Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 29
29ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2014
Vilhjálmur Egilsson rektor Háskól
ans á Bifröst útskrifaði 135 nemend
ur frá skólanum síðastliðinn laugar
dag. Nemendurnir sem útskrifuðust
voru úr Háskólagátt og úr grunn
og meistaranámi. Í ræðu sinni við
þetta tilefni fjallaði Vilhjálmur um
þau vináttubönd sem myndast og
hvernig Bifrastarglampinn í augum
nemenda er helsta vörumerki skól
ans. Vék hann að þeim gildum sem
skólinn hefur tileinkað sér. „Há
skólinn á Bifröst á sér þrjú grunn
gildi, sem eru frumkvæði, ábyrgð og
samvinna og allt starf skólans mið
ast við að leggja rækt við þessi gildi.
Ég hef rætt um metnaðinn sem er
meðal bestu mannsins dyggða og
sannur Bifrestingur er þeirri dyggð
prýddur. Og við tengjum metnað
inn við frumkvæði einstaklings
ins. Við viljum mennta fólk til for
ystu í atvinnulífinu og samfélaginu.
Bifrest ingar vilja láta til sín taka og
skilja eitthvað eftir sig. Frumkvæði
er okkar gildi vegna þess að útskrif
aðir Bifrestingar eiga að geta tekið
málin í eigin hendur þegar þeir fá
ekki allt upp í hendurnar frá öðr
um. Íslendingar þurfa á slíku fólki
að halda“.
Metnaður dyggð,
græðgin löstur
Vilhjálmur sagði mikilvægt að
þekkja muninn á metnaði og
græðgi, meðan metnaðurinn er
dyggð er græðgin löstur. „Hversu
oft höfum við ekki séð besta fólk
verða græðginni að bráð? Taka
áhættu umfram eigin getu og
stofna sjálfum sér og fjölskyldu
sinni í hættu. Jafnvel öllu samfé
laginu. Græðgin er ekki nýtt fyrir
bæri, hvorki í Íslandssögunni né í
mannkynssögunni. Þessi löstur er
samofinn mannseðlinu og við get
um þess vegna endurritað mann
kynssöguna undir yfirskriftinni:
„Frá hruni til hruns.“ Og sjálfsagt
er líka hægt að búa til framtíðar
skáldsögur um sama efni.“
Samvinna er lykillinn
Vilhjálmur nefndi að samvinnan
væri mikilvæg til að árangri. „Há
skólinn á Bifröst er reistur á grunni
samvinnuhugsjónarinnar og það er
okkar arfleifð að varðveita hana og
halda á lofti. Ekkert gerist í nokkru
samfélagi án samvinnu. Samvinn
an er mikilvæg í öllum fyrirtækjum
og stofnunum og samfélaginu öllu.
Fólk er hvarvetna að vinna saman
að verkefnum þar sem það þarf að
gefa af sér og setja líka traust sitt
á aðra. Í misserisverkefnum hér á
Bifröst er leitast við að efla sam
vinnugetu nemendanna. Þar eru
samvinnan og frumkvæðið leiðin til
árangurs. Eftir því sem samvinnan
en þéttari á milli aðila eru meiri lík
ur á góðum árangri.“
Háskóli í sókn
Að síðustu vék Vilhjálmur að þeim
sóknaraðgerðum sem ráðist hef
ur verið í af stjórnendum skólans.
Skólagjöld í Háskólagátt voru felld
niður sem olli því að umsóknafjöldi
margfaldaðist á við það sem hef
ur verið. Nýjar námslínur í bæði
grunn og meistaranámi voru sett
ar á fót og hafa hlotið góðar við
tökur og sýnileg er veruleg fjölg
un nemenda næsta haust. Þá hef
ur verið, eins og sagt var frá í síð
asta Skessuhorni, opnuð sýning um
íslenskt atvinnulíf þar sem verið er
að draga fram hvaða verðmæti fólk
ið í íslenskum fyrirtækjum er að
skapa. Næsta haust mun skólinn
skipuleggja allt nám í lotukennslu
og kenna í sama rennsli kúrsana í
staðnámi og fjarnámi. Hefðbund
ir fyrirlestrar fara úr tímum sem þá
verða í staðnáminu notaðir til verk
efnavinnu og umræðna. Bifröst er
líka að fikra sig inn í tækni sem ger
ir fjarnemum kleift að fylgjast með
tímum ef það á við. Bæði með fjar
fundabúnaði og snertiskjám sem
eiga að leysa hefðbundnar skólatöfl
ur af hólmi. Umsóknir eru framúr
vonum en hátt í 500 umsóknir um
skólavist næsta haust eru nú þegar
komnar, en umsóknarfrestur renn
ur út 15. júní.
