Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 82
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Skoska hiphop-tríóið Young Fathers, sem
er frá Edinborg, hlaut hin virtu Mercury-
verðlaun í fyrrakvöld en þau eru veitt
flytjanda sem á bestu bresku eða írsku
plötuna undanfarna tólf mánuði.
Fyrsta plata Young Fathers, Dead, sló
við ellefu öðrum plötum frá listamönn-
um á borð við Damon Albarn, Bombay
Bicycle Club, Royal Blood og FKA Twigs,
sem var líklegust til að vinna samkvæmt
veðbönkum.
„Við vildum alltaf búa til eitthvað sem
væri stærra en borgin okkar,“ sagði einn
af Ungu feðrunum, Graham „G“ Hasting.
Young Fathers hlaut í verðlaun 20
þúsund pund, eða tæpar fjórar milljónir
króna. Í stuttri þakkarræðu sagði Alloy-
sious Massaquio, einn meðlima sveitar-
innar: „Takk fyrir, við elskum ykkur, við
elskum ykkur öll.“
Simon Frith, formaður dómnefndar,
hafði þetta að segja um sigursveitina:
„Young Fathers hefur einstaka sýn á
breska „urban“-tónlist. Hún er uppfull af
hugmyndum, ýtin, kemur á óvart og er
hrífandi,“ sagði hann.
Platan Dead hafði selst næstminnst af
öllum plötum sem voru tilnefndar, eða í
rúmum tvö þúsund eintökum síðan hún
kom út í febrúar.
Á meðal annarra sigurvegara Mercury-
verðlaunanna í gegnum árin eru Alt-J,
The xx og PJ Harvey, sem hefur tvisvar
borið sigur úr býtum.
Young Fathers hlaut Mercury-verðlaunin
Hljómsveitin Young Fathers frá Edinborg í Skotlandi hlaut hin virtu Mercury-verðlaun í fyrrakvöld.
SIGURVEGARAR Hljómsveitin Young Fathers bar sigur
úr býtum á Mercury-verðlaunahátíðinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures
leitar nú að ungum leikurum fyrir kvikmyndina
Hjartastein eftir Guðmund Arnar Guðmundsson,
sem áætlað er að fari í tökur í ágúst á næsta ári.
Strákar á aldrinum 11 til 17 ára og stelpur
á aldrinum 12 til 17 eru hvött til að sækja um,
en áheyrnarprufur verða haldnar í nóvember.
Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi
á Íslandi og fjallar um sterka vináttu tveggja
drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í
unglingsárin og uppgötva ástina.
Guðmundur Arnar Guðmundsson er bæði hand-
ritshöfundur og leikstjóri myndarinnar. Hjarta-
steinn er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd en
fyrr á árinu hlaut verkefnið Warnier Posta-verð-
launin á samframleiðslumarkaði Kvikmyndahá-
tíðar Hollands og einnig hlaut Guðmundur þann
heiður að vera valinn með Hjartastein í fjög-
urra mánaða leikstjórnarsmiðju Cannes-kvik-
myndahátíðarinnar. Guðmundur er þekktur fyrir
stuttmyndirnar Hvalfjörð og Ártún, sem unnið
hafa til fjölda verðlauna á virtum hátíðum víða
um heim.
Leita að leikurum í Hjartastein
Fyrirtækið Join Motion Pictures leitar að ungum leikurum fyrir nýja íslenska mynd.
GUÐMUNDUR ARNAR GUÐMUNDSSON Hjartasteinn er fyrsta
kvikmynd Guðmundar í fullri lengd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við vildum alltaf búa til
eitthvað sem væri stærra en
borgin okkar.
Graham „G“ Hasting.
Sóley, Vök, Júníus Meyvant og Low
Roar hafa bæst við hina árlegu
Eurosonic-tónlistarhátíð sem verð-
ur haldin í Hollandi í janúar.
Áður höfðu sveitirnar Kiasmos,
Kaleo, Samaris og Rökkurró verið
staðfestar.
Hátíðin mun í þetta sinn leggja
áherslu á íslenska tónlist og þróun
tónlistarbransans á Íslandi síð-
ustu ár. Um er að ræða gott tæki-
færi til þess að kynna breiddina
í íslenskri tónlist fyrir tónlistar-
markaðnum í Evrópu. Einkum
verður lögð áhersla á hina nýju
kynslóð íslenskrar tónlistar.
Hátíðin er mikill tengslamynd-
unarvettvangur fyrir evrópska
tónlistarbransann og hefur átt
þátt í að kynna nýja upprennandi
tónlistarmenn fyrir tónlistarheim-
inum þar.
Fjölmarir íslenskir flytjendur
hafa notið góðs af spilamennsku
sinni á hátíðinni, þar á meðal
Ásgeir Trausti.
Eurosonic sækja 3.200 fulltrúar
úr tónlistarbransanum og 33.000
gestir. - fb
Fjórir bætast í hópinn
Sóley, Vök, Júníus Meyvant og Low Roar hafa bæst
við hátíðina Eurosonic sem verður haldin í janúar.
SÓLEY Sóley er á meðal þeirra sem
spila á Eurosonic. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www.fiskikongurinn.is
OPIÐ
ALLA LAUGARDAGA
10 - 15
Uppskrift af rækjukokteil er á
Facebook síðu Fiskikóngurins