Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2000, Side 56

Læknablaðið - 15.06.2000, Side 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÓBAKSNOTKUN LÆKNA Könnun á tóbaksnotkun íslenskra lækna Pétur Heimisson Stjórn LI lét gera könnun á tóbaksnotkun meðal félagsmanna sinna í lok síðasta árs. Kveikjan að könnuninni var að EFMA (Europian Forum of Medical Associations) hvatti evrópsk læknafélög til að kanna hvernig háttað væri reykingavenjum lækna. Að beiðni stjórnar LÍ tók undirritaður að sér að sjá um framkvæmdina í samvinnu við starfsfólk skrif- stofu LÍ. Læknar □ Allt landið 19,6 Hef aldrei reykt ' Reykti áöur en ' Reykti áður en ^ Reyki sjaldnar ^ Reyki daglega er hættur fyrir meira en ári er hættur fyrir minna en ári en daglega Mynd 1. Reykir þú eða hefur þú reykt? Læknar á aldrinum 26-90 ára í samanburði við lands- menn á aldrinum 26-89 ára. Peir sem afstöðu tóku. Mynd 2. Reykir þú eða hefur þú reykt? Lœknar á aldrinum 26-90 ára. Greint eftir því hvort hefðbundin viðtöl við sjúklinga eru hluti af lœknisstarfi þeirra. % 100- 80- 60- 40- Viðtöl 29,9 38,4 Reykti áöur Reykti ðöur en er hættur en er hættur fyrir meira fyrir minna en ári en ári Ákveðið var að nota sem grunn sömu spurning- ar og notaðar hafa verið árum saman í könnunum Tóbaksvarnanefndar á reykingavenjum þjóðar- innar. Þar sem í niðurstöðum könnunarinnar er sýndur samanburður við þjóðina („allt landið“) er verið að bera læknakönnunina saman við svör þjóðarúrtaks í janúar 2000. Síðan var bætt við spurningum um notkun reyklauss tóbaks og spurningu, þar sem greint var milli þess hvort læknir sinnir reglulega viðtölum við sjúklinga eða ekki. Við endanlega gerð spurninga naut ég góðr- ar aðstoðar Þorsteins Blöndals læknis og færi ég honum þakkir fyrir. Spurningar voru sendar öllum félögum í LÍ hér á landi (alls 1.048 félög- um) og sá starfsfólk skrifstofu LI um það. Með spurningalistanum fengu menn einnig frí- merkt umslag til að senda inn svör sín. Öll- um var sent eitt ítrekun- arbréf og fengust 725 svör, svarhlutfall því 69,2%. Úrvinnsla gagna fór fram hjá sama aðila og gerir hliðstæðar kann- I I Ekki viðtöl 1,7 5,8 6,1 Reyki daglega Höfundur er heilsugæslulæknir á Egilsstöðum. anir fyrir Tóbaksvarnanefnd, Price Waterhouse Coopers. Um þetta var spurt: 1. Reykir þú eða hefur þú reykt? 2. Hvað reykir þú? 3. Notar þú eða hefur þú notað reyklaust tóbak, þ.e. nef- eða munntóbak? 4. Hvaða reyklausa tóbak notar þú? 5. Eru hefðbundin viðtöl við sjúklinga (hvort sem er á sjúkradeild eða stofu) reglulegur hluti af þínu læknisstarfi? Niðurstöður ef marka mætti eru mjög jákvæð- ar, tóbaksnotkun meðal íslenskra lækna virðist í algjöru lágmarki, þegar miðað er við þjóðina alla. Af þeim sem svara eru einungis 3,6% sem reykja daglega og 5,8% sem reykja, en sjaldnar en dag- lega. Erfitt er að segja til um þá skekkju sem gera verður ráð fyrir að lágt svarhlutfall (69,2%) valdi. Því miður er ekki hægt að kanna þetta brottfall úr könnuninni nánar þar sem könnunin var þannig gerð að ekki var fylgst með því hverjir svöruðu og hverjir ekki. Það er reynsla þeirra sem vel þekkja til að þegar læknar eru spurðir á þennan hátt um eigin tóbaksnotkun, þá megi gera ráð fyrir að í brottfallinu (30,8% í þessari könnun) sé tóbaks- notkun tíðari en á meðal svarenda. Því er varhuga- vert að taka fullt mark á niðurstöðum könnunar- innar og mitt mat er það að reykingar meðal ís- lenskra lækna séu því miður eitthvað tíðari en þessar niðurstöður benda til. I því sambandi er rétt er að nefna könnun sem læknarnir Þorsteinn Blöndal og Sveinn Magnússon ásamt þáverandi læknanema Önnu Stefánsdóttur gerðu 1989 og sem birt var í 2. tölublaði Lækna- blaðsins 1991. Þar var notað 200 lækna úrtak úr félagaskrá LI, spurt í gegnum síma og fengust svör frá 196 læknum. Samkvæmt þeirri könnun reyktu 13,3% lækna daglega og önnur 13,3% reyktu en sjaldnar en daglega. Einnig liggja nú fyrir fyrstu niðurstöður af samnorrænni könnun meðal heimil- islækna sem gerð var árið 1999 að frumkvæði krabba- meinsfélaganna á Norðurlöndum. Samkvæmt þeim reykja 7% íslenskra heimilislækna daglega og 5% þeirra reykja sjaldnar en daglega. Að lokum vil ég þakka öllum þeim er svöruðu spurningunum og síðast en ekki síst starfsfólki á skrifstofu LI fyrir sinn þátt í könnuninni. Með þessum orðum um könnunina fylgja auk spurning- anna sjálfra tvær myndir úr lokaskýrslu. Skýrslan sjálf er hins vegar aðgengileg á skrifstofu LI og hjá undirrituðum (sími 471 1400) fyrir þá sem vilja kynna sér hana nánar. 452 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.