Skessuhorn


Skessuhorn - 19.11.2014, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 19.11.2014, Blaðsíða 5
 Kísilmálmverksmiðja Elkem Ísland leitar að öflugu starfsfólki, konum og körlum, í tímabundin framleiðslustörf. Annars vegar er um að ræða vinnu frá áramótum og fram á haust og hins vegar næsta sumar. Þeim sem ráðnir eru í sumarstarf býðst einnig vinna í desember. Tímabundin störf Unnið er á þrískiptum vöktum, dag-, kvöld- og næturvöktum. Umsóknarfrestur er til 10. desember nk. Sumarstörf Flest sumarstörf okkar eru í vaktavinnu við framleiðsluna. a) Á þrískiptum vöktum að degi, kvöldi og nóttu. Unnar eru 6 vaktir á 5 dögum. Í kjölfarið er fimm daga frí. b) Á dagvöktum þar sem á hverjum 14 dögum er unnið samfleytt í 7 daga á vöktum kl. 7:30 til 18:00. Í kjölfarið er vikufrí. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar Æskilegir eiginleikar umsækjenda Sterk öryggis- og gæðavitund Metnaður til starfa við sérhæfða hágæðaframleiðslu Sveigjanleiki og styrkur til að vinna jöfnum höndum sjálfstætt og í teymi Jákvæðni, vinnusemi og vilji til að læra af reynslu samstarfsmanna Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa gott vald á tölvunotkun og samskiptum á íslenskri tungu. Nýtt starfsfólk fær sérstaka þjálfun og leiðbeinanda. Elkem greiðir kostnað vegna vinnuvélaréttinda séu þau ekki fyrir hendi. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um störf hjá fyrirtækinu og bjóðum nýjan og öflugan liðsauka velkominn. Athygli er vakin á því að Elkem Ísland er vímuefnalaus vinnustaður og í aðdraganda ráðningar eru umsækjendur beðnir um að gangast undir vímuefnapróf. Umsækjendur eru beðnir um að nálgast frekari upplýsingar og sækja um starfið á www.elkem.is. UM ELKEM Elkem Ísland ehf. leggur metnað sinn í framleiðslu á hágæða kísilmálmi og kappkostar að mæta ýtrustu kröfum viðskiptavina sinna. Fyrirtækið leggur áherslu á að valda sem minnstri röskun á umhverfinu og búa starfsfólki sínu öruggar og góðar vinnuaðstæður. Elkem Ísland | Grundartanga | 301 Akranes | elkem@elkem.is | elkem.is LIÐSAUKI ÓSKAST

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.