Vilhjálmur óskaði útskriftarnem
um til hamingju með áfangann
hvatti nemendur til að leggja rækt
við Bifrastargildin. Einnig þakkaði
hann öllum þeim sem lögðu sitt af
mörkum til samfélagsins í Norður
árdalnum, nemendum og starfsfólki
skólans, hollvinum, fulltrúaráði og
stjórn.
Verðlaun og
útskriftarræður
Útskriftarverðlaun hlutu Sig
þór Árnason á Viðskiptasviði, Júlía
Guðmundsdóttir á Lögfræðisviði
og Stella Sif Jónsdóttir á Félags
vísindasviði og Svanberg Halldórs
son í Háskólagátt. Davíð Þór Sig
urðarson hlaut einnig verðlaun fyr
ir hæstu einkunn í meistaranámi. Að
auki fengu eftirfarandi þrír nemend
ur felld niður skólagjöld á haustönn
í tilefni af framúrskarandi náms
árangri: Elva Pétursdóttir á Við
skiptasviði, Lilja Björg Ágústsdóttir
á Lögfræðisviði og Tjörvi Schiöth á
Félagsvísindasviði. mm/bþþ
Um þessar mundir eru 800 ár frá
fæðingu Sturlu Þórðarsonar sagna
ritara. Þessara tímamóta verður
minnst á Sturluhátíð sunnudaginn
27. júlí, en Sturla fæddist 29. júlí
1214. Hátíðin verður haldin í sam
komuhúsinu Tjarnarlundi í Saurbæ
sem er í landi Staðarhóls þar sem
Sturla bjó lengi ævinnar. Það er
sveitarstjórn Dalabyggðar sem
stendur fyrir hátíðinni sem hugs
uð er sem fyrsta skref í stóru verk
efni sem er að koma upp Sturlusetri
í Dölum. Vegna Sturluhátíðar hef
ur verið skipuð þriggja manna und
irbúningsnefnd. Í henni eru Svav
ar Gestsson fyrrverandi alþingis
maður, Sigurður Þórólfsson bóndi í
YtriFagradal og Sumarliði Ísleifs
son sagnfræðingur á Níp á Skarðs
strönd. Með þeim starfar Þórunn
María Örnólfsdóttir mastersnemi
í sagnfræði en hún er frá Akranesi.
Henni er ætlað að vera tengiliður í
samstarfi Háskóla Íslands og Dala
byggðar í sumar.
Reykholt er fyrirmyndin
Skessuhorn átti spjall við þau Svav
ar og Þórunni Maríu á dögunum.
Svavar er frá bænum Grund á Fells
strönd en fór þaðan 14 ára gamall.
„Föðurættin er úr Dölunum og þar
á ég rætur. Ég hef verið að vinna
smávegis að menningarverkefnum
sem tengjast Dölunum og núna er
það Sturla Þórðarson sagnaritari
sem við höfum áhuga á að lyfta upp
í ljósið svo öll þjóðin taki eftir, enda
er Sturla þjóðareign en ekki aðeins
okkar Dalamanna,“ segir Svavar.
Einar Kárason hefur sem kunn
ugt er unnið þrekvirki í þeim efn
um að kynna Sturlu með þremur
skáldsögum. Sturla er eignuð Há
konar saga, Magnúsar saga laga
bætis, Landnámabók og Íslend
ingasaga í samtímaheimildum.
