Skessuhorn


Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2014 Vitavörðurinn frá Paimpol Sýning á verkum Francois Jouas-Poutrel í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Sýningin verður opnuð föstudaginn 20. júní kl. 17:00. Allir hjartanlega velkomnir. Sýningin stendur frá 20. júní – 20. júlí. Opið frá 9.00 – 22.00. S K E S S U H O R N 2 01 4 Organisti og kórstjóri Laus er staða organista og kórstjóra við Grundarfjarðarkirkju frá og með 1. september. Í Grundarfirði búa rúmlega 800 manns og þar er hefð fyrir miklu og góðu tónlistarlífi. Um er að ræða 50% starf. Laun eru greidd skv. kjarasamningi FÍH. Í Grundarfjarðarkirkju er 13 radda pípuorgel smíðað af þýska orgelsmiðnum Reinhart Tzschöckel. Einnig er Atlas-flygill í kirkjunni. Áhugasamir hafi samband við sóknarprest, sr. Aðalstein Þorvaldsson í síma 438-6640 sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Einnig má hafa samband við formann sóknarnefndar Guðrúnu Margréti Hjaltadóttur í síma 899-5451. Umsóknir skulu sendar á netfangið skallabudir@simnet.is Umsóknarfrestur er til 31. júlí n.k. Sóknarnefnd. S K E S S U H O R N 2 01 4 S K Ó L A B R A U T 3 7 Vinsamlega hafið samband í síma 8944070 eða á netfangið icebot57@hotmail.com Opið verður 13-17 mmtudaga til sunnudaga 17. júní til 31. júlí 2014 Einnig er hægt að skoða safnið á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi Í liðinni viku var opnað kaffihús á Hvanneyri sem nefnist Skemm­ an ­ kaffihús. Það er eins og nafnið bendir til í Skemmunni, elsta húsi staðarins sem byggt var 1896. „Við opnuðum á fimmtudag og opið var alla helgina. Þetta fór framúr okkar björtustu vonum og gengur ótrú­ lega vel,“ segir Rósa Björk Jóns­ dóttir sem rekur kaffihúsið ásamt Stefaníu Nindel. Skemman stendur í slakka mót suðri, skammt frá gömlu skólahús­ unum á Hvanneyri í einkar hlý­ legu og friðsælu umhverfi þar sem gróður og sól mæta gestum. Rósa Björk ólst upp á svæðinu og er ný­ lega flutt aftur til baka. „Mér fannst vanta eitthvað svona hérna á staðn­ um og Stefanía var búin að vera að hugsa það sama. Okkur var svo stefnt saman af þriðja aðila og ákváðum í framhaldinu að opna svona „pop up“ kaffihús og vöfflu­ bar. Við sérhæfum okkur í hágæða kaffi og belgískum vöfflum en bjóð­ um einnig upp á heitt súkkulaði, Flokksstjóra Dag ur í lífi... Nafn: Rögnvaldur Geir Hannah. Starfsheiti/fyrirtæki: Flokks­ stjóri í vinnuskólanum á Akra­ nesi. Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý á Akranesi og er í sambandi með Thelmu Björg Magnúsdóttur. Áhugamál: Mitt helsta og eigin­ lega eina alvöru áhugamál er fót­ bolti. Vinnudagurinn: Fimmtudagur­ inn 12. júní 2014. Mætt til vinnu og fyrstu verk: Vinnan byrjar klukkan átta og ég mæti yfirleitt aðeins fyrr en það. Það fyrsta sem ég gerði síðan var að við fá úthlutað verkefnum frá Einari Skúlasyni yfirmanni vinnu­ skólans. Þennan morguninn var verkefnið að fara að slá grasið við blokkirnar við Vallarbraut. Klukkan 10? Þá tók ég stutt kaffi með krökkunum. Hádegið? Klukkan 12 er tekinn klukkutíma langur hádegismat­ ur. Ég fór heim í hádegismat og fékk mér Thai­Cube eins og ég geri oft. Klukkan 16? Ég ásamt krökkun­ um vorum þá að raka saman gras­ ið sem við slógum fyrr um daginn og setja það í poka. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Krakk­ arnir hætta klukkan 16:30 en ég á ennþá eftir að fara í aðalstöð vinnuskólans og skrifa skýrslu um afrek dagsins. Ég er yfirleitt ekki mjög lengi að því og farinn heim klukkan 17. Fastir liðir alla daga? Alla daga byrja ég á að fá verkefni og hitta krakkana sem eiga að vera að vinna hjá mér. Ég hitti þá við Grundaskóla um klukkan 9:30 og við leggjum af stað til að vinna hin ýmsu verk. Hvað stendur upp úr eftir vinnudaginn? Það var fínt veð­ ur þennan daginn, held að það sé svona það eina sem stendur eitt­ hvað upp úr þennan daginn. Gott veður getur gert þessa vinnu að skemmtilegri hreyfingu og úti­ veru. Var dagurinn hefðbundinn? Já, þessi dagur var frekar venjulegur. Hvenær byrjaðir þú í þessu starfi? Þetta er auðvitað bara sumarvinna en fyrsta sumarið mitt sem flokksstjóri var sumar­ ið 2012. Er þetta framtíðarstarfið þitt? Nei. Hlakkar þú til að mæta í vinn- una? Já, sérstaklega þegar veðrið er gott. Ég mæli með þessu starfi fyrir námsmenn, maður kynnist ábyrgð en auk þess er starfið líka mjög gefandi og skemmtilegt. Eitthvað að lokum? Ég bara vona að það verði gott veður í sumar. Kaffihús og vöfflubar á Hvanneyri Skemman - kaffihús opnaði í liðinni viku. Hér eru Rósa Björk og Stefanía sem reka Skemmuna ásamt Helenu Guttormsdóttur til vinstri. Ljósm. úr einkasafni. gos, eplaköku og hráköku,“ segir Rósa. Þær stöllur stefna á að hafa opið fram í miðjan ágúst og útiloka ekki að þær endurtaki leikinn næsta sumar. „Þetta er bara verkefni sem við vildum gera fyrir staðinn og við gerum það besta úr því sem við höfum. Við erum ótrúlega ánægð­ ar með viðtökurnar og finnum fyr­ ir mikilli góðvild frá fólkinu hér í kring.“ Skemman er opin alla daga frá kl. 13 ­ 18 og hægt er að lesa nánar um kaffihúsið á samnefndri Fésbókarsíðu. grþ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.