Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F VETTVANGI LÆKNASAMTAKANNA
Formannaráðstefna læknasamtakanna
Símenntun og sameining sjúkrahúsa
Fylgst meö umrœðum á
formannaráðstefnunni.
„Ef við segjum að Læknafélag Íslands sé pabbinn
í læknasamtökunum þá er Læknafélag Reykjavíkur
mamman og hefur það hlutverk að sjá til þess að
börnin tali saman, fari snemma að sofa og mæti í
skólann.“ Þannig lýsti Olafur Þór Ævarsson formað-
ur LR uppbyggingu læknasamtakanna á formanna-
ráðstefnu Læknafélags íslands sem haldin var föstu-
daginn 12. maí síðastliðinn.
Á ráðstefnunni voru samankomnir á fjórða tug
forsvarsmanna hinna ýmsu aðildarsamtaka LÍ,
svæðafélaga um allt land og sérgreinafélaga auk
trúnaðarmanna í nefndum og ráðum. Tilgangurinn
með þessari ráðstefnu er að líta yfir sviðið á miðju
starfsári, greina frá því sem er að gerast hjá hverj-
um og einum og fræðast um það sem er að gerast í
öðrum deildum.
Formaður LÍ, Sigurbjörn Sveinsson, reið á vaðið
og greindi frá því helsta sem hefur verið að gerast
hjá stjórn LÍ en þar bar hæst umræður um fjármál
og húsnæðismál samtakanna, vefsíðu og sam-
einingu sjúkrahúsa, að ógleymdum viðræðum sem
staðið hafa yfir milli stjórnarinnar og forsvars-
manna íslenskrar erfðagreiningar um gagna-
grunnsmálið. Formaðurinn sagði að þar þokuðust
mál fram á veg, enn væru ýmis álitamál óleyst en
flest virtust þó leysanleg nema ef til vill eitt. Ekki
tilgreindi hann það nánar og var hinn varkárasti í
tali um þessar viðræður.
Sameining tefur samningagerð
Fulltrúar úr samninganefndum skýrðu frá því sem
gerst hefur á þeirra vettvangi en flestir hópar lækna
eru með lausa samninga á þessu ári. Ingunn Vil-
hjálmsdóttir formaður samninganefndar sjúkrahús-
lækna sagði að lítið hefði miðað í samningum enda
hefði sameining sjúkrahúsanna sett strik í reikning-
inn. Við hana skapaðist óvissa um stöðu sumra hópa,
til dæmis vissi samninganefndin ekki hvort hún ætti
að semja fyrir sviðsstjóra í framtíðinni, þeir hefðu
fyrst og fremst fengist við fjármál en nú ættu þeir
einnig að gerast faglegir og þá breyttist staða þeirra
hugsanlega. Annað óvissuatriði væri staða þeirra sem
reka stofu úti í bæ, en frá yfirstjórn sjúkrahúsanna
hefur komið fram sú hugmynd að þeir verði einungis
í hlutastöðum á sjúkrahúsunum. Þá á eftir að manna
þær stöður sem losna.
Þórður Sverrisson í samninganefnd sérfræði-
lækna sagði að nefndin hefði átt í stöðugum við-
ræðum við Tryggingastofnun en lítið hefði miðað.
Það ylli töluverðum vanda hversu mikill vöxtur
hefur verið á sjálfstæðri starfsemi sérfræðinga utan
sjúkrahúsa en á síðasta ári varð 15% fjölgun á
samningum sérfræðinga við TR. Olafur F. Magn-
ússon hafði svipaða sögu að segja af samningamál-
um sjálfstætt starfandi heimilislækna en þeir eru í
þeirri sérkennilegu stöðu að endurnýjun stéttar-
innar hefur verið bönnuð um nokkurt skeið.
Fannst Ólafi það skjóta skökku við í miðri einka-
væðingunni.
Er símenntun mælanleg?
Lífeyrismál voru nokkuð til umræðu á fundinum en
þeim eru gerð sérstök skil hér í opnunni. Auk þess
töluðu forsvarmenn Læknablaðsins, orðanefndar og
Orlofssjóðs og báru sig allir nokkuð vel. Fram kom
að Orlofssjóður keypti nýjan bústað í vor og er hann
í Vaðnesi í Grímsnesi.
Stefán E. Matthíasson formaður Fræðslustofn-
440 Læknablaðið 2000/86