„Svo vorum við svo heppin að fá
Þórunni Maríu til að vinna með
okkur,“ sagði Svavar, en þess má
geta að Þórunn María sótti einmitt
efni í meistaraverkefni sitt í ná
grenni Dalanna, það er við Breiða
fjörðinn. Svavar segir að áætlað sé
að verkefnið um Sturlusetur geti
tekið langan tíma. Fyrirmyndin af
því væri í raun Reykholt. „Snorri
Sturluson var eins og þeir vita sem
þekkja söguna föðurbróðir Sturlu
Þórðarsonar sagnaritara og Snorri
hefur sannarlega skyggt nokkuð
á þennan frænda sinn. Reykholt
er stóra fyrirmyndin okkar í þessu
máli. Við viljum gera það úr Sturlu
í Dölunum sem Borgfirðingar hafa
gert úr Snorra,“ segir Svavar.
Drög að dagskrá
Sturluhátíðar
Komin eru drög að dagskrá Sturlu
hátíðar að Tjarnarlundi sunnudag
inn 27. júlí nk. Þar verða m.a. flutt
nokkur erindi með Sturlu í brenni
depli. Þau Halla Steinólfsdóttir
bóndi í YtriFagradal og Sumar
liði Ísleifsson sagnfræðingur á Níp
fjalla um Sturlu og Dalina, fram
tíðarsýn. Þar verða reifuð áform
in um stofnun Sturluseturs. Einar
Kárason rithöfundur hefur skrifað
þrjár bækur byggðar á atburðum
úr Sturlungu. Sú síðasta hét Skáld
og fjallaði um Sturlu Þórðarson.
Erindi Einars Kárason á Sturluhá
tíð ber yfirskriftina, „Hann vissi ég
alvitrastan og hófsamastan.“ Guð
rún Nordal forstöðumaður stofn
unar Árna Magnússonar talar um
skáldið Sturlu Þórðarson og einnig
flytja ávörp Einar Kr. Guðfinnsson
forseti Alþingis og forseti norska
stórþingsins sem þarna verður í
heimsókn. Að lokinni dagskrá í
Tjarnarlundi verður síðan farið að
Staðarhóli sem er steinsnar þarna
frá í fylgd Sigurðar Þórólfsson
ar og fornleifafræðings af Vestur
landi.
Starfi Friðjóns
haldið áfram
Þau Svavar og Þórunn María segja
að margir sem koma við sögu í
dagskrá Sturluhátíðar séu væntan
legir samstarfsaðilar við uppbygg
ingu Sturluseturs, svo sem fulltrúi
Árnastofnunar og vonandi gestirn
ir frá Noregi. „Sturla Þórðarson
var gríðarlega mikilhæfur maður
á sinni tíð. Auk þess að vera mjög
afkastamikill sagnfræðingur, skáld
og rithöfundur, var hann héraðs
höfðingi, stjórnmálamaður og lög
sögumaður,“ segir Svavar. Þórunn
María vekur athygli á því að einn
liður í undirbúningi Sturluseturs,
og að lyfta upp nafni Sturlu Þórð
arsonar meðal almennings til fram
tíðar, sé verkefni sem í undirbún
ingi er í grunnskólunum. Stjórn
endur grunnskóla á Vesturlandi
hafa tekið vel í verkefni í skólun
um um Sturlu og stefnt sé að gerð
námsefnis. Svavar segir að undir
búningur fyrir Sturlusetri sé í raun
framhald af því sem Friðjón Þórð
arson fyrrverandi alþingismaður
vann að á sínum tíma, á Eiríksstöð
um og síðan Leifsbúð. „Sturluset
ur yrði í raun framhald af því starfi.
Við erum að taka upp þráðinn þar
sem hann sleppti,“ sagði Svavar
Gestsson að endingu. þá
Vilhjálmur Egilsson rektor kom víða við í ræðu sem hann flutti við útskrift 135
nemenda frá skólanum.
Aðsókn að námi við Háskólann á Bifröst er að stóraukast
Minnisvarðinn um skáldin þrjú í Saurbæ: Stefán frá Hvítadal, Stein Steinarr og
Sturlu Þórðarson.
Unnið að undirbúningi Sturluhátíðar í Dölum
Þórunn María Örnólfsdóttir og Svavar Gestsson eru meðal þeirra sem vinna að undirbúningi Sturluhátíðar.