Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2000, Page 24

Læknablaðið - 15.06.2000, Page 24
FRÆÐIGREINAR / HEILSUTENGD LfFSGÆÐI Heilsutengd lífsgæði sjúklinga fyrir og eftir meðferð Tómas Helgason' Júlíus K. Björnsson2 Kristinn Tómasson3 Erla Grétarsdóttir1 Halldór Jónsson jr.5 Tómas Zoega1 Þórður Harðarson6 Guðmundur Vikar Einarsson7 Ágrip Tilgangur: Heilsutengd lífsgæði (HL) hafa í vaxandi mæli verið notuð til að meta þörf fyrir læknismeð- ferð, árangur hennar og gæði umönnunar. Tilgangur rannsóknarinnar var að bera saman heilsutengd lífs- gæði nokkurra sjúklingahópa fyrir og eftir meðferð með HL-prófinu og athuga frekar réttmæti þess og getu til að mæla breytingar á líðan fólks. Efniviður og aðferðir: Sjúklingar sem biðu hjarta- þræðingar, aðgerða á bæklunar- eða þvagfæraskurð- deild, voru í meðferð á göngudeild geðdeildar eða voru að byrja í meðferð vegna áfengissýki, samtals 1195 sjúklingar, voru beðnir að svara HL-prófinu. Þremur mánuðum eftir meðferð voru þeir beðnir að svara prófinu aftur. Niðurstöður prófanna voru staðl- aðar samkvæmt viðmiðum eftir kyni og aldri svo að hægt væri að sjá beint hvernig þær viku frá því sem almennt gerist. Niðurstöður. Heildarsvörun var 75% í hvorri um- ferð. Allir sjúklingamir voru með skert lífsgæði á öll- um þáttum prófsins miðað við jafnaldra þeirra, hjarta- og þvagfærasjúklingar minna en bæklunar- og geðsjúklingar. Skerðingin var sérkennandi fyrir hvern hóp, sérstaklega aðgreindust bæklunar- og geðsjúklingarnir greinilega hvor frá öðrum og frá hinum. Eftir meðferð bötnuðu lífsgæðin eða ein- hverjir þættir þeirra hjá öllum hópunum, mest þeir sem höfðu verið lakastir fyrir. Alyktanir: Með rannsóknum á heilsutengdum lífs- gæðum er unnt að afla frekari þekkingar sem nýtist við skipulagningu og framkvæmd heilbrigðisþjón- ustu. HL-prófið er einfalt tæki til slíkra rannsókna, réttmætt og áreiðanlegt. ENGLISH SUMMARY Helgason T, Björnsson JK, Tómasson K, Grétarsdóttir E, Jónsson H jr., Zoéga T, Harðarson Þ, Einarsson GV Health-related quality of life of patients before and after treatment Læknablaðið 2000; 86: xx-yy Objective: Health-related quality of life (HRQL) is increas- ingly used to estimate needs for medical treatment, to evaluate its outcome and quality of care. The aim of this study was to compare the HRQL of several diagnostic groups before and after treatment with the HL-test (HL = IQL, lcelandic Quality of Life test) and to study its validity for measuring changes in quality of life. Material and methods: Patients on waiting lists for coro- nary catheterization, orthopedic or urologic operations, patients in psychiatric out-patient treatment and patients entering treatment for alcohol dependence were asked to fill in the HL-test, a total of 1195 patients. Three months after treatment they were retested. The results of tests were standarized with population norms available to make them directly comparable with those of the general popu- lation. Results: The response rate was 75% in each round. The HRQL of all patients was reduced in all aspects compared to that of the general population, that of the heart and urology patients less so than that of the orthopedic and psychiatric patients. Each group had a specific profile, especially marked for the orthopedic and psychiatric patients. Following treatment the HRQL or some aspects of it improved in all groups, especially for those which it •had been most impaired. Conclusions: Studies of HRQL provide information useful for planning and delivery of health services. The HL-test is an instrument with good validity and reliability which is easy to use for such studies. Frá 'Ríkisspítölum, stjórnun- arsviði, Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála, 3Vinnueftirliti rfkisins, at- vinnusjúkdómadeild, 4geð- deild, 5bæklunarskurðdeild, 'lyflækningadeild og ’þvag- færaskurðdeild Landspítalans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Tómas Helgason, Stigahlíð 75, 105 Reykjavík. Netfang: tomashe@isholf.is Lykilorð: HL-prófið, sjúkling- ar, lífsgœði, meðferð, árangur. Inngangur Hefðbundið hlutverk læknisins er að lækna, líkna og lina þjáningar. A seinni tímum hefur vaxandi áhersla verið lögð á heilsuvemdarhlutverk læknisins, for- varnir á ýmsum stigum og endurhæfingu. Jafnframt hefur verið lögð síaukin áhersla á árangursmat og gæðaeftirlit. Árangursmatið er hægt að framkvæma með ýmsum stikum heilbrigðisfræðinnar. Árangur- inn er þegar best lætur fólginn í lækningu, algerum bata, en mjög oft verður að sætta sig við eitthvað minna, sérstaklega að því er varðar langvinna sjúk- dóma, sem mest eru áberandi nú á tímum, svo sem ýmsa geðsjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, krabba- mein, gigt og hrörnunarsjúkdóma. Aðalmarkmið heilbrigðisþjónustu fyrir slíka sjúklinga er að ná eins Key words: HL-test, patients, quality oflife, treatment, outcome. Correspondance: Tómas Helgason. E-mail: tomashe@isholf.is mikilli virkni og vellíðan og hægt er. Mælingar á virkni og vellíðan geta spáð fyrir um kostnað vegna heilbrigðisþjónustu og dauða. Marga þessa sjúkdóma er hægt að ráða verulega við með nútíma aðferðum, þó að þeir verði ekki læknaðir. Slíkt er hægt að mæla líffræðilega sem lengingu lífs, breytingu á starfsgetu, en mestu máli skiptir líðan sjúklingsins og lífsfylling, að hann njóti viðunandi lífs eftir meðferð, það er að heilsutengd lífsgæði hans aukist eftir meðferðina. 422 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.