Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 6
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Kristján segir marga geðlækna einnig vinna vítt og breitt um landið þótt þeir séu ekki staðsett- ir þar allt árið um kring. „Þetta er gert þannig að því er stýrt að ein- hverju leyti í gegnum heilbrigð- isstofnanir á landinu. Á sumum stöðum er samstarf stóru sjúkra- húsanna þannig að það teygir sig yfir á stærra svæði. Einnig eru geðlæknar að starfrækja sína þjónustu á eigin vegum í gegnum Sjúkratryggingar annars staðar á landinu. Það er ljóst að þjónusta geðlækna er langmest á höfuðborg- arsvæðinu enda eru flestir íbúar á því svæði landsins.“ Sigríður Ingibjörg telur mikil- vægt að allir geti nýtt sér þjón- ustu geðlækna. „Við verðum að veita heilsugæslunni leiðir til að veita slíka þjónustu. Einstakling- ar verða að finna sér leiðir til að leita læknis, þeir veigra sér við að kaupa sér flugfar til Reykjavíkur alla jafna vegna geðrænna vanda- mála.“ sveinn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Geðlæknar eru aðeins starfandi í Reykjavík, á Sel- tjarnarnesi og á Akureyri. Þetta kemur fram í úttekt Byggðastofn- unar á staðsetningu þjónustu á landinu öllu. Kristján Þór Júlíusson heil- brigðis ráðherra segir umfang geð- lækninga á landinu vera mest þar sem flest fólk er, það er á höfuð- borgarsvæðinu og á Eyjafjarðar- svæðinu, en síðan minnki þjón- ustan eftir því sem svæðin séu fámennari. „Það er hins vegar hluti af því sem við kemur sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggð- inni undir sterkari stjórn að geta nýtt sérfræðiþekkingu sem þessa á fleiri stöðum. Með því er hægt að veita betri þjónustu á fámennum svæðum landsins og nýta sérfræðiþekkingu innan heilbrigðisstofnana með hag- kvæmari og betri hætti.“ Sigríður Ingibjörg Inga- dóttir, formaður velferðarnefnd- ar Alþingis, telur þjónustu geð- lækna á landinu verða að færast nær fólkinu og verða hluti af nær- þjónustu í heimabyggð. „Í þeirri geðheilbrigðisstefnu sem nú er í mótun er ekki síst verið að horfa til heilsugæslustöðvanna sem lykil stöðva. Þá skiptir miklu máli að heilsugæslan sé í stakk búin til að taka við því og að geðlæknir sé tiltækur. Við þurfum þekkingu á geðheilbrigðismálum inn í heilsu- gæsluna.“ Samkvæmt Læknafélagi Íslands eru 78 geðlæknar starfandi á landinu. Langflestir þeirra eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu. Geðlæknar við störf á tveimur stöðum Geðlæknar eru aðeins starfandi á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri samkvæmt úttekt Byggðastofnunar. Formaður velferðarnefndar vill skoða að flytja þessa þjón- ustu nær íbúum landsbyggðarinnar í gegnum heilsugæslur landsins. SIGRÍÐUR I. INGADÓTTIR formaður velferðarnefndar KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON heilbrigðis- ráðherra N O RD ICPH O TO S/G ETTY Reykjavík Akureyri STAÐ - SETNING GEÐLÆKNA Á ÍSLANDI BÚRKÍNA FASÓ, AP Fjöldi manns réðst inn í þinghúsið í Búrkína Fasó í gær. Húsgögn og tölvur voru borin út á götur og kveikt í þingsalnum. Mótmælendurnir eru ósáttir við Blaise Compaore forseta, en hann hefur verið við völd samfleytt í 27 ár. Hann hefur aldrei fyrr staðið frammi fyrir jafn öflugum mótmælum. Mótmælin nú snúast einkum um lagafrumvarp sem myndi lengja kjörtímabil forsetans og gera honum kleift að bjóða sig fram í fimmta sinn. - gb Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Búrkína Fasó: Réðust inn og kveiktu í þinghúsi ELDAR LOGA Mótmælendur eru ósáttir við forsetann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEISTU