Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 44
10 • LÍFIÐ 31. OKTÓBER 2014
S
teinunn Ása Þorvalds-
dóttir er löngu orðin
þjóðþekkt fyrir vaska
framgöngu sína í sjón-
varpi. Undanfarin miss-
eri hafa þættirnir Með okkar
augum verið sýndir í Ríkissjón-
varpinu við miklar vinsældir.
Steinunn og félagar hennar sjá
bæði um dagskrárgerðina sjálfa
sem og tæknivinnuna að stórum
hluta. Hugmyndafræðin á bak við
þáttagerðina er að sýna fram á að
í hópi fatlaðra séu margir hæfi-
leikaríkir einstaklingar en einn-
ig að vinna gegn staðal ímyndum
og fordómum gagnvart fólki með
fötlun af einhverju tagi. „Ég finn
og sé að þátturinn hefur víkkað
sjóndeildarhring almennings og
álit á fötluðu fólki. Ég er viss um
að með þessum þætti þá brut-
um við múra fyrir fatlað fólk og
komum af stað eins konar bylt-
ingu til hins betra fyrir okkur,“
segir Steinunn. Þátturinn hefur
hlotið töluvert mikla athygli og
margar viðurkenningar, hann var
meðal annars tilnefndur til Eddu-
verðlaunanna á síðasta ári. Líf
Steinunnar hefur breyst eftir til-
urð þáttanna og lendir hún reglu-
lega í því að fólk stoppi hana úti
á götu til að spjalla. „Mér finnst
skemmtilegt þegar fólk þekkir
mig úti á götu og kemur að tali
við mig enda finnst mér gaman að
tala við fólk um heima og geima,“
segir hún og bætir við að þátta-
gerðin hafi gert henni svo gott.
„Ég er orðin sjálfsöruggari og
sterkari en nokkurn tímann áður.“
Fann dauðann á mér
Steinunn er fædd og uppalin í Vest-
urbænum og er nýflutt á heima-
slóðir eftir mikið flakk. Í fyrsta
skipti á lífsleiðinni býr hún ein.
„Það tók mig óratíma að finna
þessa íbúð en ég var heppin því að
það eru 300 manns á biðlista eftir
því að komast í félagslega íbúð.
Ég bý í fyrsta skipti ein en ég bjó
á Skólavörðustígnum með pabba
áður en hann dó. Ég á þó marga
góða að og fæ þá hjálp sem ég
þarf,“ segir Steinunn.
Faðir Steinunnar lést í ágúst
síðastliðnum en móðir hennar
lést fyrir þremur árum. Bana-
mein þeirra beggja var krabba-
mein. „Mamma var ótrúlega
sterk, ákveðin og dugleg kona sem
kenndi mér margt í lífinu. Foreldr-
ar mínir voru mér mikil hvatn-
ing í lífinu og á ég þeim margt að
þakka. Það líður ekki sá dagur að
ég hugsi ekki til þeirra og biðji
fyrir þeim,“ segir hún. Steinunn
var stödd á tónleikum í Hallgríms-
kirkju kvöldið áður en faðir henn-
ar dó. „Það var svo skrítið að það
var eins og ég fyndi á mér að hann
væri farinn. Ég sat í kirkjunni og
fann allt í einu fyrir stingandi og
djúpri sorg. Ég fann hvernig tárin
spruttu út og ég gjörsamlega lam-
aðist af sorg. Sem betur fer voru
vinir mínir með mér og hugguðu
mig. Það var svo um nóttina sem
hann dó,“ segir hún. Faðir Stein-
unnar var henni stoð og stytta
og bjuggu þau tvö saman síðustu
árin sem hann lifði. „Við vorum
mjög náin og ég hugsa mikið til
hans, sérstaklega þegar ég er að
hugsa um eitthvað sem ég þarf
svör við, þá velti ég því fyrir mér
hverju hann hefði svarað og hvaða
HEFUR
BROTIÐ
MÚRA FYRIR
FATLAÐA
STEINUNN ÁSA ÞORVALDSDÓTTIR hefur
síðastliðin ár barist gegn fordómum í garð
fatlaðs fólks og staðalímyndum, meðal annars
með sjónvarpsþáttagerð, kennslu í Háskóla
Íslands og starfi sínu á mannréttindaskrifstofu
Reykjavíkurborgar.
ráð hann hefði gefið mér. En ég
verð víst að sætta mig við það að
hann er farinn og það er eðlileg-
ur hluti af lífinu,“ segir hún. Stein-
unn á einn bróður, Óskar Hrafn-
Þorvaldsson fjölmiðlamann. „Núna
erum við systkinin bara tvö eftir.
