Læknablaðið - 15.06.2000, Side 49
Ahrífaríkt
28% sjúklinga fá merkjanleg áhrif innan
j 12 klukkustunda
Mómetasón fúróat er öflugur barksteri (af flokki III)
\öruggt
Lítil hætta .§r á kerfisbundnum áhrifum (< 0,1%)
Lág tíðni blóðriasa (8% á móti 5% lyfleysu)
Einfalt "
Einn skammtur á dag
Handhægar umbúðir
Nasonex
mómetason
fúróat - nefúði, dreifa
- nýr barksteri í vatnslausn
Scharlng-Plough
180
lasonex
50 mikrog/dos/annos
Nasonex Schering-Plough A/S, 960233
NEFÚÐI, DREIFA; R 01 A D : R E
Hver úðaskammtur inniheldur: Mometasonum INN, furoate, monohydrat, samsvarandi Mometasonum INN, furoate 50 mikróg.
Ábendingar: Nasonex nefúði er notaður fyrir fullorðna og börn 12 ára og eldri til meðhöndlunar á árstíðabundnum eða heilsárseinkennum ofnæmisnefkvefs.Hjá
sjúklingum sem hafa sögu um miðlungs eða alvarleg einkenni af árstíðabundnu ofnæmisnefkvefi, má nota Nasonex fyrirbyggjandi í allt að fjórar vikur áður en
frjókornatímabilið hefst.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum Nasonex. Ekki ætti að nota Nasonex ef um ómeðhöndlaða, staðbundna sýkingu er að ræða í nefslímhúð. Sjúklingar,
sem nýlega hafa gengist undir skurðaðgerðir á nefi eða eru með áverka á nefi, ættu ekki að nota barkstera í nef fyrr en sárin hafa gróið að fullu, þar sem þeir
hamla að sár grói.
Varúð: Nasonex nefúða skyldi ekki nota, eða þá með mikilli varúð, ef sjúklingar hafa virka eða óvirka berklasýkingu í öndunarfærum eða ómeðhöndlaða sveppa-
sýkingu, bakteríusýkingu, útbreidda veirusýkingu eða herpessýkingu í auga. Eftir 12 mánaða meðferð með Nasonex nefúða sáust engin merki um rýrnun i
nefslímhúð. Eins og við alla iangtímameðferð þarf að skoða reglubundið þá sjúklinga sem nota lyfið í nokkra mánuði eða lengur, m.t.t. hugsanlegra breytinga i
nefslímhúð. Ef staðbundnar sveppasýkingar koma fram í nefi eða
koki þarf hugsanlega að hætta Nasonex nefúðameðferð.Ef um langvarandi ertingu í nefi og koki er að ræða kann að vera ástæða til að hætta meðferð með Naso
nex. Þegar farið er yfir i meðferð með Nasonex nefúða, dreifu eftir almenna sterameðferð finna sumir sjúklingar í fyrstu fyrir einkennum um fráhvarf frá kerfis-
sterameðferð t.d. lið- og/eða vöðvaverkir, slappleiki og þunglyndi þrátt fyrir að einkennin frá nefi lagist. Þessa sjúklinga þarf að hvetja sérstaklega til að halda á-
fram að nota lyfið. Þegar slík meðferðarbreyting er gerð geta komið fram einkenni um aðra ofnæmissjúkdóma svo sem augnslímhúðarbólga og exem sem héld-
ust í skefjum vegna almennu sterameðferðarinnar. Vara ætti ónæmisbælda sjúklinga, sem eru á sterameðferð, við hættunni á sýkingum (t.d. hlaupabólu og misl-
ingum) og um mikilvægi þess að leita sér læknishjálpar ef þeir verða fyrir slíkum sýkingum. Eins og við notkun annarra barkstera i nef ætti aðeins að nota Naso
nex hjá þunguðum konum eða konum sem hafa börn á brjósti, ef gagnið af meðferðinni vegur meira en hugsanleg áhætta fyrir móður, fóstur eða ungbarn. Börn
sem eru fædd af mæðrum sem fengið hafa barkstera á þungunartímabilinu þarf að athuga sérstaklega m.t.t. nýrnahettubarkarbilunar.
Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem fram hafa komið í klínískum prófunum eru eftirfarandi: Höfuðverkur (8%), blóðnasir (8%), kokbólga (4%), sviði í nefi
(2%) og erting í nefi (2%). Þessar aukaverkanir eru einkennandi þegar barkesterar eru notaðir í nefúða. Blóðnasir voru yfirleitt minniháttar og stöðvuðust af
sjálfu sér.
Skammtastærðir handa fullorðnum (þ.m.t. aldraðir) og börnum 12 ára og eldri: Venjulegur ráðlagður skammtur er 2 úðanir (50 mikróg/úðun) í hvora nös einu
sinni á dag (heildarskammtur 200 míkróg). Þegar sjúkdómseinkennin hafa lagast má minnka skammtinn í
eina úðun í hvora nös (heildarskammtur 100 míkróg). Ef einkenni lagast ekki má auka skammtinn i 4 úðanir í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 400
míkróg).Við meðferð með Nasonex nefúða fást merkjanleg áhrif innan 12 klst. eftir fyrsta skammt hjá mörgum sjúklingum sem þjást af árstíðabundnu ofnæmis-
nefkvefi. Samt sem áður geta
liðið nokkrir dagar áður en full verkun næst. Þessir sjúklingar ættu því að halda meðferð
áfram þar til fullum áhrifum er náð. Ekki er vitað um lækningalegt gildi lyfsins fyrir börn
undir 12 ára aldri og er ekki mælt með Nasonex fyrir þennan aldurshóp.
Pakkningar og verð: 1 úðastaukur, 18 g (120 úðaskammtar).
Heildsöluverð án vsk. 1.365.-
Smásöluverð með vsk. 2.747.-
Umboðsaðili:
/OO
ISFARM clií!
Schering-Plough