Skessuhorn - 17.06.2014, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2014
Óútskýrður
fugladauði
SNÆFELLSNES: Sérfræð
ingar velta nú fyrir sér dauða
fjölda sjófugla sem fundust
við Fróðárrif á Snæfellsnesi.
Um miðjan maí var tilkynnt
að fundist hefðu um 50 dauð
ir æðarfuglar í varpi skammt
frá Fróðárrifi. Nú í síðustu
viku fundust svo 70 dauðar
ritur til viðbótar ásamt dauð
um skörfum og æðarfugli á
svipuðum slóðum. Sérfræð
ingar hafa nú skoðað svæð
ið en ekki hefur verið gefin
útskýring á þessum miklum
fjölda dauðra sjófugla. Sýni
úr æðarfugli sem fannst í maí
hefur verið sent til Banda
ríkjanna en eins og er bein
ist grunur manna að mengun
sé í einhverjum af ferskvatns
tjörnum á svæðinu þar sem
báðar fuglategundirnar sækja
sér neysluvatn.
-jsb
Hollvinahátíðin
framundan
BIFRÖST: Hollvinahá
tíð verður haldin á Bifröst í
annað sinn laugardaginn 21.
júní nk. Margt verður á dag
skrá líkt og golfmót hollvina,
gönguferð uppá Grábrók,
skemmtileg málstofa, kokteill
í boði háskólans, þriggja rétta
hátíðarkvöldverður og svo
ball með Upplyftingu. Hátíð
in er samstarfsverkefni Holl
vinasamtakanna, Háskólans
á Bifröst, Sjéntilmanna og
Nemendafélagsins og er til
gangurinn að gefa núverandi
og fyrrverandi nemendum á
Bifröst tækifæri til að hittast,
kynnast og efla tengslin. „Er
það von stjórnarinnar að holl
vinir nær og fjær, nemendur
og starfsfólk taki helgina frá,
skrái sig, gleðjist saman yfir
gömlum minningum og búi
til nýjar sameiginlegar,“ seg
ir í tilkynningu. Lesa má nán
ar um dagskrá og afþreyingu
á Bifröst á vef skólans.
–mm
Vinnustöðvun
yfirvofandi
LANDIÐ: Leikskólakenn
arar um allt land hafa boðað
til vinnustöðvunar fimmtu
daginn 19. júní ef ekki hefur
samist fyrir þann tíma. Verði
vinnustöðvunin að veruleika
mun hún hafa í för með sér
að flestum leikskólum lands
ins verður lokað þennan dag.
Útifundur leikskólakenn
ara er fyrirhugaður klukkan
13:30 á fimmtudaginn á Aust
urvelli í Reykjavík. -jsb
Þrjú
fíkniefnamál
AKRANES: Lögreglan á
Akranesi sinnti þremur mál
um í liðinni viku þar sem
fíkniefni komu við sögu. Tví
vegis stöðvaði hún ökumenn
sem reyndust aka undir áhrif
um fíkniefna. Annar reynd
ist undir áhrifum kókaíns og
hinn hafði neitt amfetamíns
og kannabis. Þá lagði lögregla
hald á kannabisefni sem ung
lingur hafði í fórum sínum.
–þá
Þeim sem hafa gaman af göngu og
skokki og vilja skreppa í sveitina er bent
á Sauðafellshlaupið 2014 sem haldið
verður á Erpsstöðum í Dölum laugar-
daginn 21. júní kl. 14. Þetta er 12 km eða
15 km hlaup/ganga frá Erpsstöðum og
endar á sama stað þar sem farið er um
eða yfir Sauðafellið. Allir er velkomn-
ir og sameiginlegt grill og kvöldvaka í
fjósinu um kvöldið. Barnagæsla verður
á meðan á hlaupinu stendur. Ýmis fleiri
Jónsmessutengd hlaup eru framundan
í landshlutanum.
