan. Ég átti auðvelt með að tengja saman hvernig það sem ég lét ofan í mig varð hluti af mér sjálfri og fannst það heillandi ferli. Ég hef tilhneigingu til að sökkva mér á kaf ofan í þekkingarleit þegar eitthvað vekur áhuga minn og ég hef varla litið upp úr næringartengdum fróðleik síð- ustu tvo áratugina!“ Hún segir þó upphaflega hvatann ekki mjög göfugan. „Fróðleiksþorstinn kviknaði í leit minni að hinni fullkomnu megrun. Ég var afskaplega upptekin af holdafarslegum mark- miðum og mér var nokkuð sama hvað þau kostuðu mig fjárhagslega, líkamlega eða and- lega. Ég las heilu doðrantana um hitaeiningar og misgáfulegar megrunaraðferðir en smám saman fór að renna upp fyrir mér ljós og ég áttaði mig á að hollusta ætti ekki endilega skylt við megrunarfæði,“ heldur hún áfram. Það var svo ekki fyrr en fyrir um þremur árum, þegar heilsufarsvandi hennar var orð- inn verulega íþyngjandi, að hún ákvað að setja næringu og hollustu í fyrsta sæti. „Ég ákvað að gleyma öllu um bæði hita- einingar og útlitsleg markmið. Nánast á einni nóttu breyttist hugarfarið og ég hætti að hafa nokkrar áhyggjur eða samvisku- bit yfir mataræðinu. Það skemmtilega er að síðan þá hef ég aldrei borðað eins mikið magn af næringarríkum mat með eins lít- illi fyrirhöfn – og uppskeran er sífellt betri heilsa og aukinn kraftur. Þá er ótalin öll sú andlega orka sem ég á skyndilega aflögu til annarra verka en að hafa áhyggjur af súkk- ulaðinu sem ég borðaði í gær eða sentimetr- unum sem ég ber utan á mér í dag.“ Heilsudagurinn einfaldur Sæunn skipuleggur um þessar mundir Heilsudag hugmynda að hollustu og segir hann afskaplega einfaldan í framkvæmd. „Í haust tók ég eftir því að fjöldi fólks virtist hafa áhuga á safakúrum eða jafnvel föstum LEITAÐI LENGI AÐ HINNI FULLKOMNU MEGRUN SÆUNN INGIBJÖRG MARINÓSDÓTTIR, sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu. Það varð bylting á líðan Sæunnar Ingibjargar þegar hún breytti um matarræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NÆRANDI SÚKKULAÐIDESERT 2 dl bankabygg 6 dl Isola rís- og möndlu- mjólk 2 msk. hrákakó 1-2 msk. hlynsíróp 1/2 tsk. kanill 1/4 tsk. himalayasalt Skolaðu byggið í sigti og láttu það svo sjóða í möndlumjólk- inni við vægan hita í u.þ.b. 40 mínútur Blandaðu hinum hráefnunum saman við og smakkaðu til. Þú gætir viljað hafa grautinn sætari eða salta hann aðeins meira til að dýpka súkkulaðibragðið. Ef þú vilt gera grautinn að eftir- rétti er frábært að hafa með honum þeyttan kókosrjóma, kókos flögur og kakónibbur. Hann er einnig dásamlegur með berjum og ávöxtum, hvort sem er í morgunverð eða eftirrétt. Þeyttur kókosrjómi Geymdu dós af kókosmjólk í ís- skáp í minnst einn sólarhring. Opnaðu dósina án þess að hrista hana eða hvolfa henni. Skafðu þykka hlutann ofan af með matskeið og færðu yfir í skál. Þeyttu eins og hefðbundinn rjóma í 1-2 mínútur. Þennan rjóma má bragðbæta með vanillukornum eða borða eins og hann kemur fyrir. Hann heldur sér vel og geymist vand- ræðalaust í nokkra daga í ís- skáp. Vatnið sem eftir verður í dósinni má svo nota í súpur, sósur eða drykki! í þeim tilgangi að afeitra líkamann eða koma lífsstílnum á heilnæmari brautir. Ég velti því sjálf fyrir mér hvort ég ætti að fara á nokk- urra daga safaföstu en ég var ekki tilbúin í það samhliða krefjandi verkefnum hvers- dagsins. Ég fór þá að velta fyrir mér hvort ekki væri hægt að setja saman prógramm sem þjónaði sama tilgangi en væri bæði heimatilbúið og án svengdar og gæti fyllt mig ótrúlegri orku og fjölbreyttri næringu sem gæfi tafarlaust aukinn kraft. Ég setti þá saman eins dags matseðil og ákvað að sjálfsögðu að deila honum einnig til áhuga- samra.“ Heilsudagurinn samanstendur af fróðleik, innkaupalista, uppskriftum og leiðbeining- um sem Steinunn hefur tekið saman í hand- hægt skjal. Matarneysla Heilsudagsins sam- anstendur af fjórum næringarríkum, upp- byggjandi þeytingum og einu salati sem samanlagt uppfylla orkuþörf dagsins. „Enginn sérstök dagsetning er á degin- um, fólk fer í gegnum hann þegar því hent- ar og eins oft og það vill og ég gef hugmynd- ir um hvernig megi laga hann að einstak- lingsbundnum þörfum. Einfaldleiki skiptir mig miklu máli svo uppistaða matseðilsins er auðfundin í grænmetis- og ávaxtadeild- um matvöruverslana og ég nota engin fæðu- bótarefni eða aðrar viðbætur heldur einung- is náttúrulegan og heilnæman mat,“ segir Sæunn, sem sjálf fór í gegnum Heilsudaginn þrisvar áður en hún fékk nokkur vel valin tilraunadýr til að sannreyna ágæti hans. „Við vorum öll sammála um að hann væri kærkomin orkuinnspýting og einfaldaði dag- inn til muna að hafa hverja máltíð tilbúna fyrirfram án mikillar fyrirhafnar. Í kjölfar- ið kallar líkaminn á meiri góða næringu og uppskriftirnar má að sjálfsögðu nota einar sér eftir hentisemi. Ég vona að Heilsudagur- inn veiti bæði þekkingu og hvatningu til enn meiri hollustu dagsdaglega,“ segir Sæunn að lokum. Ragnheidur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.