Læknablaðið - 15.07.2002, Síða 35
FRÆÐIGREINAR / GLERUNGSEYÐANDI DRYKKIR
basa til hlutleysingar hjá fimm mismunandi flokkum
drykkja. Niðurstöður leiddu í ljós að sýrustigið er
ekki í beinu sambandi við magn basa sem þarf til
hlutleysingar, dæmi er samanburður á epla- og app-
elsínusafa. Eplasafinn er súrari (pH 3,59) en appel-
sínusafinn (pH 3,83) en hins vegar þarf appelsínusaf-
inn meira magn basa (NaOH: 3,75 ml) en eplasafinn
(NaOH: 2,43 ml) til að hlutleysast.
Helstu niðurstöður flokkanna eru þeir að flestir
gosdrykkir (tafla I), djús og ávaxtasafar (tafla II) auk
íþrótta- og orkudrykkja (tafla IV) hafa pH gildi undir
5,5 og eru því taldir glerungseyðandi. Hreint sóda-
vatn mældist með pH 5,50 og pH 5,92 og getur því
ekki talist glerungseyðandi. Það var áberandi hvað
það þurfti hlutfallslega lítið af basa til að hlutleysa
kóladrykki (0,59-0,98mI af 1M NaOH) í samanburði
við ávaxtasafana (2,43-5,92ml af 1M NaOH). Kaffi,
te, ásamt flestum mjólkurdrykkjunum höfðu hærra
pH en 5,5, að undanskilinni mysu og mysudrykkjum
(samanber Garpur, tafla III). Léttvín hafði lægra
sýrustig en pH 5,5 en bjór var rétt undir krítísku sýru-
stigi munns og þurfti lítið magn basa til að hlutleysa
bjórinn (tafla V).
Að lokum má sjá súlurit (mynd 1) af samanburði
á einum óhagstæðum drykk úr hverjum flokki, metið
út frá magni basa (ml af 1M NaOH) sem þurfti til að
hlutleysa drykk að pH 5,5.
Umræða
Glerungseyðing er alvarlegur sjúkdómur vegna mik-
ils sársauka, eyðingar tanna og kostnaðarsamrar en
nauðsynlegrar viðgerðar. Talið er að tíðni glerungs-
eyðingar fari vaxandi en helsti áhættuhópur íslend-
inga eru böm og unglingar (Árnadóttir, óbirtar niður-
stöður). Neyslumynstur glerungseyðandi drykkja er
talið vera mikilvægur orsakaþáttur glerungseyðingar,
en hingað til hefur lítið verið vitað um glerungseyð-
andi áhrif drykkja á íslenskum markaði. Áður var
talið að sýrustig drykkja hefði mest að segja um gler-
ungseyðandi áhrif þeirra en erlendar rannsóknir hafa
sýnt fram á að rúmmál basa til að hlutleysa drykk er
betri mælikvarði til að meta glerungseyðandi áhrif
hans (13). Sýrur, svo sem sítrónusýra, eplasýra og
fosfórsýra, eru oft notaðar í svaladrykki en ekki er
þekktur teljanlegur munur á glerungseyðandi áhrif-
um þeirra þó að vísbendingar séu til þess að sítrónu-
sýra (samanber appelsínusafa) hafi meiri glerungs-
eyðandi áhrif en eplasýra (samanber eplasafa) eða
fosfórsýra (samanber kók). Aukinn styrkur kalsíums
og fosfórs er talinn draga úr glerungseyðandi mætti
drykkja (15), en kalk hefur verið notað í þeim til-
gangi að draga úr glerungseyðandi áhrifum í erlend-
um drykkjartegundum (16-18). Heimildir um fyrir-
byggjandi áhrif flúors á glerungseyðingu tanna eru
misvísandi en nýjustu heimildir sýna að flúor sé ekki
verndandi (19). Upplýsingar um þróun drykkja á ís-
Tafla IV. Mælingar á upphafs pH og magni basa til hlutleysingar í íþrótta- og orku- drykkjum.
Mjólkurdrykkir PH mlNaOH aö pH 5,5 ml NaOH aö pH 7.0 mlNaOH aö pH 10,0
Aquarius 2,82 1,38 1,88 2,12
Batterí 2,78 3,52 5,61 9,03
Gatorade/appelsínu 3,28 1,66 2,38 2,62
Gatorade/ávaxta 3,20 1,67 2,33 2,56
Gatorade/peru 3,17 1,69 2,30 2,56
Leppin 2,81 1,57 2,68 4,21
Magic 2,90 3,56 5,73 7,66
Red Evil 2,56 3,27 5,42 7,74
Orka 2,67 1,68 3,28 5,55
Tafla V. Mælingar á upphafs pH og magni basa til hlutleysingar I ýmsum drykkjum.
Ýmsir drykkir PH ml NaOH aö pH 5.5 ml NaOH aö pH 7.0 ml NaOH aö pH 10,0
Bjór 4,63 0,47 2,30 4,49
Hvítvín 3,18 3,67 4,48 5,26
Kaffi 5,00 0,19 0,42 1,26
Rauðvín 3,48 2,58 3,09 3,85
Te 5,37 0,02 0,08 0,41
Sítrónu Konsentrate 2,54 30,91 38,62 40,22
ml NaOH að pH 5,5
Kók (plast)
Trópí -
appelsínu
Garpur
Leppin
Hvítvín
Glerungseyöandi drykklr úr flokki l-V.
lenskum markaði með kalsíum og fosfór hafa verið
takmarkaðar en mikilvægi hollustu matvæla eykst
stöðugt með aukinni heilbrigðisvitund almennings.
Það vakti athygli í þessari rannsókn að það fannst
ekki samband á milli sýrustigs drykkja og magn basa
til hlutleysingar. Flestir gosdrykkir eru súrari en safar
og því talið að gosdrykkir séu óhagstæðari, en komið
hefur í ljós að það þarf meira magn basa til að hlut-
leysa safana en gosdrykkina. Frá næringarfræðilegu
sjónarmiði eru safarnir ríkir af vítamínum eins og C-
vítamíni sem aftur eykur upptöku á járni og öðrum
næringarefnum. Stuðla þarf að þróun drykkja sem
yrðu næringarfræðilega hagstæðir og hefðu lítil eða
engin glerungseyðandi áhrif. Auk þess væri nauðsyn-
legt að skoða neyslumynstur súrra drykkja hérlendis
þar sem tekið yrði fyrir magn og tíðni neyslu en talið
Mynd 1. Myndin sýnir
fimm algenga glerungs-
eyðandi drykki á íslensk-
um markaði úrflokki l-V.
Drykkirnir erti Kók úr
flokki gosdrykkja, App-
elstnutrópí úr flokki safa
og djús, Garpur tir flokki
mjólkurdrykkja, Leppin
tír flokki íþrótta- og orktt-
drykkja og hvítvín tir
flokki ýmissa drykkja.
Læknablaðið 2002/88 571