Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 16
FRÆÐIGREINAR / LUNGU OG HEILSA
Niðurstöður: Niðurstöður rannsóknarinnar eru
skoðaðar út frá tveimur sjónarmiðum; hvernig þær
voru í heildina tekið og hvernig íslenski rann-
sóknarhópurinn kom út gagnvart þátttakendum frá
öðrum þjóðum. Rannsóknin sýndi mikinn landfræði-
legan mun á algengi asma, annarra einkenna frá önd-
unarfærum og auðreitni í berkjum og ofnæmi. Þannig
var í fyrri áfanga rannsóknarinnar áttfaldur munur á
surg, sexfaldur munur á asma, meira en tífaldur mun-
ur á læknisgreindum asma og fjórfaldur munur á of-
næmiseinkennum í nefi milli rannsóknarsetranna.
Enskumælandi lönd skáru sig úr með háar algengis-
tölur fyrir öndunarfærasjúkdóma, en ísland, hluti
Spánar, Þýskaland, Ítalía, Alsír og Indland voru á
neðri enda skalans. I seinni hluta rannsóknarinnar
kom fram nærri þrefaldur munur á ofnæmi og átt-
faldur munur á auðreitni í berkjum. Nýgengi asma
hækkaði með hækkandi fæðingarári (lækkandi aldri).
Bráðaofnæmi (mælt sem jákvætt próf fyrir einu
eða fleiri sértækum IgE mótefnum) var mest í
Astralíu en önnur enskumælandi lönd og Sviss voru
með algengi yfir 40%, en Island var lægst (algengi
23,6%) og Grikkland, Noregur og Italía voru með
algengi <30%. Heildarmagn IgE mældist hæst í
Grikklandi, Frakklandi, írlandi og Ítalíu (>50kU/L)
en það mældist lægst á íslandi (13,2 kU/L).
Sagt er frá niðurstöðum úr Evrópurannsókninni
sem fjalla um það hvernig aðstæður í umhverfinu
hafa áhrif á algengi surgs, asma, auðreitni í berkjum
og ofnæmis.
Samantekt: Evrópurannsóknin Lungu og heilsa hef-
ur sýnt fram á mikinn mun á algengi asma meðal þátt-
tökuþjóðanna svo og annarra öndunarfærasjúkdóma,
auðreitni í berkjum og ofnæmis. Þessir sjúkdómar
eru algengastir meðal enskumælandi þjóða en sjald-
gæfastir á íslandi, þeirra þjóða sem þátt tóku í rann-
sókninni. Fjallað er um hugsanlega skýringu á
sérstöðu íslands að þessu leyti.
Inngangur
A árunum 1990-94 var ráðist í mjög umfangsmikla
fjölþjóðlega rannsókn á asma og ofnæmi. A ensku
fékk rannsóknin heitið The European Community
Respiratory Health Survey (ECRHS) og á íslensku
Evrópurannsóknin Lungu og heilsa. Tilgangur rann-
sóknarinnar var þnþættur (1): 1) að kanna og bera
saman algengi asma, asmaeinkenna og ofnæmis í ýms-
um löndum í Evrópu, 2) að kanna útbreiðslu þekktra
eða hugsanlegra áhættuþátta asma, meta tengsl þeirra
við sjúkdóminn og hvernig þeir skýra mismunandi
algengi asma í Evrópulöndum, 3) að gera grein fyrir
mismunandi meðferð á asma í Evrópu.
Hvatinn að rannsókninni var ekki síst mikil fjölg-
un asmatilfella víða um heiminn (2-4) og vaxandi
dánartíðni (5-8). Þessi óheillaþróun var hraðari en
svo að hún yrði skýrð út frá erfðafræðilegum lögmál-
um. Fyrir henni hlutu því að vera aðrar orsakir. Til
stuðnings þeirri skoðun voru niðurstöður rannsókna
sem sýndu að asmi kom oftar fyrir í þéttbýli en strjál-
býli (9, 10). Fjöldi þeirra sem fengu meðferð vegna
asma (11) og dánartíðni vegna asma (12) var hvort
tveggja verulega breytilegt í löndum Evrópu sem gat
bent til þess að einkenni asma væru mismikil eftir
landsvæðum. Til þess að athuga hvort breytingar í
umhverfinu gætu skýrt þennan landfræðilegan mun
var farið á stað með þessa rannsókn sem bar saman
tíðni og alvarleika asma og ofnæmissjúkdóma í mis-
munandi löndum og landsvæðum.
Fyrri rannsóknir höfðu sýnt aukningu á ofnæmis-
sjúkdómum á ákveðnum svæðum á seinni hluta síð-
ustu aldar (13-15). Þessar rannsóknir voru hins vegar
unnar á mismunandi hátt, með mismunandi prófum
og prófefnum. Þess vegna var erfitt að slá einhveiju
föstu um þann landfræðilega mun sem fannst á tíðni
ofnæmis og asma. Evrópurannsóknin Lungu og heilsa
er fyrsta rannsóknin sem gerð er til að kanna algengi
asma og ofnæmissjúkdóma með nákvæmlega sömu
aðferðum í mörgum löndum.
Rannsóknin var ekki eingöngu bundin við Evrópu
því rannsóknarsetur voru einnig í Afríku, Asíu, Eyja-
álfu og Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þátttökusetr-
in voru í 21 landi og nærri 140 þúsund einstaklingar
veittu heilsufarsupplýsingar.
Nú þegar um áratugur er liðinn frá því rannsóknin
hófst hefur gögnum verið safnað í annarri umferð
hennar (ECRHSII). Þess vegna er eðlilegt að líta um
öxl og draga saman helstu niðurstöður fyrstu um-
ferðar Evrópurannsóknarinnar.
Vitað er um hátt á annað hundrað greinar úr rann-
sókninni sem birtar hafa verið á ensku, auk fjölda
greina á öðrum tungumálum. Á þriðja tug greina hef-
ur birst úr sameiginlegum gagnabanka rannsóknarinn-
ar og höfum við leitast við að draga hér fram helstu
niðurstöður þeirra og leggjum sérstaka áherslu á rann-
sóknargögn þar sem íslenskir þátttakendur koma
einnig við sögu. Hins vegar sneiðum við að mestu hjá
greinum sem birtar voru um niðurstöður frá einstök-
um rannsóknarsetrum eða löndum.
Efniviður og aðferð
Rannsóknarhópar: Hvert rannsóknarsetur valdi úr-
takssvæði með að lágmarki 150.000 íbúa. Rannsókn-
inni var skipt í tvo hluta. í fyrri hlutanum voru minnst
1500 konur og 1500 karlar á aldrinum 20-44 ára valin
af handahófi úr þjóðskrá. Þau fengu senda spurn-
ingalista í pósti um asma, asmatengd einkenni, lyfja-
notkun við asma og ofnæmi í nefi (16).
I seinni áfanga könnunarinnar voru 800 einstak-
lingar valdir af handahófi úr fyrri rannsóknarhópn-
um og kallaðir til viðtals og rannsókna. Þeir svöruðu
ítarlegri spurningalista en í fyrra skiptið. Einnig var
framkvæmd ofnæmisrannsókn með pikkprófi og blóð-
892 Læknablaðið 2002/88