Skessuhorn - 19.11.2014, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
Úrslitin í spurningakeppninni
Bókaormar Brekkubæjarskóla fór
fram á sal skólans þriðjudaginn 10.
nóvember sl. Eftir harða keppni
stóð 6. S uppi sem sigurvegari með
46 stig en hann keppti á móti 7. B
sem fékk 42 stig. Í sigurliðinu voru
Birta Svansdóttir, Salka Brynjars-
dóttir og Sólbjört Hákonardóttir.
Í liði sjöunda bekkjar voru Antonía
Sveinsdóttir, Arna Jónsdóttir og
Nökkvi Guðmundsson. Krakkarn-
ir sem skipuðu liðin voru þó ekki
ein um að svara spurningunum því
leita mátti til bekkjarfélaganna um
aðstoð í flestum þáttum keppninn-
ar. Keppt er um farandbikar sem
undirrituð gaf til keppninnar. Verð-
ur hann í varðveislu sjötta bekkjar
fram að næstu keppni. Þetta er í
annað sinn sem keppnin er haldin
og er hún vonandi komin til að vera
næstu árin.
Markmiðið með keppninni er að
hvetja nemendur til þess að lesa.
Um er að ræða útsláttakeppni fyrir
nemendur í 4. - 7. bekk. Gefinn var
út listi síðastliðið vor með 18 bók-
um sem spurt yrði úr en listann var
einnig að finna á Bókasafni Akra-
ness. Nemendur voru hvattir til að
nota sumarið og kynna sér bækurn-
ar en keppnin sjálf hófst 24. októ-
ber.
Keppnin samanstendur af hrað-
aspurningum, bjölluspurningum,
vísbendingaspurningumr, leik orða
og liður sem kallaður er Allir saman
en þá mega liðin velja sér ákveðna
bók til þess að svara spurningum úr.
Spurningar eru unnar í samstarfi
starfsmanna skólasafna grunnskól-
anna hér á Skaga en sams konar
keppni fer fram í báðum skólum.
Að lokum vil ég minna börn, for-
eldra, ömmur og afa á mikilvægi
lestrar. Nú þegar jólin nálgast og
spurningar vakna varðandi inni-
hald jólapakkanna sem gefa á vil ég
minna á að bók er góður valkost-
ur fyrir alla.
Hallbera Jóhannesdóttir
Ljósm. Kristinn Pétursson
Ferðaþjónustan á Vesturlandi hélt
á fimmtudaginn í liðinni viku upp-
skeruhátíð sína fyrir árið 2014.
Ráðstefnan var að þessu sinni hald-
in að Hlöðum í Hvalfjarðarsveit og
í Bíóhöllinni á Akranesi. Fulltrúar
úr ferðaþjónustunni allsstaðar að af
Vesturlandi mættu á ráðstefnuna og
var á sjöunda tug sem mætti. Fram
kom að miklar breytingar urðu á
rekstri Markaðsstofu Vesturlands
um síðustu áramót, þegar hún fór
undir hatt Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi (SSV) en fram að því
hafði reksturinn staðið veikum fót-
um fjárhagslega. Tap hafði verið á
rekstrinum árin á undan og hafði
það reynst Markaðsstofunni fjöt-
ur um fót í uppbyggingarstarfi sínu
fyrir atvinnugreinina. Við hátíðar-
kvöldverð í lok dagskrár var for-
svarsmönnum Landnámsseturs Ís-
lands í Borgarnesi færð verðlaun
ferðaþjónustunnar á Vesturlandi;
Höfðingjann. Hvatningarverðlaun
hlaut Kári Viðarsson í Frystiklef-
anum í Rifi.
Jafnvægi í rekstrinum
Fyrstur til að taka til máls á upp-
skeruhátíð ferðaþjónustunnar var
Páll S Brynjarsson nýráðinn fram-
kvæmdastjóri SSV. Hann kynnti
þær breytingar sem urðu á árinu
og ræddi framtíð SSV og markaðs-
stofunnar í erindi sínu. Hann gerði
grein fyrir fjármálum markaðsstof-
unnar og sagði frá því að í byrjun árs
var áætlað að skuldir hennar væru
um 12 milljónir króna. Páll sagði
frá því að SSV og Ferðamálasam-
tök Vesturlands hafi gert með sér
samkomulag á árinu um að ná nið-
ur þeim skuldum og væri sú vinna
farin af stað hægt og rólega. „Áætl-
un fyrir 2014 gerði ráð fyrir rúm-
lega einni milljón króna í rekstrar-
afgang. Það lítur út fyrir að rekst-
urinn verði í jafnvægi og að tekjur
standi undir gjöldum í ár,“ sagði
Páll meðal annars í erindi sínu. Þá
nefndi hann einnig að markaðsstof-
an hafi tekið að sér ýmis verkefni á
árinu sem skiluðu sértekjum. Þær
tekjur séu ekki inni í áætluninni
enda sé erfitt að áætla slík verkefni
og tekjur af þeim fram í tímann.
Fram kom að frekara samstarf um
markaðs- og ferðamál milli stjórnar
SSV og ferðamálasamtakanna sé
á döfinni, en unnið er að stofnun
fimm manna ráðgefandi starfshóps
í ferðamálum.