Spáð er vestlægri átt á fimmtudag en
síðan breytilegri átt og norðanátt á
sunnudag. Þokkalegt veðurútlit er fyrir
suðvesturhornið. Á fimmtudag er spáð
rigningu með köflum og hita 7 til 14
stig. Á föstudag er áfram hægur vind-
ur í breytilegri átt, skýjað og að mestu
úrkomulaust, en bjart með köflum suð-
vestan til. Hiti 9 til 15 stig og hlýjast á
suðvesturlandi. Á laugardag verður hæg
breytileg átt og rigning, einkum fyrir
norðan. Hiti 8 til 13 stig. Á sunnudag er
spáð norðanátt með þokulofti og súld
norðaustan- og austan til, en bjart með
köflum annars staðar. Hiti 10 til 17 stig
og áfram hlýjast hér á suðvesturlandi.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Ætlar þú að ferðast í sumar?“
Margir ætla að gera það: „Já innanlands“
sögðu 43,95% , „já bæði hér heima og
úti“ var svar 21,53% og „já til útlanda“
sögðu 7,96%. „Nei ég verð heima“ sögðu
13,57% og 13% vissu það ekki ennþá
Í þessari viku er spurt:
Veistu hver er lengsti dagur ársins?
Karlmenn sem hafa kjark til að velta sér
allsberir í dögginni á Jónsmessunótt,
samkvæmt gamalli þjóðtrú, verða Vest-
lendingar vikunnar. Koma svo karlar!
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Það stefnir í góða aðsókn
á Landsmót hestamanna á
Hellu. „Lokadagurinn í sölu
á vikupössum á mótið var hjá
okkur í gær, sunnudag, og þá
sprakk miðasölukerfið. Við
erum að vonast eftir að ná hátt
í það eins mörgum og komu á
síðasta Landmót sem haldið
var á Hellu 2008, þá voru gest
ir 14 þúsund. Það er viss passi
að á hvert mót koma eitt til
tvö þúsund útlendingar. Núna
fljúga ein níu flugfélög til landsins og
hægt að panta flugfar með litlum fyrir
vara. Þetta er orðið mikil breyting frá
því áður og erfitt að áætla hvað móts
gestir verði margir, hvorki með fjölda
Íslendinga eða útlendinga. Miðasalan
er mikil rétt fyrir mótið og mætingin
ræðst líka mikið af veðri,“ segir Axel
Ómarsson framkvæmdastjóri Lands
móts hestamanna sem verður haldið
á Gaddastaðaflötum við Hellu dagana
30. júní til 6. júlí næstkomandi.
Axel segir að vellir og að
staða fyrir keppendur og
hross sé mjög góð á Gadd
astaðaflötum. Mótsvæðið
hafi verið tekið út á dögunum
og þar var haldið mjög stórt
mót í úrtöku fyrir landsmót.
Fjöldi hesta og knapa verður
mjög mikill á landsmóti og
til að mynda eru 280 hest
ar skráðir í kynbótakeppn
ina. Annar undirbúningur
fer síðan fram síðustu vikuna
fyrir landsmótið en þá verður kom
ið upp aðstöðunni fyrir gesti móts
ins. Það eru tvö gríðarstór markaðs
og veitingatjöld sem leigð verða frá út
löndum. Hvort þeirra um sig er um
1200 fermetrar. Þá verður einnig reist
rúmlega 500 manna áhorfendastúka
við völlinn. Axel segir að góður hóp
ur frábærs fólks með reynslu vinni að
undirbúningi mótsins og það auðveldi
að standa fyrir þessum gríðarstóra við
burði sem Landsmót hestamanna er. þá
Starfið í Ölveri sumarbúðum
KFUM og KFUK í Hafnarskógi
hófst 10. júní síðastliðinn. Fyrsti
flokkurinn fór vel af stað, að sögn
forstöðufólks sumarbúðanna,
en einnig er góð skráning í aðra
flokka sumarsins. Í Ölveri eru að
allega stelpur á aldrinum 615
ára, en þar er einnig einn stráka
flokkur yfir sumarið fyrir 69 ára
stráka. Flokkarnir eru aldursskipt
ir og því ættu allar stúlkur að finna
eitthvað við sitt hæfi. Einn flokk
urinn heitir til dæmis Krílaflokkur
og er fyrir 69 ára stúlkur og er sá
Fjölmörg sumarhús eru í Borgar
firði og una eigendur sér þar við
eitt og annað, meðal annars gróð
ursetningu trjáplanta. Undanfarin
ár hefur að sögn þeirra verið mikil
ánauð af sauðfé á svæðinu frá Gljúf
urá og upp undir Grábrókarhraun.