Óskar og konan hans eru mér mik-
ill styrkur og reynum við að vera
eins mikið saman og tími gefst til.
Ég er bara orðin svo sjálfstæð og
upptekin,“ segir hún og hlær eins
og henni er einni lagið.
Upplifði höfnun
Grunnskólaganga Steinunnar var
henni erfið og kveið hún oft fyrir
því að fara í skólann. „Mér fannst
erfitt að fara í skólann þar sem ég
var reglulega lögð í einelti, mér
sárnaði það mjög mikið og þetta
var ekki góður tími,“ segir hún.
Steinunn óskaði þess heitast að fá
að fara í almennan skóla en á þess-
um tíma var það ekki valkostur.
„Ég vildi fá að fara í venjulegan
skóla og fá þá aðstoð við nám en
ekki vera í Öskjuhlíðarskóla, það
var þá fyrst sem mér fannst ég
vera öðruvísi og fann fyrir höfnun.
Kennararnir reyndu þó að gera
allt sem þeir gátu til þess að gera
líf mitt betra en þetta var bara
eins og það var, mér hefur aldrei
fundist ég vera fötluð en kannski
gerði þessi reynsla mig að þeim
sterka karakter sem ég er í dag,“
segir Steinunn. Bjartari tímar tóku
þó við þegar Steinunn hóf nám í
Borgar holtsskóla á sérnámsbraut
fyrir fatlaða. „Námið í Borgó hefur
nýst mér mjög vel, þarna lærði ég
stærðfræði, íslensku, að prjóna,
að sauma og svo var ég eini nem-
andinn sem fékk að læra frönsku,“
segir hún.
Franskan er þó ekki eina tungu-
málið sem Steinunn hefur lært því
að hún talar ítölsku reiprennandi.
Á Ítalíu, nánar tiltekið í Feneyjum,
bjó hún í tvö ár ásamt foreldrum
sínum þegar faðir hennar vann þar
í tölvufyrirtæki. Ásamt því að læra
ítölsku lærði hún einnig skart-
gripagerð. „Það mætti segja að það
hafi opnast fyrir hönnunarhæfi-
leika mína á Ítalíu,“ segir Steinunn
dreymin og hlær. „Ég hreinlega
elska Ítalíu og allt sem við kemur
því landi. Mig langar alveg óskap-
lega að snúa þangað aftur einn
daginn og jafnvel halda hönnunar-
námi áfram,“ segir hún.
Situr aldrei aðgerðalaus
Þessi unga og glæsilega kona sem
mörgum er svo mikil fyrirmynd
situr aldrei aðgerðalaus. Þessa
dagana vinnur Steinunn að upp-
byggilegum verkefnum á mann-
réttindaskrifstofu Reykjavíkur-
borgar og er að fjölmörgu að huga
þar. Einnig hefur hún verið að
kenna í fötlunarfræði í Háskóla Ís-
lands. „Mannréttindi og aðbúnað-
ur fatlaðra standa mér nærri. Í há-
skólanum kenni ég nemendum það
hvernig á að umgangast fatlaða.
Það er gert með virðingu og þekk-
ingu. Sumir vita ekki hvernig þeir
eiga að koma fram við fatlað fólk
en maður á bara að koma fram við
fatlað fólk eins og annað fólk, við
erum bara ólík,“ segir Steinunn. Á
milli þess sem Steinunn vinnur að
því að breyta hugarfari gagnvart
fötluðum semur hún ljóð, spilar
listilega á píanó og syngur af hjart-
ans lyst. Ný ástríða hefur svo látið
á sér kræla í lífi Steinunnar en það
er líkamsrækt og heilsusamlegt
Steinunn Ása
vinnur þessa
dagana að
uppbyggilegum
verkefnum á
mannréttinda-
skrifstofu Reykja-
víkurborgar.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.