Rósa Björk lætur
af störfum
Að lokum sagði Páll frá því að
Rósa Björk Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu Vest-
urlands, mun láta af störfum 1.
mars 2015. Páll þakkaði henni fyr-
ir vel unnin störf og sagði frá því
að viðræður væru hafnar við Krist-
ján Guðmundsson, verkefnis-
stjóra Markaðsstofunnar, um að
taka starfið að sér. Nýr verkefn-
isstjóri verður ráðinn í hans stað
í mars. Rósa hefur stýrt daglegu
starfi markaðsstofunnar frá 2011.
Hún steig í pontu og þakkaði vel
fyrir sig. Fór Rósa Björk yfir helstu
verkefni markaðsstofunnar á árinu
og hvatti fulltrúa ferðaþjónust-
unnar til frekari samvinnu og fag-
legra vinnubragða. Þá notaði hún
tækifærið og hrósaði Kristjáni fyr-
ir vel unnin störf. Hún sagði Krist-
ján taka við markaðsstofunni á mun
betri stað en hún gerði á sínum
tíma, enda hafi mikill tími farið í að
vinna á rekstrarvandamálum fyrstu
árin sem hún starfaði hjá markaðs-
stofunni. Hafi það bitnað á mark-
aðsmálum. Í samtali við Skessu-
horn sagði Rósa að hún langaði í
framtíðinni til að starfa á vettvangi
sem kæmi atvinnuuppbyggingu og
byggðamálum til góða. Hún segir
ferðaþjónustuna hafa breyst mikið
á þeim árum sem hún hafi starfað
við hana. „Ég er ekki ákveðin hvað
ég geri í framhaldi af þessu, en ég
er sannfærð um að það verður eitt-
hvað spennandi verkefni.“
Nýr landshlutavefur
opnaður
Á ráðstefnunni var nýr landshluta-
vefur fyrir Markaðsstofu Vestur-
lands kynntur. Hann var opnað-
ur á fimmtudaginn og var unn-
inn í kjölfar sameiginlegs verkefnis
allra markaðsstofa landsins um að
stofna nýja landshlutavefi. Hóp-
ur heimamanna frá öllum svæðum
Vesturlands fór yfir eldri vefinn til
að finna út hverju mátti breyta og
hvað mætti bæta. Nýja vefnum er
ætlað að vera meira markaðstæki en
sá eldri var, en hann þjónaði frekar
hlutverki upplýsingaveitu en mark-
aðstækis. „Vefurinn auðveldar fólki
að ferðast um landshlutann, hann
veitir betri upplifun og helstu perl-
ur landshlutans eru dregnar bet-
ur fram. Auk þess auðveldar hann
fjölskyldufólki að finna afþreyingu
við sitt hæfi,“ sagði Kristján Guð-
mundsson þegar hann kynnti vef-
inn og fór yfir þá möguleika sem
vefurinn býður upp á. Nýi vefur-
inn er fyrst um sinn einungis að-
gengilegur á ensku en til stend-
ur að breyta íslenska vef markaðs-
stofunnar einnig. Áhugasamir geta
skoðað nýja vefinn á slóðinni www.
west.is
Tvenn verðlaun afhent
Að lokum steig á stokk Ragnhild-
ur Sigurðardóttir framkvæmda-
stjóri Svæðisgarðsins á Snæfells-
nesi og útskýrði fyrir viðstöddum
hvað svæðisgarðurinn er og til-
gang hans. Eftir fundinn á Hlöðum
héldu gestir uppskeruhátíðarinnar í
Bíóhöllina á Akranesi, þar sem dag-
Látbragð og leikur þar sem nemendur þurfa að finna orðið.
Bókaormar Brekkubæjarskóla 2014
Baráttan um „bjölluna.“
Kampakátir sigurvegarar úr 6. S.
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Vesturlandi
Landnámssetrið í Borgarnesi handhafi Höfðingjans 2014
skráin hélt áfram. Að henni lokinni
var lagt í óvissuferð um Akranes-
kaupstað og Hvalfjarðarsveit.
Deginum lauk með sameigin-
legum málsverði á Hótel Glym á
Hvalfjarðarströnd. Þar var Land-
námssetrinu í Borgarnesi afhent
verðlaunin „Höfðinginn“ fyrir árið
2014. Það er farandstytta og viður-
kenning Ferðamálasamtaka Vest-
urlands fyrir góðan árangur í starfi
við ferðaþjónustu. Einnig voru veitt
hvatningarverðlaun fyrir nýtt fyrir-
tæki sem unnið hefur brautryðj-
andastarf eða komið fram með ný-
breytni á sviði ferðaþjónustu. Þau
hlaut Kári Viðarsson sem rekur
viðburðarhostelið og atvinnuleik-
húsið Frystiklefann í Rifi.
grþ
Ragnhildur Sigurðardóttir fram-
kvæmdastjóri kynnti Svæðisgarðinn
Snæfellsnes.
Landnámssetrið í Borgarnesi fékk Höfðingjann, viðurkenningu Ferðamálasamtaka Vesturlands 2014.. Hún er veitt þeim
sem hefur verið í fararbroddi, verið hvetjandi fyrirmynd og styrkt ferðaþjónustu síðastliðin ár á Vesturlandi. Hér eru Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnarsson, eigendur Landnámssetursins, ásamt Birni Páli Fálka Valssyni formanni
Ferðamálasamtaka Vesturlands og Eddu Arinbjarnar stjórnarmanni í FV, sem afhentu verðlaunin.
Kári Viðarsson í Frystiklefanum hlaut
hvatningarverðlaunin.