Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 19
FÖSTUDAGUR 31. október 2014 | SKOÐUN | 19
Þegar heimsmynd mín hrundi
var ég að skera lauk. Rauðlauk.
Út í salat. Sjónvarpsfréttirnar
dóluðu í bakgrunninum. Pastað
var alveg að verða til í pottinum.
Öll mín fullorðinsár hef ég
þjáðst af ótta. Alveg síðan ég
lauk skólagöngu og steig mín
fyrstu skref úti í hinum raun-
verulega heimi eins og vinnu-
markaðurinn er stundum kall-
aður hef ég óttast fátt meira
en að tilvist mín þar sé dæmd
táknræn. Að einhver líti á störf
mín og hugsi: Hún er bara þarna
af því að hún er kerling. Það
er verið að fylla upp í kvótann.
Kynjakvótann.
Umræðan um hina tákn-
rænu konu skýtur reglulega
upp kollinum. Nú síðast var það
í tengslum við undankeppni
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva er RÚV krafðist
þess að helmingur laga í und-
anúrslitum yrði að hafa konu í
höfundarteymi. Horfið var frá
reglunni þegar upphrópanirn-
ar dundu yfir: Niðrandi fyrir
konur, karlarnir fá bara systur
sína eða frænku til að þykjast
vera meðhöfundur, niðurlægj-
andi. Ég kinkaði kolli í takt við
vandlætingarhljóðin. Sussum
svei. Það er út af svona löguðu
sem konur þurfa alltaf að óttast
að aðrir telji árangur þeirra ekki
verðskuldaðan. Að hann sé feng-
inn með einhverju kynjakvóta-
braski.
En svo var ég að skera rauð-
lauk, út í salat, með fréttirnar
dólandi í bakgrunni.
Hinn viðtekni karlmaður
Ástæðan fyrir því að heims-
mynd mín hrundi var keramik-
vasi. Í fréttunum var fjallað um
nýja listsýningu breska lista-
mannsins Grayson Perry í Nat-
ional Portrait galleríinu í Lond-
on. Eitt verkanna á sýningunni
hafði valdið töluverðu fjaðra-
foki í Bretlandi. Verkið kallaði
Perry Hinn viðtekna karlmann,
„The default man“. Um var að
ræða vasa, skreyttan andlitinu á
Chris Huhne, fyrrum ráðherra
sem var dæmdur í fangelsi eftir
að upp komst að hann hafði látið
eiginkonu sína taka á sig punkta
vegna umferðarlagabrota sem
hann framdi. Auk ásjónu Huhne
prýddu vasann myndir af einka-
bílnúmeri ráðherrans og listilega
teiknaður reður.
„Vasinn fangar það sem ég vil
kalla hinn viðtekna karlmann,“
sagði Perry í fréttunum. „Hinn
hvíta, miðaldra millistéttarkarl-
mann.“ Hann útskýrði verk-
ið nánar í grein í nýjasta hefti
tímaritsins New Statesman.
„Þessi ættbálkur er minnihluta-
hópur í samfélaginu … Í Bret-
landi telst hann um 10% þess, í
heiminum aðeins um 1%. Þrátt
fyrir það ræður hann og ríkir
í efstu valdastéttum samfélaga
og þröngvar gildum sínum og
smekk upp á restina af íbúunum.
Með litskrúðug reðurtákn úr taui
um hálsinn einokar hópurinn rík-
isstjórnir, stjórnir fyrirtækja og
fjölmiðla.“
81 ár í jafnrétti
Fyrr í vikunni var birt árleg
úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins,
World Economic Forum, á jafn-
rétti karla og kvenna. Á hér-
lendum fréttastofum var list-
inn túlkaður sem góðar fréttir.
Ísland var jú í fyrsta sæti. „High
five“ fyrir okkur. Við nánari
skoðun kemur hins vegar í ljós
að framfarir á sviði jafnréttis
kynjanna ganga hægt. Umrædd-
ur listi var fyrst tekinn saman
árið 2006. Síðan þá hefur bilið
milli kynjanna hvað efnahagsleg
völd í heiminum varðar aðeins
minnkað um 4 prósentustig.
Bilið stendur nú í 60 prósentum.
Að óbreyttu mun það taka 81 ár
að eyða efnahagslegum kynja-
halla. Heila mannsævi.
Mér varð hugsað til Evró-
visjón. Eitt vakti forvitni mína
umfram annað við skandalinn
er jafna átti kynjabilið í söngva-
keppninni. Ófáir karlmenn í tón-
listarbransanum, sem venju-
lega létust miklir femínistar og
skrifuðu jafnvel lærða statusa á
Facebook um jafnrétti kynjanna
við mikinn læk-fögnuð, risu nú
upp á afturfæturna og lýstu
því, sárreiðir, hve niðrandi
nýja fyrir komulagið væri fyrir
konur. Menn sem voru talsmenn
kynjakvóta á öðrum vettvangi,
svo sem í stjórnum fyrirtækja
eða í stjórnmálum, fundu hug-
myndinni skyndilega allt til for-
áttu, fannst hún ekki eiga við í
sínu fagi.
Ég hef ávallt haft blendnar
tilfinningar í garð kynjakvóta.
Ég hrekk í vörn við það eitt að
heyra orðið. Finnst það hljóma
eins og persónuleg árás, skila-
boð um að ég sé ekki nógu hæf
til að plumma mig sjálf og þurfi
sérstakrar aðstoðar við, svona
eins og að vera súkkulaði í
brennó. En það var eitthvað við
keramikvasann um hinn við-
tekna karl sem olli pólskiptum í
höfði mér.
