Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2000, Síða 71

Læknablaðið - 15.06.2000, Síða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / (ÐORÐASAFN LÆKNA 123 Follow-up time Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@rsp.is Laufey Steingrímsdóttir, næringarfræðingur, bað um álit á íslensku heitunum fylgitími og eftir- fylgnitími til að tákna follow-up time. Undirrituðum leist betur á það fyrra, en gæta þarf þess að aðrar samsetningar lýsingarorðsins follow-up séu þýddar á lipran og sambærilegan hátt, svo sem follow-up care, follow-up contact, follow-up examination, follow-up measure, follow-up study og follow-up treatment. Þá þarf einnig að gæta þess að færa ekki hina miklu nafnorðanotkun enskunnar beint yfir í íslensku, en follow-up er oft notað sem nafnorð þegar samhengið er augljóst. Ensk-íslensk orðabók Amar og Örlygs birtir skýr- ingar á nafnorðinu follow-up: 1. hvers kyns aðgerð í þeim tilgangi að fylgja tilteknu málefni eftir (bréf heimsókn o.þ.ul); árétting. 2. (í lœknisfrœði) eftir- meðferð, reglulegt eftirlit með sjúklingi eftir aðgerð eða aðra lœknismeðferð. Skýringar á sagnorðinu to follow-up má finna í hinni miklu orðabók Websters: a. að fylgja e-u eftir vandlega og af þrautseigju. b. að auka áhrife-s meðfrekari aðgerð. c. aðfylgja e-u eftir þar til lausn eða niðurstaða fœst. Iðorðasafn lækna birtir hvorki nafnorðið, sagnorðið né neina af ofan- greindum samsetningum. í læknisfræðiorðabók Sted- mans má finna samsetninguna follow-up study: rann- sókn þar sem fólki, sem orðið hefurfyrir áhœttuþœtti eðafengið ákveðna fyrirbyggjandi eða lœknandi með- ferð, er fylgt eftir um tíma Asgeir Blöndal, læknir á Húsavík, tók saman bókina Líkams- og heilsufræði og gaf út árið 1924. Þar segir meðal annars: „Vjelindið gengur neðst úr kokinu, aftan bark- ans, niður með hryggnum, gegnum þindina og niður í efra magaop.“ „Maginn er allstór poki, sem liggur fyrir neðan þindina undir vinstra síðu-barði, gengur þaðan niður á við til hægri, er víðastur ofan til, en mjókkar, er dregur niður að neðra magaopi.“ „Skeifltgörnin tekur við neðan magans, og er hún stuttur skeifuboginn garnarspotti, sem liggur utan um hægri enda briskirtilsins." „Blágirnið er mestur hluti gamanna (um 5 metra langt), sem liggja í mörgum bugðum og fylla kviðar- holið,...“ „Langinn. Hann er miklu gildari og liggur í stórri lykkju, fyrst upp með hægri síðu, upp að lifur, síðan þvert yfir kviðinn, neðan bringspala, út að vinstri síðu; þaðan niður vinstra megin, niður að mjaðmagrind. Þar sem langinn byrjar, er nokkur hæll niður á við - langabotninn. Út úr honum gengur lítill, blindur garnastúfur - botnlanginn." „Endagörnin tekur við af langanum.“ millibili til að um afleiðingar eða með ákvarða eða árangur. Sé lýsingarorðið follow-up þýtt með for- liðnum fylgi- á íslensku, geta ofangreindar sam- setningar fengið íslensk heiti þannig: follow-up care verði fylgiumönnun, follow-up contact verði fylgisamband, follow-up examination verði fyig'- skoðun. follow-up measure verði fylgiráð- stöfun. follow-up study verði fylgirannsókn og follow-up treatment verði fylgimeðferð. Gaman væri nú að fá viðbrögð lesenda. Tvær tillögur Auðbergur Jónsson, læknir, sendi bréf frá Egilsstöð- um og fannst að vonum lítil „reisn“ yfir þýðingartil- lögum undirritaðs í 122. pistli á samsetningunni ascending infection. Hann gengur beint til verks og stingur upp á að íslenska heitið verði einfaldlega sýk- ing neðan frá, „þó vitanlega sé það ekki jafn þráðbein þýðing“. Hafi hann bestu þakkir fyrir. Vilja fleiri leggja orð í belg? Þá sendi Jón Steinar Jónsson, læknir, tölvupóst með tillögu að þýðingu á heitinu atopy (sjá 120. pistil, Læknablaðið 2000; 86: 207). Hann leggur til að ís- lenska heitið verði auðnæmi. Þetta er lipurt og lag- legt heiti. Um sjúklinga sem auðveldlega fá ofnæmi (hafa ofnæmishneigð) má segja að þeir séu auðnæmir. Pouch Tryggvi Stefánsson, skurðlæknir, hringdi og var ekki sáttur við þýðingu Iðorðasafns lækna á enska orðinu pouch = kvos. Undirrituðum tókst síðan að finna orð- ið á þremur stöðum í safninu: pouch of Douglas = endaþarms- og legkvos, blind pouch (cul-de-sac) = blindpoki og branchial pouch (visceral pouch) = tálknpoki. Allar þessar þýðingar getur Tryggvi reynd- ar sætt sig við, en hann var að fást við að koma ís- lensku heiti á tilbúinn endaþarm, sem á ensku nefnist ýmist ileal pouch eða ileo-anal pouch. Fyrirbærið er búið til með sérstakri skurðaðgerð, þegar ristillinn hefur verið fjarlægður, til þess að mynda hægðageymi ofan við endaþarmsopið. Bein þýðing samkvæmt Iðorðasafninu gæti verið dausgarnar- og bakraufar- poki eða dausgarnar- og endaþarmsopspoki. Orðið kvos merkir dæld, dalverpi eða bolli og kemur því ekki til greina í þessu sambandi. Samkvæmt frásögn Tryggva getur verið um nokkrar mismunandi útlitstegundir tenginga að ræða (J-pouch, S-pouch, H-pouch) og því mjög erfitt að finna eitt heiti sem lýsir útliti fyrirbærisins nákvæm- lega. Hægðageymir er hins vegar heiti sem lýsir vel hinu starfræna hlutverki. Á sænsku mun heitið vera backen reservoir. Bácken merkir mjaðmagrind og reservoir er geymir, þró, hylki, ílát, birgðir eöa forði. Það er skoðun undirritaðs að lausnin felist í því að sætta sig við þýðingu Iðorðasafnsins, pouch = poki, og nota það í ofangreindum samsetningunum, en að eiga einnig á takteinum heitið hægðageymir þegar lýsa þarf starfsemi eða hlutverki. Vera má að orðið posi geti einnig komið til greina, vegna hljóðlíkingar við pouch, en það er notað í vefja- og líffæraheitun- um um sacculus á sama hátt og poki er notað um saccus. Annað mál er svo sú staðreynd að heitin ás- görn = jejunum og dausgörn = ileum hafa átt mjög erfitt uppdráttar hjá íslenskum læknum. Læknablaðið 2000/86 465
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.