Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 52
KYNNING − AUGLÝSINGSnjallsímar FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 20144
Fyrir nokkrum vikum kom á markað íslenska appið Krydd og uppskriftir, sem
inniheldur fróðleik um krydd-
jurtir, lækningamátt þeirra og
uppskriftir tengdar þeim. Það
þætti ekki ýkja fréttnæmt ef ekki
kæmi til sú staðreynd að höfund-
ur þess, Anna Rósa grasalækn-
ir, hafði engan bakgrunn á þessu
sviði áður og sá um smíði þess ein.
Hún segir upphaflegu hugmynd-
ina hafa verið þá að auka vitund
almennings um krydd og lækn-
ingamátt þess því hún sé sann-
færð um forvarnargildi þess að
nota kryddjurtir í mat.
„Mér fannst það svo skemmti-
leg tilhugsun að geta boðið upp á
risastóra uppskriftabók í síman-
um sem gæfi fólki hugmyndir um
hvernig það gæti
notað krydd og
eldað góða n
mat. Ég kannaði
málið og komst
að því að dýrt er
að láta sérhanna
app fyrir sig hér-
lendis. Þar sem ég
vildi hafa það ókeypis var mikil-
vægt fyrir mig að halda kostnaði
í lágmarki. Ég prófaði því einfald-
lega að gúggla „How to create an
app“. Ég komst að því að mörg er-
lend fyrirtæki bjóða upp á alls
konar einfaldar lausnir fyrir þá
sem vilja gera þetta sjálfir. Eftir
að hafa skoðað vandlega mögu-
leikana sem boðið var upp á valdi
ég eitt af þessum fyrirtækjum.“
Auðveld vinna
Ólíkt því sem f lestir halda er
vinnuferlið á bak við app af þeirri
gerð sem Anna Rósa smíðaði,
alls ekkert erfitt. „Í raun getur
hver sem er smíðað svona app.
Hins vegar tók nokkra mánuði
að setja allt efnið inn því það
er nokkuð umfangsmikið. Þar
má til dæmis finna yfir
110 mataruppskriftir og eins er
fjallað um lækningamátt nánast
allra kryddtegunda sem fást á Ís-
landi.“
Hún segist hafa valið útlit
appsins sjálf en það innihélt
góðar leiðbeiningar um hvern-
ig vinna ætti með myndir og
aðra grafík. „Raunar má segja að
appið mitt sé nokkuð einfalt og
því ekki þörf á neinum sérhönn-
uðum lausnum með tilheyrandi
kostnaði.“
Þótt búið sé að setja appið á
markað er vinnunni við það ekki
lokið. „Það skemmtilega við svona
app er að hægt er að bæta enda-
laust við efni. Frá því það kom út
hafa allmargar uppskriftir bæst
við og ég stefni á að bæta við reglu-
lega. Eins hef ég möguleika á að
bæta við og breyta f lokkum að
vild. Þannig er til dæmis eftir að
bæta við nokkrum kryddtegund-
um þegar tími vinnst til.“
Krydd og uppskriftir kostar ekk-
ert og má nálgast í Play Store fyrir
Android-síma og spjaldtölvur og
App Store fyrir síma og spjaldtölv-
ur frá Apple.
Alls ekki flókið mál að smíða app
Anna Rósa grasalæknir vildi miðla gagnlegum fróðleik um kryddjurtir og uppskriftum í snjallsíma og spjaldtölvur landsmanna. Þar
sem hún kunni ekki að smíða app sjálf ákvað hún að læra það upp á eigin spýtur. Hún gaf út appið Kryddjurtir og uppskriftir í haust.
„Mér fannst það svo skemmtileg tilhugsun að geta boðið upp á risastóra uppskriftabók í símanum,“ segir Anna Rósa grasalæknir.