Læknablaðið - 15.06.2000, Side 24
FRÆÐIGREINAR / HEILSUTENGD LfFSGÆÐI
Heilsutengd lífsgæði sjúklinga
fyrir og eftir meðferð
Tómas Helgason'
Júlíus K.
Björnsson2
Kristinn
Tómasson3
Erla Grétarsdóttir1
Halldór Jónsson
jr.5
Tómas Zoega1
Þórður Harðarson6
Guðmundur
Vikar Einarsson7
Ágrip
Tilgangur: Heilsutengd lífsgæði (HL) hafa í vaxandi
mæli verið notuð til að meta þörf fyrir læknismeð-
ferð, árangur hennar og gæði umönnunar. Tilgangur
rannsóknarinnar var að bera saman heilsutengd lífs-
gæði nokkurra sjúklingahópa fyrir og eftir meðferð
með HL-prófinu og athuga frekar réttmæti þess og
getu til að mæla breytingar á líðan fólks.
Efniviður og aðferðir: Sjúklingar sem biðu hjarta-
þræðingar, aðgerða á bæklunar- eða þvagfæraskurð-
deild, voru í meðferð á göngudeild geðdeildar eða
voru að byrja í meðferð vegna áfengissýki, samtals
1195 sjúklingar, voru beðnir að svara HL-prófinu.
Þremur mánuðum eftir meðferð voru þeir beðnir að
svara prófinu aftur. Niðurstöður prófanna voru staðl-
aðar samkvæmt viðmiðum eftir kyni og aldri svo að
hægt væri að sjá beint hvernig þær viku frá því sem
almennt gerist.
Niðurstöður. Heildarsvörun var 75% í hvorri um-
ferð. Allir sjúklingamir voru með skert lífsgæði á öll-
um þáttum prófsins miðað við jafnaldra þeirra,
hjarta- og þvagfærasjúklingar minna en bæklunar- og
geðsjúklingar. Skerðingin var sérkennandi fyrir
hvern hóp, sérstaklega aðgreindust bæklunar- og
geðsjúklingarnir greinilega hvor frá öðrum og frá
hinum. Eftir meðferð bötnuðu lífsgæðin eða ein-
hverjir þættir þeirra hjá öllum hópunum, mest þeir
sem höfðu verið lakastir fyrir.
Alyktanir: Með rannsóknum á heilsutengdum lífs-
gæðum er unnt að afla frekari þekkingar sem nýtist
við skipulagningu og framkvæmd heilbrigðisþjón-
ustu. HL-prófið er einfalt tæki til slíkra rannsókna,
réttmætt og áreiðanlegt.
ENGLISH SUMMARY
Helgason T, Björnsson JK, Tómasson K, Grétarsdóttir
E, Jónsson H jr., Zoéga T, Harðarson Þ, Einarsson GV
Health-related quality of life of patients before
and after treatment
Læknablaðið 2000; 86: xx-yy
Objective: Health-related quality of life (HRQL) is increas-
ingly used to estimate needs for medical treatment, to
evaluate its outcome and quality of care. The aim of this
study was to compare the HRQL of several diagnostic
groups before and after treatment with the HL-test (HL =
IQL, lcelandic Quality of Life test) and to study its validity
for measuring changes in quality of life.
Material and methods: Patients on waiting lists for coro-
nary catheterization, orthopedic or urologic operations,
patients in psychiatric out-patient treatment and patients
entering treatment for alcohol dependence were asked to
fill in the HL-test, a total of 1195 patients. Three months
after treatment they were retested. The results of tests
were standarized with population norms available to make
them directly comparable with those of the general popu-
lation.
Results: The response rate was 75% in each round. The
HRQL of all patients was reduced in all aspects compared
to that of the general population, that of the heart and
urology patients less so than that of the orthopedic and
psychiatric patients. Each group had a specific profile,
especially marked for the orthopedic and psychiatric
patients. Following treatment the HRQL or some aspects
of it improved in all groups, especially for those which it
•had been most impaired.
Conclusions: Studies of HRQL provide information useful
for planning and delivery of health services. The HL-test is
an instrument with good validity and reliability which is
easy to use for such studies.
Frá 'Ríkisspítölum, stjórnun-
arsviði, Rannsóknarstofnun
uppeldis- og menntamála,
3Vinnueftirliti rfkisins, at-
vinnusjúkdómadeild, 4geð-
deild, 5bæklunarskurðdeild,
'lyflækningadeild og ’þvag-
færaskurðdeild Landspítalans.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Tómas Helgason, Stigahlíð 75,
105 Reykjavík. Netfang:
tomashe@isholf.is
Lykilorð: HL-prófið, sjúkling-
ar, lífsgœði, meðferð, árangur.
Inngangur
Hefðbundið hlutverk læknisins er að lækna, líkna og
lina þjáningar. A seinni tímum hefur vaxandi áhersla
verið lögð á heilsuvemdarhlutverk læknisins, for-
varnir á ýmsum stigum og endurhæfingu. Jafnframt
hefur verið lögð síaukin áhersla á árangursmat og
gæðaeftirlit. Árangursmatið er hægt að framkvæma
með ýmsum stikum heilbrigðisfræðinnar. Árangur-
inn er þegar best lætur fólginn í lækningu, algerum
bata, en mjög oft verður að sætta sig við eitthvað
minna, sérstaklega að því er varðar langvinna sjúk-
dóma, sem mest eru áberandi nú á tímum, svo sem
ýmsa geðsjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, krabba-
mein, gigt og hrörnunarsjúkdóma. Aðalmarkmið
heilbrigðisþjónustu fyrir slíka sjúklinga er að ná eins
Key words: HL-test, patients, quality oflife, treatment,
outcome.
Correspondance: Tómas Helgason. E-mail:
tomashe@isholf.is
mikilli virkni og vellíðan og hægt er. Mælingar á
virkni og vellíðan geta spáð fyrir um kostnað vegna
heilbrigðisþjónustu og dauða. Marga þessa sjúkdóma
er hægt að ráða verulega við með nútíma aðferðum,
þó að þeir verði ekki læknaðir. Slíkt er hægt að mæla
líffræðilega sem lengingu lífs, breytingu á starfsgetu,
en mestu máli skiptir líðan sjúklingsins og lífsfylling,
að hann njóti viðunandi lífs eftir meðferð, það er að
heilsutengd lífsgæði hans aukist eftir meðferðina.
422 Læknablaðið 2000/86