Læknablaðið - 15.06.2000, Síða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPUSAMSTARF LÆKNA
og Joset), lágmarkslengd framhaldsnáms, réttindi
fóstursins, lyfjaávísanir, vinnutíma unglækna og
fleira. Mörgum finnst erfitt að breyta nokkru eða ná í
gegn nýjum hugmyndum innan samtakanna, og að
jafnvel geti tekið tvö ár að breyta einni kommu í
texta!! Einn fundarmaður sagði að Evrópusamband-
ið væri í óða önn að skilgreina grænmeti (stærð, lögun
og lit á eplum til dæmis eða hversu íbjúgir bananar
mættu vera) en vanrækti mikilvægari mál eins og
mannréttindi. Ekki ætla ég að leggja mat á það.
Líkast til er skriffinnska og seinagangur samevr-
ópskt vandamál sem margir halda fram að tröllríði
flestum stofnunum Evrópusambandsins. A CP fund-
inum reyndi breska sendinefndin ásamt þeirri
dönsku (enn eina ferðina) að fá samþykkta tillögu
CP 2000/051 um að Evrópusambandsákvæðum um
lengd framhaldsnáms í heimilislækningum yrði kom-
ið fyrir í sérstökum viðauka, Annex D um leið og
fyrirmælum um skilgreiningu á sérfræðigreinum í
læknisfræði og lágmarkslengd á framhaldsnámi verð-
ur komið fyrir í Annex C en ekki látið standa í tilskip-
un 93/16/EC eins og verið hefur. Þessi tillaga fékk 12
atkvæði, einn var á móti og fjórir sátu hjá. Tillagan
féll þótt atkvæði færu 12:1 en til þess að tillaga sé
samþykkt þarf nefnilega 3/4 hluta atkvæða eins og
regla er í Evrópustarfi og þá eru hjásetur reiknaðar
með í atkvæðatalningu. Tillagan fékk samkvæmt
þessu 12 atkvæði af 17 eða rúm 70%. Þetta fannst
Dönunum alveg ómögulegt og líkast til verður haldið
áfram að kljást við þetta á næsta fundi.
Tillaga CP 2000/049 var um vinnutímatilskipun
Evrópusambandsins og var hún samþykkt. Þar kem-
ur fram að samkomulag milli Evrópuþings og Evr-
ópuráðherra sé skref í rétta átt en unglæknar í sum-
um Evrópulöndum vinni þó enn hættulega iangan
vinnudag. CP leit á það sem óréttlátt og ónauðsynlegt
að undanskilja unglækna þegar vinnutímatilskipunin
var samþykkt og hefur ásamt PWG reynt að fá því
breytt bæði til að vemda öryggi þeirra og heilsu og
ekki síður sjúklinganna. CP fordæmdi þá staðreynd
að ráðherraráðið skyldi krefjast níu ára aðlögunar-
tíma að því að unglæknar ynnu 48 tíma vinnuviku og
ekki síður að aðildarlöndum skuli heimilað að fram-
lengja aðlögunartímann um þrjú ár enn í vissum til-
vikum. Aðildarríki voru hvött til þess að taka tilskip-
unina upp hið fyrsta í stað þess að stofna heilsu ung-
lækna og sjúklinga þeirra í hættu.
Tillaga CP 2000/020 frá prófessor Detilleux frá
Frakklandi um samheitalyf var samþykkt. Hún er all-
ítarleg og fjallar um þá tilhneigingu að lyfjafræðing-
um gæti í vaxandi mæli verið heimilað að afgreiða
annað lyf en það sem skráð er á lyfseðli. Ekki komi til
greina að þeim verið heimilað að afgreiða lyf úr öðr-
um lyfjaflokki með „svipaða verkun", heldur verði
að vera um sama generiskt lyf að ræða og byggt á
INN flokkun innihaldsefna. Heilbrigðisyfirvöldum sé
gert skylt að halda skrá fyrir lækna yfir samheitalyf
og krefjast eigi þess í aðildarríkjunum að lyf beri INN
heiti.
Tillaga CP2000/036 var einnig samþykkt. Hún
byggir á frjálsi för og rétti til að leita eftir þjónustu
milli Evrópulanda, rétti til heilbrigðisþjónustu af
hæsta gæðaflokki og valfrelsi almennings. Þar segir
meðal annars að sjúklingar eigi að hafa rétt á viðeig-
andi heilbrigðisþjónustu í hvaða Evrópusambands-
landi sem er, þeir eigi rétt á því að heilbrigðisþjónust-
an sé veitt í samræmi við þá gæðastaðla sem lækna-
stétt hvers lands setur og einnig rétt á því að þeirra
eigið tryggingakerfi endurgreiði kostnað í samræmi
við siðfræðileg sjónarmið og lagaramma í heimaland-
inu.
Tillaga CP 2000/048 snýst um viðvaranir á tóbaks-
vörum og baráttu gegn skaðsemi tóbaks. Evrópuráð-
ið hefur verið að vinna að tilskipun um skaðsemi tób-
aks og Evrópuþing og ráðherrar hafa ákveðið að
gera tilskipunina að forgangsverkefni. Því hvetur CP
þessa aðila til að beita sér fyrir strangri löggjöf og
einsetja sér að draga úr dauðsföllum af völdum tób-
aksreyks fremur en að láta undan hagsmunaaðilum
sem framleiða og selja tóbaksvörur. Tillaga þessi var
samþykkt samhljóða.
Ég hef haldið öllum gögnum um fundinn til haga
og geta kollegar haft samband við mig til að fá nánari
upplýsingar um einstök atriði. Ég vonast þó til að
gögnin verði varðveitt framvegis í húsnæði LI og
þannig gerð aðgengileg fyrir félagsmenn.
Ég hef hér einungis sagt frá nokkrum samþykkt-
um fundarins sem ég tel að gætu verið áhugaverðar
fyrir íslenska lækna. Næsti fundur CP verður í Finn-
landi í lok ágústmánaðar. Með samstarfi af þessu tagi
eru íslenskir læknar að opna gluggann yfir til Evrópu
á áhrifaríkan hátt, því að þar er víða að finna ferska
hugsun auk þess sem viðfangsefnin reynast ótrúlega
keimlík því sem við þekkjum í túninu heima.
446 Læknablaðið 2000/86