Veröldin er á sjálfstýringu og
gírstöngina passa viðteknu karl-
mennirnir. Þeir setja leikregl-
urnar. Þeir eru normið, viðmiðið
sem allir aðrir eru dæmdir út
frá. Og þeir passa upp á stöðu
sína hvort sem þeir eru jakka-
fataklæddir viðskiptajöfrar með
reðurtákn úr taui um hálsinn
eða skrúðklæddir tónlistarmenn
með glimmer í hárinu.
Við konur getum beðið í 81
ár eftir að röðin komi að okkur.
Eða: Við getum lagt óttann um
að teljast aðeins tákngerving-
ar til hliðar, hrifsað gírstöng-
ina úr höndum hinna viðteknu
karla og sett jafnréttisbarátt-
una í fimmta gír. Hvað er svona
hræðilegt við það að jafnmargar
konur eigi lög í Söngvakeppn-
inni og karlar?
Með reðurtákn úr taui um hálsinn
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Við konur getum
beðið í 81 ár eftir
að röðin komi að okkur.
Eða: Við getum lagt óttann
um að teljast aðeins
tákngervingar til hliðar,
hrifsað gírstöngina úr
höndum hinna viðteknu
karla og sett jafnréttis-
baráttuna í fimmta gír.
Jöfn tækifæri – athafnafrelsi – góð almannaþjónusta
Samfylkingin boðar til flokksstjórnarfundar á morgun, laugardaginn 1. nóv. Fundurinn
er opinn félögum í Samfylkingunni. Kjörnir fulltrúar í flokksstjórn hafa atkvæðisrétt.
Málefnanefndir starfa fyrir hádegi. Ræða formanns og almennar umræður eru eftir hádegi.
Við upphaf fundar er innheimt kaffigjald kr. 1.000.
Einnig er vakin athygli á opnum fundi um olíuleit á Íslandsmiðum sunnurdaginn 2. nóv.
á Kornhlöðuloftinu við Bankastræti kl. 10 - 14.. Allir velkomnir.
Dagskrá
9:00
12:45
13:15
14:00
15:00
16:30
15:15
10:30
12:00
Atvinnuvegir
Menntir og menning
Utanríkismál og Evrópa
YES! Young European
Socialists kveðja sér hljóðs
Rósa Guðrún Sveinsdóttir syngur
við undirleik Daníels Helgasonar
Ræða formanns, Árna Páls Árnasonar
Almennar umræður
Kaffihlé
Fundarlok
Almennum umræðum fram haldið
Umhverfi og auðlindir
Velferð og heilbrigði
Mannréttindi, lýðræði
og stjórnfesta
Ríkisfjármál, efnahagur
og viðskipti
Hádegishlé – hægt að
kaupa léttan málsverð
Fundir málefnanefnda
JÖFN TÆKIFÆRI - ATHAFNAFRELSI
- GÓÐ ALMANNAÞJÓNUSTA
OLÍULEIT Á ÍSLANDSMIÐUM
Opinn fundur á Kornhlöðuloftinu
sun. 2. nóv. kl. 10 - 14.
Staða mála; umhverfi og leyfishafar
Kristinn Einarsson, ráðgjafi Orkustofnun
Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður
Auðlindaréttarstofnunar HR
Myndbandsávarp
Jonas Gahr Störe, formaður
Verkamannaflokksins í Noregi
Hver eru tækifærin? Hvað ber að varast?
Haukur Óskarsson, frkvstj. hjá Mannviti
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor HÍ
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI
Sveinbjörn Höskuldsson, þróunnarstjóri
Nox Medical
Samantekt og umræðuvakar
Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður
Kristján L. Möller, alþingismaður
Árni Finnsson, form. Náttúruverndar-
samtaka Íslands
Fundarstýra
Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður
Laugardaginn 1. nóv. á Icelandair Hótel Reykjavík Natura
Samfylkingin - jafnaðarmannaflokkur Íslands
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
Október er í
augum flestra
mánuðurinn sem
minnir okkur
landsmenn á að
stutt er í vet-
urinn. Ég skal
segja ykkur eitt,
á mínu heimili
er barn sem á
afmæli í október
og því fylgir mik-
ill spenningur,
bjóða bekkjarfé-
lögum í afmæl-
ið og tökum við foreldrarnir þátt í
þeim gleðitrylli. Í afmæli barnanna
okkar þar sem mörg börn mæta og
skemmta sér pöntum við alltaf tákn-
málstúlk til að geta átt samskipti
við börnin, þau leitað til okkar, við
getum fylgst með umræðum eins og
aðrir foreldrar, barnið okkar hefur
engar áhyggjur enda vant því að for-
eldrarnir séu þarna og passi upp á
allt.En í ár er þetta ekki jafn gaman
og í fyrra því við eyðum orkunni í að
berjast fyrir því að geta fengið túlk
í afmælið. Mennta- og menningar-
málaráðuneytinu finnst að nokkr-
ar millur eigi að duga í eitt ár fyrir
tæplega 200 manns, sem reiða sig á
íslenskt táknmál, til þess að fá túlk
í sínu daglega lífi eða um 9 tímar á
ári fyrir hvern haus af þessum 200.
Ég vona að ég geti sinnt foreldra-
hlutverki mínu til fullnustu eins
og ég kýs að gera án þess að mér
séu sett takmörk á því, sinnt hlut-
verki mínu sem umsjónarmaður í
íþróttastarfi barnanna minna, sinnt
viðhaldsskyldum mínum sem hús-
eigandi, mætt á fundi, verið virkur
atvinnuþátttakandi í stað þess að
streða við það að fá táknmálstúlk,
hér duga engar reddingar eða þol-
inmæði þar til janúar rennur upp.
Október
eina ferðina enn
TÚLKUNAR-
ÞJÓNUSTA
Arnar Ægisson
faðir þriggja barna
og bifvélavirki í
fullu starfi