Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2000, Page 50

Læknablaðið - 15.06.2000, Page 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐLEGAR SAMÞYKKTIR Yfirlýsing um sjálfsforræði lækna Samráðsfundur landsfélaga lækna í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar haldinn í Varsjá, Póllandi 17. til 19. marz 2000 1. vitandi um yfirlýsingu Samráðsfundar landsfé- laga lækna í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar í Tel Aviv í Israel 9. marz 1999; 2. staðfestir á ný, að frumskylda lækna felst í um- önnun* sjúklinganna; 3. viðurkennir, að verulegt og viðeigandi sjálfsfor- ræði er ómissandi þáttur í því, að læknar geti uppfyllt starfsskyldur sínar við sjúklinga sína og farið eftir þeim siðareglum, sem gilda l'yrir læknastéttina; 4. samþykkir, að tilsvarandi skylda af hálfu lækna krefst þess, að tryggð sé ábyrg, virk og gagnsæ eigin stjórnun af hálfu læknastéttarinnar; 5. leggur á það áherzlu, að einstakir læknar og læknastéttin í heild taki mið af innviðum, úrræðum og menningu þess samfélags, sem þau eru hluti af; 6. staðfestir á ný, að sem hluta af ferli eigin stjórn- unar axli læknar sem starfsstétt ábyrgð á því að setja gæðastaðla fyrir umönnun, sem einstakir læknar veita sjúklingum sínum; 7. samþykkir, að samfélagið veitir læknum sjálfs- forræði í starfi, að samfélagið krefst tilsvarandi ábyrgðar af hálfu læknastéttarinnar og að það er grunnur þess trúnaðartrausts er samfélagið sýnir læknum; 8. vekur athygli á yfirlýsingum Alþjóðafélags lækna um sjálfsforræði og sjálfsstjórnun (Madrid 1987) og um réttindi sjúklingsins (Lissabon 1980, Balí 1995), svo og yfirlýsingu Fastanefndar lækna í Evr- ópu urn sjálfsforræði í starfi og um ábyrgð (1999); 9. álítur að umönnun sjúklinga* og sjálfsforræði lækna séu í hættu í hvert sinn sem starfsfrelsi er skert, þegar kostnaði er haldið niðri eða þjónusta er skömmtuð af efnahagsástæðum; Samráðsfundur landsfélaga lækna í Evrópu og Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar haldinn í Varsjá, Póllandi 17. til 19. marz 2000 hefir alvarlegar áhyggjur af veitingu einkaleyfa á genamengi mannsins og raða úr því, einkum til þeirra sem gæta viðskiptahagsmuna, deilir þeirri skoðun, að þetta sé málefni, sem vísindasamfélagið eigi ekki eitt sér að ákvarða um og hvetur landsfélög lækna til þess að stuðla að opinberri umræðu um þau alvar- legu siðfræðilegu og siðrænu vandamál, sem tengjast veitingu þessarar gerðar einkaleyfa og að því, að í umræðunni taki þátt almennir borgarar, stjómmála- menn og vísindasamfélagið. íslensk þýðing © Örn Bjarnason 2000 Yfirlýsing um einkaleyfi á genamengi mannsins 10. álítur að nauðsynlegt sé, að löggjöf um störf þeirra, sem veitt er fullt leyfi til lækninga, skuli taka mið af eftirfarandi íhugun og meginreglum, sem varða hlutverk þeirra í samfélaginu: a) Læknar þurfa að hafa sjálfsforræði í starfi til þess að taka klínískar ákvarðanir varðandi umönnun sjúklinga*. b) Traust það, sem samfélagið hefir á læknum, gerir réttmætt að þeim sé veitt viðeigandi sjálfsforræði í starfi. c) Það er skylda lækna að vernda trúnað við sjúk- linga, þegar þeir rækja starf sitt í þágu beztu hags- muna sjúklingsins og réttinn til þess að rækja þessa skyldu ber að lögfesta. d) Allir læknar ættu að hafa rétt til að starfa sjálf- stætt.** e) Læknum ætti ekki að refsa, fjárhagslega eða á annan hátt, þegar þeir leitast við að tryggja sjúk- um og varnarlausum -jafnan aðgang að virkri meðferð og - að tiltæk séu nægileg úrræði til þess að hægt sé annast um sérhvem sjúkling. f) Lagaákvæði er varða sjálfsforræði lækna mega ekki ganga í berhögg við ákvæði Alþjóðasiða- reglna lækna (London 1949, Sidney 1968, Feneyj- um 1988, Stokkhólmi 1994). * Að því er þetta skjal varðar, ná orðin "umönnun sjúklinga" til forvarna, greiningar, meðferðar, endurhæfingar og hæfmgar. ** Vegna ákvæða í stofnskránni getur Alþjóðaheilbrigðisstofnun- in (WHO) ekki tekið afstöðu til þessa atriðis. íslensk þýðing © Örn Bjarnason 2000 448 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.