Eigendur sumarhúsa á þessu svæði
eru orðnir langþreyttir á ástand
inu. Einn sem Skessuhorn ræddi
við sagði að nú keyrði um þver
bak. Venjulega hefði fyrsti hópur
inn komið 20. júní en þetta árið
hefði hann birst þann ellefta. „Það
er greinilegt að nú hefur verið keyrt
fyrr á fjall því kindurnar hafa aldrei
komið svona snemma. Þessar skját
ur éta allt sem maður setur niður
nema birki og eina blómategund.
Þetta er bara algjörlega ólíðandi.“
Erna Sigurðardóttir á sumarbú
stað rétt við verslun Baulunnar í
Stafholtstungum. Þar hafa hún og
maður hennar verið að koma sér
fyrir í sveitasælunni. En fljótlega
fór að bera á því að böggull fylgdi
skammrifi. „Nokkur undanfarin ár
hefur sami fjárhópurinn verið hér
á ferð, í kringum 20. júní og étið
nærri allt sem tönn á festir, nema
birkið. Ég hef verið í sambandi við
landeigandann sem er allur að vilja
gerður en fær lítið við ráðið. Núna
kom fyrsti hópurinn rúmlega viku
fyrr en venjulega. Ég varð alveg
öskureið. Hringdi í sýslumann og
skrifstofu Borgarbyggðar og vildi fá
svör. Sýslumaður gat lítið fyrir mig
gert og starfsmaður sveitarfélags
ins var ekki við. En ég er ekki hætt
og mun halda áfram að reyna að ná
í hann. Mér finnst það bara óþol
andi að um leið og bændur keyra
á fjall þá er það segin saga að féð
er mætt hér niður í sveit, örfáum
dögum seinna. Við hjónin höfum
jafnvel verið að hugsa um að girða
okkur af, sem er líka óþolandi. Til
varnar hef ég reynt að víggirða all
ar plöntur sem ég gróðurset, en það
hefur ekki heldur dugað. Og það
leysir ekki vandann. Mér virðist að
hann hljóti að liggja í því að fjall
girðingin sé annað hvort ónýt eða
mjög illa farin.“
Samkvæmt lögum um fjallskila
mál og fleira frá 1986 segir orð
rétt: „31. gr. Nú verða mikil brögð
að ágangi búfjár úr afrétti í heima
haga, og getur þá sá, er fyrir verð
ur, gert sveitarstjórn aðvart. Skal
hún þá, ef um verulegan eða óeðli
legan ágang virðist að ræða, skipa
fyrir um smölun ágangspenings og
rekstur til afréttar eða skilaréttar...
32. gr. Nú verða eigendur eða ábú
endur jarða, er að afrétti liggja, fyr
ir verulegum ágangi afréttarpen
ings, og geta þeir þá krafist girð
ingar á milli afréttar og heimalanda
sinna skv. 7. gr. laga nr. 10 25. mars
1965 (girðingarlaga).“
Eiríkur Ólafsson skrifstofustjóri
Borgarbyggðar sagði í samtali við
Skessuhorn að verið væri að kanna
ástandið, bæði hvort girðingarn
ar væru lélegar og þá hversu miklu
fjármagni yrði varið í endurbætur á
þeim.
bgk
Hin árlega Jökulmíla fór fram
síðasta laugardag á Snæfellsnesi.
Keppnin var haldin í samvinnu
Hjólamanna og heimamanna.
