Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
Katrín Fjeldsted
Opinn gluggi til Evrópu
Undir lok si'ðasta árs fól stjórn Læknafélags
Islands mér að vera fulltrúi félagsins í CP, Comité
Permanent des Médecins Européens (á ensku:
Standing Committee of European Doctors). Með
þessari grein langar mig að gera nokkra grein fyrir
CP, lesendum Læknablaðsins til fróðleiks.
CP var stofnað í Amsterdam 1959 og hefur átt að-
setur í miðdepli möppudýragarðs Evrópu, Briissel,
frá 1992. Margir telja skynsamlegt að koma fleiri
stofnunum lækna fyrir á sama stað og hefur meðal
annars verið rætt um það hjá UEMO. CP má kalla
regnhlífarsamtök fyrir helstu samevrópsku lækna-
samtökin svo sem UEMS, UEMO, PWG, FEMS,
AEMH og CIO. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
og Alheimssamtök læknanema (IFMSA) eiga einnig
aðild að CP. Núverandi formaður samtakanna er
Finninn Markku Aarimaa og nýr framkvæmdastjóri
norski læknirinn Grethe Aasved.
CP hefur haft áhrif á stefnu Evrópulanda í heil-
brigðismálum og á hlutverk, menntun og atvinnu-
möguleika evrópskra lækna. Samtökin leggja megin-
áherslu á að Evrópuþjóðum standi til boða sem best
heilbrigðisþjónusta og að læknar séu vel menntaðir
og sinni vel starfi sínu. Frjáls för evrópskra lækna
milli landa og sameiginlegur vinnumarkaður byggir
ekki síst á því að menntunar- og þjálfunarkröfur séu
sambærilegar frá einu landi til annars. Innan CP er
mikil þekking á heilbrigðismálum og öllu því sem
tengist læknastéttinni. CP vill vera í góðu samstarfi
við allar helstu stofnanir innan Evrópusambandsins.
Þar er fylgst vel með þróun mála og brugðist við eins
og við á auk þess sem samtökin taka forystu í ýmsum
mikilvægum málum sem snerta lækna og sjúklinga.
CP heldur að jafnaði tvo fundi á ári og fór ég á
fyrsta fund minn 6.-8. apríl síðastliðinn. A fundinum
voru fulltrúar frá 17 aðildarlöndum, en þau eru auk
Norðurlandanna, Austurríki, Belgía, Frakkland,
Þýskaland, Grikkland, írland, Ítalía, Lúxemborg,
Holland, Portúgal, Spánn og Bretland. Þá eiga ofan-
nefnd Evrópu- og alheimssamtök aukaaðild og setu-
rétt þar fyrir utan eiga fulltrúar frá Ungverjalandi,
Póllandi, Slóveníu og Sviss. Alls sóttu fundinn hátt í
lOOmanns.
Á fundinum hitti ég gamla félaga frá norrænu
samstarfi fyrri ára og einnig frá UEMO, þar á meðal
formann finnsku læknasamtakanna Kati Myllymaki,
Max Zollner frá Þýskalandi (en 14 fulltrúar komu
þaðan), Mogens Gliese, Tom Kennedy og Jasper
Poulsen frá Danmörku (Danmörk sendi hvorki
meira né minna en sjö fulltrúa á fundinn, enda eru
þeir mjög virkir í þessu starfi) en auk þess átti ég gott
samstarf við sessunaut minn, írska fulltrúann Neil
Brennan, og þijá breska lækna, Roger Chapman,
Len Harvey og Michael Wilks. Sá síðastnefndi hefur
starfað talsvert gegn hnefaleikum fyrir BMA og gat
hann gefið mér upplýsingar um afstöðu breska
læknafélagsins sem voru mér gagnlegar þar sem ég
hef unnið að því að lögum frá 1956 sem banna hnefa-
leika verði ekki breytt. Rainer Brettenthaler frá
Austurríki er enn sami bókaormurinn og við skipt-
umst á upplýsingum um skemmtilegar bækur eins og
venjulega.
Segja má að markmið um bestu heilbrigðisþjón-
ustu sem hægt er að veita hafi beðið nokkurt afhroð á
h'ðandi áratug vegna þess að allmikill munur og vax-
andi er á milli þess sem læknisfræðin getur tæknilega
séð gert og þess sem þjóðir álfunnar hafa efni á. Sums
staðar eru of fáir læknar til að sinna verkefnunum en
annars staðar er Iæknastéttin of fjölmenn. Þá hefur
stefnu Evrópulanda um frjálsa för og viðskipti milli
landa verið ógnað á þessum síðasta áratug 20. aldar
með sjúkdómi í breskum nautgripum og díoxínmeng-
un í gosdrykkjum á meginlandinu svo eitthvað sé
nefnt. Slík atvik hræða almenning og gera okkur öll
meðvitaðri um þær hættur sem geta fylgt því að
hindrunum sé rutt burt af matvælamarkaðnum.
Læknar í Evrópu láta sig varða öryggi matvæla og
fjalla meðal annars. um Eurodiet sem er Evrópusam-
bandsverkefni og á fundinum var vakin athygli á því
að stofnunum sem annast eiga hagsmuni almennings
hafi sums staðar verið komið á fót. Á írlandi er þann-
ig til Food Safety Authority og er formaður þess
læknir, sýklafræðingur, sem reglulega kemur fram í
sjónvarpi og hefur haft gríðarmikil áhrif Innan stofn-
unar hans koma fram sjónarmið allra hagsmunaaðila,
allt frá framleiðendum matvæla til neytandans, en
megináhersla er lögð á hagsmuni neytandans og
öryggi almennings. Spurt var á fundinum hvort sam-
bærilegar stofnanir væru í öðrum CP löndum.
Á fundinum í apríl var fjallað um afar mörg og
fjölbreytt málefni svo sem siðfræði, rekstur, læknis-
menntun, umhverfismál, tölvuvæðingu sjúkraskrár-
innar, sjúkrahúslækna, atvinnusjúkdóma, vinnuskil-
yrði, upplýst samþykki (en af því að ég blandaði mér
í umræðumar var ég valin í vinnuhóp um upplýst
samþykki ásamt Wilks, Brettenthaler, van Leeuwen
Læknablaðið 2000/86 445