Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2000, Side 9

Læknablaðið - 15.06.2000, Side 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN Geðheilbrigðisþ j ónusta fyrir börn og unglinga Ólafur Ó. Guðmundsson Höfundur er yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar Landspítala Dalbraut. ÞjÓNUSTA BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILDAR, nÚ Landspítala Dalbraut (BUGL), hefur breyst mikið á þeim 30 árum sem deildin hefur starfað. Fyrstu árin var megináherslan lögð á þjónustu á dag- og legu- deildum við tiltölulega fá börn með alvarleg geðræn- og þroskavandamál svo sem einhverfu en í dag fá hundruð barna og unglinga þjónustu á göngudeild. Auk göngudeildar eru á þremur innlagnardeildum BUGL 21 pláss, 15 sólarhringsrými, þar af tvö bráða- rými og sex dagrými. Frá 1998 hafa árlega borist um 500 nýjar tilvísanir til barna- og unglingageðdeildarinnar sem er mikil aukning frá árunum á undan. Um það bil fjórar af hverjum fimm tilvísunum verða að klínískum við- fangsefnum en í öðrum tilvikum hætta foreldrar við eða hafa fengið einhverja úrlausn á vandanum á meðan beðið er eftir þjónustu sem getur verið frá dögum upp í fáeina mánuði eftir eðli vandans. Þó að tilvísunum hafi fjölgað hefur biðtími eftir þjónustu ekki lengst heldur frekar styst, en hér ræður mestu innra skipulag, fjöldi fagfólks og hvers konar þjón- usta er veitt. Þrátt fyrir mikilvægi teymisvinnu verður ekki framhjá því litið að hlutur lækna við mat og meðferð geðraskana verður alltaf sá möndull sem teymisvinnan snýst um. Hér kemur til þekking lækna á frávikum í líkamlegri og andlegri starfsemi þeirrar heildar sem manneskjan er og áralöng þjálfun í mark- vissum aðferðum til að meta og meðhöndla frávik sem flokkast sem sjúkleg samkvæmt áreiðanlegum og gildum greiningaraðferðum. Sérfræðilæknar kosta meira í launum, bæði í dagvinnu og vegna vaktþjón- ustu, en þegar upp er staðið er nægur fjöldi sérfræði- lækna til að tryggja gæði og faglega þjónustu, grund- völlur allrar sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu. Ef þenn- an þátt vantar eða hann er ófullnægjandi, er hætt við að þjónustan verði ómarkvissari, lakari að gæðum og þegar upp er staðið, mun dýrari fyrir alla aðila. Þetta á ekki síst við í barna- og unglingageðlækningum en skortur á sérfræðingum í greininni hefur verið stærsta vandamálið við uppbyggingu sérfræðiþjónustunnar. Margt bendir til að breyting sé að verða á og áhugi unglækna sé að vakna fyrir mikilvægi og möguleikum þessarar sérgreinar bæði hérlendis og erlendis. Aukin áhersla á grundvallaratriði læknisfræðinnar um vinnubrögð sem byggja á faglegri þekkingu og rann- sóknum, læknislistinni og -fræðinni, eru líklegust til að vekja áhuga læknanema og unglækna. Þjónusta stofnana samfélagsins við börn og ung- linga í vanda, sérstaklega þeim sem tengist hegðun, líðan og vímuefnaneyslu, hefur töluvert verið til um- ræðu undanfarin ár. Yfirvöld hafa brugðist við og kallað saman starfshópa sem skilað hafa niðurstöð- um og tillögum meðal annars um framkvæmdaáætl- un um markvissa uppbyggingu þjónustunnar á mis- munandi stigum en slík áætlun liggur þó enn ekki fyrir (1-4). Þann 10. október 1998 skilaði starfshópur um stefnumótun í málefnum geðsjúkra skýrslu til heilbrigðisráðherra. í kaflanum um börn og unglinga eru tillögur í 10 liðum til úrbóta og starfshópurinn var sammála um að gera þessar tillögur að forgangsmáli allrar skýrslunnar. Tvö atriði eru að koma nú til framkvæmda, komið hefur verið á fót 25% lektors- stöðu í barna- og unglingageðækningum við lækna- deild og með nýlega undirrituðum samningi BUGL, Barnavgrndarstoíu og SÁÁ er opnað fyrir formlegt samstarf þessara aðila með hætti sem ekki hefur áður verið reyndur. Einnig var á síðasta ári gerð breyting á reglugerð sjúkratrygginga til hagsbóta fyrir fjölskyld- ur barna með geðraskanir sem leita eftir þjónustu utan stofnana. Loks hefur skýrsla starfshóps land- læknis um þjónustu utan stofnana litið dagsins ljós nú í maí 2000 þar sem fram koma ítarlegar tillögur til úr- bóta á þeim vettvangi. Má þar nefna tillögu um end- urvakningu á embætti skólayfirlæknis og leiðir til að auka þátt heilsugæslunnar í geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni (5). Foreldrar geta leitað með vandamál tengd geð- heilsu bama og unglinga til heilsugæslulækna eða skólinn leitar til þessara sömu lækna í hlutverki skólalækna. Heilsugæslan væri betur í stakk búin að sinna þessum vanda ef tengsl við sérfræðiþjónustuna væru betri og flæði upplýsinga á milli markvissara svo sem með læknabréfum. Einnig þyrfti að koma til aukin áhersla á teymisvinnu innan heilsugæslunnar til dæmis milli læknis, hjúkrunarfræðings og sálfræð- ings. Sumar stöðvar hafa tekið frumkvæðið í þessum efnum og má nefna sem dæmi samvinnu heilsugæsl- unnar og skólaskrifstofunnar á Akranesi með hand- leiðslu BUGL um þjónustu við ofvirk börn og þróun- arverkefnið Nýja barnið við Heilsugæslustöðina á Akureyri fyrir barnshafandi konur. Geðlæknar sjá tengslin milli geðræns vanda for- eldris og barns en beita flestir fyrst og fremst einstak- lingsbundnum meðferðarúrræðum sem einfaldari eru í framkvæmd en geta auðvitað hjálpað barninu í fjölskyldunni óbeint en samband milli geðheilsu for- Læknablaðið 2000/86 409

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.