Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 28
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Forsprakkar Júlíönu, hátíðar sögu og
bóka í Stykkishólmi, hyggjast draga sig
út úr áreiti hvunndagsins og ráða ráðum
sínum á Hótel Búðum næstu daga um
hátíðina á næsta ári. Umgjörðin liggur
ljós fyrir því hátíðin verður með svipuðu
sniði og tvær hinar fyrri, og haldin um
mánaðamótin febrúar/mars. Hótel Egil-
sen er að vanda hjarta hátíðarinnar, en
Amtsbókasafnið, Vatnasafnið og gamla
kirkjan gegna líka lykilhlutverkum auk
þess sem hátíðin ryður sér inn á heimili
bókelskra Hólmara.
„Hótel Egilsen er í næstelsta húsi
bæjarins, sem Egill, sonur Sveinbjörns
Egilssonar, skálds, byggði 1867. Þegar
ég hóf rekstur hótelsins fannst mér andi
bóka og sögu svífa yfir vötnum og þá
kviknaði sú hugmynd að nýta það sem
vettvang bóka- og söguhátíðar í þágu
samfélagsins og Stykkishólms,“ segir
Gréta Sigurðardóttir.
Hún fékk til liðs við sig aðrar bók-
hneigðar konur, Dagbjörtu Höskulds-
dóttur, sem áður rak bókabúðina í
bænum, Sigríði Erlu Guðmundsdóttur
leirlistakonu og Þórunni Sigþórsdóttir
ferðamálafræðing. Þeim fannst fara vel
á að tileinka hátíðina Júlíönu Jónsdóttur
skáldkonu, sem var fyrst kvenna til að
fá gefna út ljóðabók. Ekki spillti fyrir að
skáldkonan bjó um skeið í Stykkishólmi.
„Undirbúningur er langt kominn. Við
eigum þó enn eftir að ákveða þema hátíð-
arinnar, hvaða rithöfundum við bjóðum
og hvaða Hólmara við heiðrum fyrir
framlag til menningarmála. Í hittifyrra
var þemað Konan í sögum og bókum frá
söguöld til nútímans en í fyrra Glæpir
og misgjörðir. Við erum með margar
hugmyndir, ein er að taka fyrir ljóðið
og söguna í ljóðunum, önnur að fjalla
um barnabækur eða mat í bókum.
Hvert sem þemað verður munum við
nálgast viðfangsefnið út frá nýjum for-
sendum.“ Gréta trúir því að góðar hug-
myndir fæðist í fallegu umhverfi, til að
mynda á Búðum á Snæfellsnesi. „Eins og
John Lennon trúi ég því að hugmyndir
séu sjálfstætt afl. Sjálfur kvaðst hann
einhverju sinni hafa fengið hugmynd
að lagi, sem hann gerði ekkert með og
vissi ekki fyrr til en annar var kominn
með lagið. Ef maður gerir ekkert með
Júlíönur undir jökli
Fjórar bókhneigðar konur í Stykkishólmi draga sig út úr áreiti hvunndagsins til
að fá hugmyndir að þema á Júlíönu – hátíð sögu og bóka. Stefnan er á Búðir.
JÚLÍÖNURNAR F.v. Dagbjört Höskuldsdótir, Þórunn Sigþórsdóttir, Sigríður Erla Guðmundsdóttir og Gréta Sigurðardóttir.
MERKISATBURÐIR
1517 Marteinn Lúther hengir skjal í 95 greinum á kirkjudyrnar í
Wittenbergkastala og hefst með því siðbótin.
1654 Friðrik María krýndur kjörfursti í Bæjaralandi.
1817 Í Reykjavík er minnst þriggja alda afmælis siðbótar Marteins
Lúthers.
1931 Akstur Strætisvagna Reykjavíkur hefst og var fyrsta leiðin
Lækjartorg-Kleppur.
1934 Hæstiréttur Íslands dæmir Þórberg Þórðarson til að greiða 200
krónur í sekt fyrir meiðandi ummæli um Adolf Hitler og stjórn Þriðja
ríkisins.
1936 Þjóðviljinn hefur göngu sína og styður Kommúnistaflokkinn og
síðar Sósíalistaflokkinn og Alþýðubandalagið.
1964 Á Miklatúni í Reykjavík er afhjúpuð stytta af Einari Benedikts-
syni til að minnast aldarafmælis skáldsins.
1984 Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, myrt af lífvörðum
sínum.
Júlíana Jónsdóttir skáldkona
(1838-1918)
fæddist í Hálsasveit í Borgarfirði, en
fluttist til Kanada þar sem hún lést.
Júlíana markaði tímamót í íslenskri
bókmenntasögu. Árið 1876 varð hún
fyrst íslenskra kvenna til að fá gefna út
ljóðabók sína. Hún var einnig fyrsta ís-
lenska konan sem skrifaði leikrit og fékk
það sýnt á sviði.
➜ Brautryðjandi
Ástkær faðir okkar,
SVERRIR JÓNSSON
fv. stöðvarstjóri Flugfélags Íslands
og síðar Icelandair,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir hinn
19. október sl. Útförin fer fram frá Grafar-
vogskirkju, mánudaginn 3. nóvember
kl. 13.00. Blóm og kransar afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á minningarsjóði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Charlotta Sverrisdóttir
Ásgeir Sverrisson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
INGJALDUR HANNIBALSSON
prófessor,
Lækjargötu 4, Reykjavík,
lést laugardaginn 25. október sl.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 13. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karólína Eiríksdóttir
Þorsteinn Hannesson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RÓSA E. ÞORSTEINSDÓTTIR
fyrrverandi ljósmóðir,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík,
fimmtudaginn 23. október. Útförin fer fram
frá Grindavíkurkirkju, mánudaginn
3. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeild Þórkötlu.
Kristján Finnbogason
Guðrún Helga Kristjánsdóttir Ragnar Eðvarðsson
Stefán Þ. Kristjánsson H. Sandra Antonsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN EMILSDÓTTIR
sjúkraliði,
Lækjasmára 58, Kópavogi,
andaðist í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn
28. október síðastliðinn á Landakoti. Útförin
verður auglýst síðar.
Ásta Bjarnadóttir Einar Árnason
Gréta Konráðsdóttir
Ásdís Bjarnadóttir Vignir Jónsson
Heiðrún Gróa Bjarnadóttir Örn Gunnlaugsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
STRANDBERG
frá Hellum, Landsveit,
áður til heimilis að Melgerði 32,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilis Sunnuhlíðar í
Kópavogi fyrir nærgætni og frábært umönnunarstarf.
Auður F. Strandberg
Magnús F. Strandberg Ingibjörg Bragadóttir
Birgir F. Strandberg
Sveinbjörn F. Strandberg Kristín Jónsdóttir
Agnar F. Strandberg Brynja Stefnisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
hugmyndir sínar, finna þær sér annan
farveg.“ Júlíönurnar eru í samstarfi
við Grunnskóla Stykkishólms og munu
í þágu móðurmálskennslu afhenda 8., 9.
og 10. bekkjum iPad að gjöf. „Í tengslum
við hátíðina verður Anton Helgi Jóns-
son ljóðskáld með námskeið í skapandi
skrifum fyrir nemendur. Enn fremur fá
þeir það verkefni að gera þátt eða aug-
lýsingu um Júlíönu – hátíð sögu og bóka,
Afraksturinn verður svo opinberaður á
hátíðinni,“ upplýsir Gréta.
valgerdur@frettabladid.is