Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 7
7ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2014
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sigurjón Þórðarson
sigurjon@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og
með 23. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Bæjarstjóri
Grundarfjörður er kraftmikið og framsækið samfélag með tæplega 900 íbúa. Áhersla er á fjölskyldugildi.
Leikskólinn tekur inn börn frá 12 mánaða aldri og grunnskólinn er leiðandi í innleiðingu spjaldtölva.
Tónlistarskólinn er öflugur og í Grundarfirði er Fjölbrautaskóli Snæfellinga sem er í fararbroddi nýrra
kennsluhátta í framhaldsskólum. Íþrótta- og félagslíf er gott og Grundarfjörður býr að sterkum sjávarútvegi
og vaxandi ferðaþjónustu. Grundarfjörður skartar einstakri náttúrufegurð og fjölmörgum sóknarfærum.
Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða bæjarstjóra. Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður
sveitarfélagsins og stofnana þess og gegnir mikilvægu leiðtogahlutverki fyrir bæinn.
Starfssvið er meðal annars:
• Ábyrgð á og stjórnun daglegs reksturs
• Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð
• Framkvæmd á ákvörðunum bæjarstjórnar
• Samskipti við stofnanir, samtök, fyrirtæki
og íbúa
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af fjármálum, stjórnun og rekstri er skilyrði
• Leiðtogahæfileikar, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga,
er æskileg
• Reynsla af nýsköpun, stefnumótunarvinnu og eftirfylgni stefnumótunar
er æskileg
Laus er staða aðstoðarskólastjóra við
Grunnskóla Grundarfjarðar frá og með 1. ágúst 2014.
Í Grunnskóla Grundarfjarðar eru nú tæplega 100 nemendur og
22 starfsmenn. Nánari upplýsingar um skólastarfið má finna á
heimasíðu skólans, www.grundo.is.
Menntunar- og hæfniskröfur
Grunnskólakennararéttindi og reynsla af kennslu í grunnskóla•
Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum í grunnskóla æskileg•
Lipurð í mannlegum samskiptum•
Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun•
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Staðgengill skólastjóra•
Umsjón og skipulagning á innra starfi skólans í samráði við •
skólastjóra
Umsjón með starfsmannamálum í samráði við skólastjóra•
Samskipti við nemendur og foreldra•
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands.
Umsóknir berist til Önnu Bergsdóttur skólastjóra á netfangið
anna@gfb.is. Anna veitir allar nánari upplýsingar um starfið
í símum 430 8555 og 863 1670 eða í ofangreindu netfangi.
Umsóknarfrestur er til 23. júní 2014.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Aðstoðarskólastjóri
Jónsmessuhappdrætti Sjálfsbjargar 2014
Dregið 24. júní
Gott aðgengi skiptir alla máli,
en okkur öllu máli
Á þriðjudag í liðinni viku mætti
ófögur sjón eigendum hesthúsa og
fjárhúsa við gamla þjóðveginn inn
að Innsta Vogi rétt innan Akra
ness. Búið var að brjóta rúður í
húsunum með grjótkasti. Þessi hús
hafa staðið þarna í friði um áratuga
skeið, hýst sauðfé og hesta í eigu
tómstundabænda á Akranesi og
sett skemmtilegan svip á lífsflóru
bæjarfélagsins. Málið var tilkynnt
til lögreglunnar á Akranesi og er
í rannsókn. Lýst er eftir upplýs
ingum um hverjir gætu hafa ver
ið valdir að þessum tilgangslausu
skemmdarverkum sem talið er að
hafi verið framin, eins og áður seg
ir, um kvöldmatarleytið þriðjudag
inn 10. júní.
mþh
Framkvæmdum við endurbætur á
Brákarhlíð, hjúkrunar og dvalar
heimili alraðra í Borgarnesi, er nú
lokið. Eins og kunnugt er var bæði
byggð við heimilið íbúðaálma og
eldra rými endurnýjað meira og
minna í kjölfarið. Í tilefni af því að
framkvæmdum við endurbætur er
nú lokið er opið hús í Brákarhlíð í
dag, á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Þar verður jafnframt stutt vígsluat
höfn. Heimilisfólk, starfsmenn og
stjórn Brákarhlíðar bjóða gestum
að skoða húsakynnin.
Þar sem vígsluathöfnin fór fram
eftir að Skessuhorn var sent í prent
un verður sagt frá vígslunni í næstu
viku hér í blaðinu. mm
Eitt húsanna sem varð fyrir barðinu á
skemmdarvörgunum.
Skemmdarverk unnin á fjárhúsum og
hesthúsum á Akranesi
Vígsla Brákarhlíðar á þjóðhátíðardaginn
Breytingum lokið á Akratorgi
Íbúar á Akranesi hafa fylgst grannt
með því undanfarna daga hvern
ig Akratorg hefur sífellt verið að
taka á sig nýja og fallegri mynd.
Þar hefur Snjólfur Eiríksson garð
yrkjufræðingur stýrt verkum. Fyr
ir helgina var flestum verkþáttum
lokið og torgið orðið hið glæsileg
asta. Einungis átti eftir að koma
upp tveimur bekkjum og ræsa gos
brunn. Torgið verður svo form
lega vígt í dag, á þjóðhátíðardag
inn 17. júní. Þar sem búið var að
senda Skessuhorn í prentun þegar
að vígslunni kom verður nánar sagt
frá nýju Akratorgi í næsta Skessu
horni.
mm
Akratorg séð frá Landsbankahúsinu. Ljósm. mþh. Akratorg séð í átt til Landsbankahússins. Ljósm. mþh.
Óformleg vígsla torgsins var sl. laugardagsmorgun þegar
upphitunaræfingar fyrir Kvennahlaup fóru þar fram.
Ljósm. mm.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Kristbjörg Traustadóttir
hönnuður nýs Akratorgs ræða málin. Ljósm. mm.