Fréttablaðið - 31.10.2014, Qupperneq 16
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Nú liggur ljóst fyrir að hraunið sem
rennur frá eldstöðinni í Holuhrauni
er það mesta sem komið hefur upp
á Íslandi í 230 ár. Umbrotin öll eru
einstök í öllum samanburði við
fyrri eldgos á Íslandi – en það eru
þau einnig á heimsvísu.
Fyrr í vikunni gáfu jarðvísinda-
menn það út í eitt skipti fyrir öll að
nýja hraunið sem stækkar dag frá
degi norðan Vatnajökuls, og margir
vilja kalla Nornahraun, er stærra
en öll önnur síðan Skaftáreldar
brunnu árin 1783 til 1784 – eldgos
sem hafði meiri og alvarlegri afleið-
ingar en flest önnur á sögulegum
tíma.
Hraunið hefur nú náð að þekja
65 ferkílómetra lands á flæðunum
norðan Dyngjujökuls og stækkar
hratt.
Fimm eldgos
Ármann Höskuldsson eldfjalla-
fræðingur segir að eldgosið hafi
mallað í svipuðum takti allt frá 6.
október, og með öllu ófyrirséð hve-
nær því lýkur. Eins og áður hefur
komið fram má heita fyrirséð að
annað gos hefjist innan ekki langs
tíma, miðað við óbreytta virkni
og gliðnun lands. Segja megi með
algjörri vissu að fimm eldgos hafi
þegar orðið á svæðinu; tvö undir
jökli og tvö lítil utan hans að við-
bættu því sem nú er uppi.
„Þó að tekið sé að draga úr
rennslinu þá er það engu að síður
um 100 rúmmetrar á sekúndu, sem
jafngildir rennsli Skjálfandafljóts
að sumri. Rennslið var hins vegar
ofboðslegt í upphafi og má líkja við
rennsli Ölfusár í mesta ham eða
þrefalt meira,“ segir Ármann og
bætir við að í október hafi hraun-
rennslið þakið um 20 fermetra
lands á hverri sekúndu.
Ármann tekur undir að umbrot-
in séu söguleg og hafi reyndar
verið orðin það strax á fyrstu vik-
unni. „Mönnum er tamt að tala um
stærð eldgosa með því að skoða
hvað margir rúmmetrar gosefna
koma upp, en það er ekki góður
mælikvarði. Þetta snýst frekar um
hversu hratt gosefnin koma upp.
Það er hægt að tala um mikið rúm-
mál eldgosa sem tekur áratugi eða
árhundruð að koma upp úr eldfjall-
inu. Hér erum við að fá ofboðslegt
magn upp á mjög stuttum tíma.
Holuhraun kláraði Fimmvörðuháls
að magni til fyrir hádegi fyrsta
daginn, og þó gaus þar í tvær vikur.
Við vissum það á fyrstu fimm, sex
dögunum að við vorum að glíma
við eitthvað sem við höfðum ekki
séð áður,“ segir Ármann sem telur
að heildarmagn hraunsins núna sé
um milljón rúmmetrar, en í Heklu-
gosinu 1947, sem gjarnan er litið til
í samanburði við stærstu eldgosin
hér á landi, rann töluvert miklu
minni hraunmassi. „Þetta er eigin-
lega búið að sprengja allt sem við
þekkjum,“ segir Ármann.
Gas, gas!
Gasmengunin frá eldstöðinni er
það sem veldur mestum áhyggj-
um í dag, en svo var ekki í upp-
hafi. Þá var kraftur gossins, og
hitauppstreymi þess, svo mikill
að eitruð gös fóru hátt í loft upp
og enginn varð þess var. Síðar,
þegar krafturinn minnkaði, hefur
gasið legið með landinu og verið
til óþurftar. Ekki er séð fyrir end-
ann á þessu vandamáli, þó síður
sé, enda líklegt að veðurskilyrði í
vetur komi til með að auka enn á
vandann – sérstaklega í froststill-
um, eins og Þorsteinn Jóhannsson,
sérfræðingur hjá Umhverfisstofn-
un, hefur bent á. „Þetta vandamál
vex bara með tímanum og ólíklegt
að þetta gos muni gefa í aftur og
þeyta eitrinu aftur hátt upp,“
segir Ármann.
