Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 47

Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 47
Það getur reynst höfuð-verkur að finna jólagjafir handa fjölmennum og ólík- um starfsmannahópi fyrirtækja. Stjórnendur Íslandsbanka tóku þá ákvörðun árið 2009 að gefa starfs- mönnum heimilislega og pers- ónulega jólagjöf. Útkoman var heimatilbúin matreiðslubók sem innihélt uppskriftir vel þekktra matgæðinga úr starfsmannahópi bankans. Gerð bókarinnar fór að mestu leyti fram innanhúss og segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, að bókin hafi slegið í gegn meðal starfsmanna. „Fyrr á árinu fór af stað mikil vinna við að finna jólagjöf handa starfsmönnum enda oft erfitt að finna gjöf sem hentar svo fjölbreyttum starfs- mannahópi. Eftir að búið var að ákveða þetta var mikil leynd yfir verkefninu. Haft var samband við marga matgæðinga meðal starfs- manna sem tóku afar vel í hug- myndina.“ Vinnan fór þannig fram að viðkomandi starfsmaður fann eina uppáhaldsuppskrift í fórum sínum. „Allir réttirnir voru eld- aðir í heimahúsum og einn laug- ardag mætti hópurinn niður í höfuð stöðvar bankans þar sem réttirnir voru myndaðir með að- stoð matreiðslumeistara bank- ans. Starfsmenn komu með leik- muni að heiman til að nota við myndatökuna og starfsmaður innan bankans sá svo um að sam- ræma textann frá hópnum.“ Mikil aðsókn seinna árið Verkefnið þótti takast svo vel að þetta var endurtekið ári síðar. Þá gafst öllum starfsmönnum kostur á að senda inn uppskrift- ir í bókina. „Fyrir seinni bókina barst okkur mikill fjöldi upp- skrifta. Bæði hafði fyrri bókin slegið í gegn en síðan hafa ansi margir áhuga á mat og upp- skriftum. Það er dæmigert hér innan bankans, og vafalaust víða, að starfsfólk deili spenn- andi uppskrifum þannig að þessi mikli áhugi kom okkur ekki á óvart. Þetta voru starfs- menn úr flestum deildum bank- ans, af báðum kynjum og á öllum aldri. Seinna árið mynd- aðist því mjög skemmtileg stemning kringum gerð bókar- innar enda vissu þá starfsmenn hvað var í vændum.“ Starfsmenn bankans þessi jól voru á bilinu 1.000-1.100 að sögn Guðnýjar. Bækurnar hafa verið endurprentaðar og gefnar nýjum starfsmönnum sem hefja störf hjá bankanum. Uppskriftir beggja bóka voru auk þess nýtt- ar á dagatöl þrjú ár í röð sem bankinn gaf viðskiptavinum sínum. „Uppskriftirnar fengu ekki síðri viðbrögð þar og hafa fjölmargir viðskiptavina okkar spreytt sig á þeim heima fyrir.“ Starfsmenn bankans hafa verið duglegir að elda úr mat- reiðslubókunum að sögn Guð- nýjar. „Sjálf hef ég prófað fjöl- margar uppskriftir úr bókunum og aldrei orðið fyrir vonbrigð- um. Það er skemmtilegt að elda vel heppnaða máltíð um kvöld og hitta svo þann sem átti upp- skriftina í bókinni daginn eftir í bankanum.“ FYRIRTÆKJAGJAFIR FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2014 Kynningarblað Jólagjafirnar skapaðar innanhúss Fyrir jólin árin 2009 og 2010 gaf Íslandsbanki starfsmönnum sínum heimatilbúna matreiðslubók í jólagjöf. Starfsmenn bankans áttu uppskriftirnar í bókunum og var nær öll vinna þeirra unnin innan bankans af starfsmönnum. Matreiðslubækurnar vöktu mikla lukku meðal starfsmanna og elda margir þeirra reglulega úr þeim. Uppskriftirnar hafa einnig sést á dagatölum Íslandsbanka. Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Íslandsbanka. Eldum & njótum var gefin í jólagjöf árið 2009 og Litríkt & lokkandi ári síðar. Báðar slógu þær í gegn. Fiskiréttur í ofni með ólífum og pestó er einn rétta bókarinnar Eldum & njótum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.