Ræst var út frá Grundarfirði og
hjólaður hringur um Snæfellsnes,
fyrst vestur fyrir jökulinn en síðan
til baka um Vatnaleið. Hringurinn
er 161 kílómetra langur, eða ná
kvæmlega 100 mílur þar sem Jök
ulmílan er sett upp að erlendri fyr
irmynd sem nefnist Aldarskeið og
er vinsæll hjólreiðaviðburður víða
um heim. „Um 90 manns tóku
þátt í Jökulmílunni, auk þess sem
um 80 keppendur hjóluðu hálfa
Jökulmílu. Það voru því um 170
manns sem kláruðu þetta árið sem
er aukning um næstum hundr
að manns frá því í fyrra. Þá tóku
77 manns þátt og við stefndum á
að ná fjölda keppenda í 100 núna.
Það gekk heldur betur eftir,“ seg
ir María Sæmundsdóttir keppnis
stjóri. Þá var börnum einnig boðið
að taka þátt í svokölluðum Mílu
spretti og tóku 13 börn þátt. Hjól
reiðamennirnir fengu fínasta veð
ur á laugardaginn. „Veðrið var
þurrt en keppendur lentu í nokkr
um mótvindi á leiðinni. Þetta
tókst allt ótrúlega vel og gekk al
veg stóráfallalaust fyrir sig. Við
áttum í mjög góðu samstarfi við
heimamenn og það ber að þakka.
Án þess er erfitt að halda svona
keppni,“ segir María að lokum.
Úrslit Jökulmílunnar má finna á:
thriko.is
grþ/ Ljósm. tfk.
Erna Sigurðardóttir er að reyna að víggirða sauðféð frá sumarhúsi þeirra, en
kindurnar ryðjast inn á lóð hennar og éta allt sem tönn á festir, nema birkið.
Sumarhúsaeigendur óánægðir
með ágang sauðfjár
Erna Sigurðardóttir sumarbústaða-
eigandi er afar óhress með ágang
sauðfjár í sumarbústaðalandinu. Segir
hún að féð hafi komið níu dögum fyrr
nú í vor en venjulega. Líklega vegna
þess að bændur hafi rekið fyrr á fjall.
Frá sumarbúðunum í Ölveri.
Sumarbúðirnar í Ölveri byrjaðar
flokkur fjóra daga í sumar
búðunum.
Sem kunnugt er stend
ur Ölver á skemmtilegum
stað í nágrenni Hafnarfjalls.
Hver dagur þar er nýtt æv
intýri, sambland af ómiss
andi hefðum, nýjum leikjum
og uppákomum. Í starfinu
er unnið með hin góðu gildi
Biblíunnar, mikið sungið og
boðið upp á hollan og góð
an heimalagaðan mat. Dag
arnir í Ölveri eru viðburða
ríkir og dagskráin fjölbreytt. Dag
lega er morgunstund og biblíulest
ur, brennókeppni, aðrar íþrótta
keppnir og svo gönguferðir. Þá eru
æfð leikrit og sýnd á kvöldvöku og
heiti potturinn er alltaf vinsæll. Að
kvöldi dags er kvöldvaka þar sem
stúlkurnar sjá um dagskrá og eru
leikrit og leikir yfirleitt stór
hluti hennar. Hver dagur end
ar svo með því að bænakona,
sérstakur leiðtogi hvers her
bergis les og biður með sínum
stúlkum. Þá eru börnin í Öl
veri að fást við ýmsar þrautir
og keppnir og leikir eru hluti
af dagskrá hvers dags, til dæm
is hárgreiðslu og förðunar
keppni. Þá er líka hæfileika
sýning, stultur og húllahringir,
hefðbundin leiktæki og óhefð
bundin eins og risahengirúmið
og báturinn eru líka mikið notað
ur. Greinilega mjög fjörugt í sum
arbúðunum í Ölveri.
þá
Vel heppnaðri Jökulmílu lokið
Axel Ómarsson
framkvæmdastjóri
Landsmóts hesta-
manna.
Allir krakkarnir sem tóku þátt í Mílu-
sprettinum fengu verðlaunapening og
hressingu.
Miðasölukerfið á Lands-
mótið lét undan álagi