Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 13
Norð ur áls mót ið 2014
Norðurálsmótið á Akranesi er knattspyrnu
mót fyrir tápmikla stráka í 7. flokki, sem
koma til að skemmta sér í leik og keppni.
Allir þjálfarar, fararstjórar, foreldrar, systk
ini og aðrir ættingjar eru boðnir velkomn
ir á Skagann með strákunum. Mikil undir
búningsvinna liggur að baki mótinu og hafa
skipuleggjendur hjá Íþróttabandalagi Akra
ness það að leiðarljósi að taka sem best á
móti öllum og að mótið gangi vel fyrir sig.
Um 800 einstaklingar á Akranesi koma að
þeirri vinnu og þeim störfum sem þarf að
sinna meðan á móti stendur, meðal annars
800 vöktum.
Norðurálsmótið kallaðist í fyrstu Skaga
mótið en hefur síðan haft mörg nöfn eft
ir því hvaða fyrirtæki styrkja það hverju
sinni, nú síðast Norðurál. Að þessu sinni
er það haldið 20.22. júní. Í ár hafa 144
lið skráð sig til leik frá alls 26 félögum.
Reiknað er með að yfir 6.000 manns verði
gestkomandi á Akranesi vegna mótsins og
því liggur nærri að íbúafjöldi bæjarins tvö
faldist þá daga sem mótið stendur en íbúar
á Akranesi eru nú um 6.730 talsins.
Með Skessuhorni í dag fylgir lítið sér
blað um mótið og sitthvað sem tengist
knattspyrnu á Akranesi. Það er von útgef
anda að blað þetta nýtist vel gestum og
upplýsi fólk um ýmis atriði sem Norður
álsmóti tengjast. Blaðið er fært gestunum
ásamt vikulegu fréttablaði. Á meðfylgjandi
mynd eru frískir Blikar að fagna marki á
Norðurálsmóti 2011.
mm/ Ljósm. G Bjarki Halldórsson.
Glerups skórnir hitta beint í mark
Skórnir eru framleiddir á mjög vistvænan hátt úr
100% ull með mjúkum kálfskinnsóla
Þjóðbraut 1- Akranesi - sími 431 3333 – modelgt@internet.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4