Læknablaðið - 15.06.2000, Side 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐLEGAR SAMÞYKKTIR
Yfirlýsing um sjálfsforræði lækna
Samráðsfundur landsfélaga lækna í Evrópu
og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar haldinn í Varsjá,
Póllandi 17. til 19. marz 2000
1. vitandi um yfirlýsingu Samráðsfundar landsfé-
laga lækna í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar í Tel Aviv í Israel 9. marz 1999;
2. staðfestir á ný, að frumskylda lækna felst í um-
önnun* sjúklinganna;
3. viðurkennir, að verulegt og viðeigandi sjálfsfor-
ræði er ómissandi þáttur í því, að læknar geti uppfyllt
starfsskyldur sínar við sjúklinga sína og farið eftir
þeim siðareglum, sem gilda l'yrir læknastéttina;
4. samþykkir, að tilsvarandi skylda af hálfu lækna
krefst þess, að tryggð sé ábyrg, virk og gagnsæ eigin
stjórnun af hálfu læknastéttarinnar;
5. leggur á það áherzlu, að einstakir læknar og
læknastéttin í heild taki mið af innviðum, úrræðum
og menningu þess samfélags, sem þau eru hluti af;
6. staðfestir á ný, að sem hluta af ferli eigin stjórn-
unar axli læknar sem starfsstétt ábyrgð á því að setja
gæðastaðla fyrir umönnun, sem einstakir læknar
veita sjúklingum sínum;
7. samþykkir, að samfélagið veitir læknum sjálfs-
forræði í starfi, að samfélagið krefst tilsvarandi
ábyrgðar af hálfu læknastéttarinnar og að það er
grunnur þess trúnaðartrausts er samfélagið sýnir
læknum;
8. vekur athygli á yfirlýsingum Alþjóðafélags
lækna um sjálfsforræði og sjálfsstjórnun (Madrid
1987) og um réttindi sjúklingsins (Lissabon 1980, Balí
1995), svo og yfirlýsingu Fastanefndar lækna í Evr-
ópu urn sjálfsforræði í starfi og um ábyrgð (1999);
9. álítur að umönnun sjúklinga* og sjálfsforræði
lækna séu í hættu í hvert sinn sem starfsfrelsi er skert,
þegar kostnaði er haldið niðri eða þjónusta er
skömmtuð af efnahagsástæðum;
Samráðsfundur landsfélaga lækna í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar haldinn í Varsjá, Póllandi 17. til 19. marz 2000
hefir alvarlegar áhyggjur af veitingu einkaleyfa á genamengi mannsins og raða
úr því, einkum til þeirra sem gæta viðskiptahagsmuna,
deilir þeirri skoðun, að þetta sé málefni, sem vísindasamfélagið eigi ekki eitt sér
að ákvarða um og
hvetur landsfélög lækna til þess að stuðla að opinberri umræðu um þau alvar-
legu siðfræðilegu og siðrænu vandamál, sem tengjast veitingu þessarar gerðar
einkaleyfa og að því, að í umræðunni taki þátt almennir borgarar, stjómmála-
menn og vísindasamfélagið.
íslensk þýðing © Örn Bjarnason 2000
Yfirlýsing um
einkaleyfi á
genamengi
mannsins
10. álítur að nauðsynlegt sé, að löggjöf um störf
þeirra, sem veitt er fullt leyfi til lækninga, skuli taka
mið af eftirfarandi íhugun og meginreglum, sem
varða hlutverk þeirra í samfélaginu:
a) Læknar þurfa að hafa sjálfsforræði í starfi til þess
að taka klínískar ákvarðanir varðandi umönnun
sjúklinga*.
b) Traust það, sem samfélagið hefir á læknum, gerir
réttmætt að þeim sé veitt viðeigandi sjálfsforræði í
starfi.
c) Það er skylda lækna að vernda trúnað við sjúk-
linga, þegar þeir rækja starf sitt í þágu beztu hags-
muna sjúklingsins og réttinn til þess að rækja
þessa skyldu ber að lögfesta.
d) Allir læknar ættu að hafa rétt til að starfa sjálf-
stætt.**
e) Læknum ætti ekki að refsa, fjárhagslega eða á
annan hátt, þegar þeir leitast við að tryggja sjúk-
um og varnarlausum
-jafnan aðgang að virkri meðferð og
- að tiltæk séu nægileg úrræði til þess að hægt sé
annast um sérhvem sjúkling.
f) Lagaákvæði er varða sjálfsforræði lækna mega
ekki ganga í berhögg við ákvæði Alþjóðasiða-
reglna lækna (London 1949, Sidney 1968, Feneyj-
um 1988, Stokkhólmi 1994).
* Að því er þetta skjal varðar, ná orðin "umönnun sjúklinga" til
forvarna, greiningar, meðferðar, endurhæfingar og hæfmgar.
** Vegna ákvæða í stofnskránni getur Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in (WHO) ekki tekið afstöðu til þessa atriðis.
íslensk þýðing © Örn Bjarnason 2000
448 Læknablaðið 2000/86