Ísland og heimurinn
Þó horft sé út fyrir landsteinana
þá breytist myndin ekkert, bend-
ir Ármann á. „Það þarf að fara
langt aftur, sennilega er mikið
hraungos á Kanaríeyjum ein-
hverjum áratugum áður en Laka-
gosið hófst, 1730 til 1750, stærra
en þetta hraungos. Holuhrauns-
gosið er því á heimsmælikvarða
þegar orðið mjög áhugavert. Þetta
er einfaldlega stærsta hraungos
sem við höfum séð síðan á 18. öld,
alveg sama hvort við horfum á
Ísland eða heiminn allan.“
Eldhjarta
Þegar spurt er frekar um fram-
gang gossins og sérstöðu þess, þá
hefur þegar gosið lengur í Holu-
hrauni en á Fimmvörðuhálsi og
Eyjafjallajökli til samans. Eins
segir Ármann að kvikan sem nú
kemur upp sé óvenjulega heit;
rúmlega 1.200 gráður sem er
hundrað til 200 gráðum heitara en
kvika hefur mælst í öðrum þekkt-
um eldgosum.
„Það styður þær hugmyndir að
við séum að rífa þakið á eldhjart-
anu sjálfu; heita reitnum hér undir
landinu og séum að tappa beint upp
úr möttlinum og upp á yfirborð,“
segir Ármann og segir að kannski
þess vegna sé erfitt að spá um gos-
lok.
Bárðarbunga
Hér er þó aðeins hálf sagan sögð.
Ármann getur þess að íslensk-
ir jarðvísindamenn hafi lagst
yfir allar sínar skruddur í leit að
dæmum um atburðarás sem er
áþekk þeirri sem landsmenn hafa
fylgst með í Bárðarbungu undan-
farnar vikur.
„Bárðarbunga er stórt áhyggju-
efni og þetta hefur aldrei áður
sést. Þessi mikli fjöldi stórra jarð-
skjálfta; oft margir á dag, dögum
og vikum saman. Við höfum flett
upp á öllum þeim eldfjöllum sem
fylgst hefur verið með, og þetta er
óþekkt með öllu. Það flækir þessa
mynd í heild sinni, því við vitum
ekki hvað þetta boðar,“ segir
Ármann sem bætir því við að þau
gögn sem þegar hafa staflast upp
hjá íslenskum vísindamönnum
síðan í ágúst muni verða verkefni
næstu ára við úrvinnslu. Sú þekk-
ingarleit gæti þó tekið ófyrirsjá-
anlegan tíma því eldgosið í Holu-
hrauni er vísast aðeins upphafið
að mun lengri atburðarás í og við
Vatnajökul.
Eldgosið einstakt á heimsvísu
Hraunrennslið frá eldstöðinni í Holuhrauni jafngildir enn rennsli Skjálfandafljóts. Hraunið er það mesta sem komið hefur upp á Íslandi í
230 ár. Eldfjallafræðingur segir að eldarnir séu einstakir á heimsmælikvarða – og þá sé nokkuð sama frá hvaða sjónarhorni þeir eru litnir.
SÖGULEGT ELDGOS Það er sama hvernig á það er litið; eldgosið í Holuhrauni er þegar orðið einstakt á heimsvísu. MYND/MORTENRIISHUUS
Holu-
hraunsgosið
er því á
heimsmæli-
kvarða þegar
orðið mjög
áhugavert.
Þetta er einfaldlega stærsta
hraungos sem við höfum
séð síðan á 18. öld, alveg
sama hvort við horfum á
Ísland eða heiminn allan.
Ármann Höskuldsson,
eldfjallafræðingur.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Reykjavík
ÞorlákshöfnGrindavík
Reykjanesbær
Selfoss
Akranes
Hvalfjörður
Ölfusá
Faxaflói
Skaftáreldahraun Nornahraun
■ Eldgosið í Holuhrauni hófst 29. ágúst. Þann 31. ágúst
hófst gosið fyrir alvöru; í byrjun gaus úr rúmlega
1.500 metra langri gossprungu.
■ Kvikustrókar risu í allt að 100 metra hæð á fyrsta degi
gossins.
■ 29. október var hraunið [Nornahraun] metið 65
ferkílómetrar að stærð.
■ Skaftáreldar hófust á hvítasunnudag, 8. júní árið
1783, í Lakagígum í Vestur-Skaftafellssýslu. Gosið stóð
fram í byrjun febrúar árið eftir.
■ Flatarmál þess er 580 ferkílómetrar.
■ Lakagígar eru 25 kílómetra löng sprunguþyrping, gerð
úr tíu gossprungum; gígarnir eru yfir 100 talsins.
■ Kvikustrókarnir sem risu upp af gossprungunni í upp-
hafi eru taldir hafa verið um einn kílómetri á hæð.
NORNAHRAUN STÆRSTA HRAUN Í 230 ÁR Á 60 DÖGUM
65 km2
580 km2
Grunnkort: Landmælingar
Kortagerð: Ingibjörg Jónsdóttir, hjá Jarðvísindastofnun, Snorri Páll Snorrason, hjá Verkís, verkfræðistofu : Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur
ASKÝRING | 16
ELDGOSIÐ Í HOLUHRAUNI: TVEIR MÁNUÐIR LIÐNIR