SVARIÐ? SJÁVARÚTVEGUR Sölu- og mark- aðsfyrirtækin Icelandic Group og Iceland Seafood International (ISI) verða meðlimir í Samtök- um fyrirtækja í sjávarútvegi sem verða stofnuð í dag. Landssam- band íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Samtök fiskvinnslustöðva (SF) sameinast þá einnig í nýju samtök- unum. „Sameining LÍÚ og SF var sam- þykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta á aðalfundi LÍÚ í dag,“ sagði Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri LÍÚ, í samtali við Frétta- blaðið í gær. Stofnfundur Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi (SFS) verður haldinn í dag á Hilton Reykjavík Nordica. Adolf Guðmundsson, for- maður LÍÚ, mun þá stíga til hliðar en Jens Garðar Helgason, fram- kvæmdastjóri Fiskimiða, er eini frambjóðandinn til formanns sam- einaðs félags. „Við erum í dag með aðskilin hagsmunasamtök fyrir fyrirtæki sem hafa þróast heilmikið. Nú er svo komið að stærstur hluti þess- ara fyrirtækja er að vinna í þess- ari virðiskeðju allri, alveg frá veiðum til markaðssetningar, og þar á milli eru vinnsla og vöru- þróun. Við þurfum því að fara að horfa á sjávárútveginn sem stóra atvinnugrein sem er að skila sem mestum verðmætum með útflutn- ingi á vörum og þjónustu og tækni til útlanda en ekki bara sem ein- angraða grein sem er í öflun ein- hvers hráefnis,“ sagði Kolbeinn. - hg Aðalfundur LÍÚ samþykkti tillögu um sameiningu við Samtök fiskvinnslustöðva í nýjum samtökum: Markaðsfyrirtækin ætla að elta LÍÚ og SF PALESTÍNA, AP Ísraelsk stjórnvöld létu í gær loka öllum aðgangi að Musterishæðinni í Jerúsalem, þar sem helgustu staði bæði múslíma og gyðinga er að finna. Mikil spenna hefur verið í borginni síðustu daga og vikur, einkum í kringum hina helgu staði í gamla bænum. Til átaka af einhverju tagi hefur komið nánast daglega. Áður en svæðinu var lokað í gær hafði ísraelska lögreglan skotið Palestínumann, sem grunaður var um að hafa reynt kvöldið áður að myrða gyð- ing að nafni Yehuda Glick. Glick særðist alvarlega, en hann hefur verið í fararbroddi harðsnúinna gyðinga sem krefjast þess að gyðingar fái aukinn aðgang að hinu helga svæði Musterishæðarinnar. Musterishæðin hefur oft verið miðpunktur spennu í samskiptum Ísraela og Palestínumanna. Þar hófst seinni uppreisn Palestínumanna árið 2000 eftir að Ariel Sharon, sem þá var leiðtogi ísraelsku stjórnarandstöðunnar, hélt inn á svæði múslíma uppi á Musterishæðinni í fylgd öryggis- varða. - gb Spenna í Jerúsalem eftir að helgistöðum múslima og gyðinga var lokað: Lokað á múslima og gyðingar Ísraelskir ráðamenn kunna Svíum litlar þakkir fyrir að viðurkenna sjálfstæði Palestínu, en Íslendingar gerðu slíkt hið sama fyrir nokkrum árum. Avigdor Lieberman, utan- ríkisráðherra Ísraels, segir þetta „ömurlega ákvörðun“ sem „styrki öfgaöfl og höfnunarstefnu Palestínumanna“. Breska þingið samþykkti fyrir nokkrum vikum að viðurkenna sjálfstæði Palestínu, og Malta og Kýpur hafa einnig gert það, en engin önnur vestræn ríki hafa enn stigið þetta skref. ➜ Ísraelar reiðir Svíum LOKAÐ Gyðingum er meinaður aðgangur að Musterishæð- inni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 1. Hvað skuldar Reykjanesbær marga milljarða? 2. Hvað fékkst fyrir landsliðstreyju Gylfa Sigurðssonar á Góðgerðardegi í Hagaskóla? 3. Hvar í Bandaríkjunum sprakk Ant- ares-birgðageimfl augin? VEISTU SVARIÐ 1. 40 2. 200 þúsund krónur 3. Virginíu BREYTINGAR Í VÆNDUM Útgerðar- menn fjölmenntu á 75. og síðasta aðal- fund LÍÚ í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.