Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 74
RÁÐSTEFNUR / ÞING
• Ellefta ráðstefnan um rannsóknir í
læknadeild, tannlæknadeild og
lyfjafræðideild Háskóla íslands
~~ 3. og 4. janúar 2003
Munið að skrá þátttöku og taka fram ef þátttökugjald
er greitt af stofnun/fyrirtæki
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16.
Þátttakendur: Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast fyrst og fremst við kennara og starfsmenn deildanna en
kennarar og starfsmenn annarra deilda Háskóla íslands eru jafnframt velkomnir. Ennfremur er gert ráð fyrir þátt-
töku starfsmanna stofnana sem tengjast deildunum, kennslusjúkrahúsum landsins og öðrum kennslustofnunum
deildanna. Aðilum sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsmenn læknadeildar, lyfjafræðideildar og tann-
læknadeildar er einnig boðin þátttaka.
Þátttökugjald: Kr. 3500 almennt gjald, kr. 1500 fyrir háskólanema. Ekki verður tekið við greiðslu með kortum.
Greiði stofnun/deild þátttökugjald/-gjöld fylgi skrifleg beiðni til framkvæmdastjóra ráðstefnunnar.
Erindi og veggspjöld: í frjálsum erindaflutningi fær flytjandi 10 mínútur sem skiptast þannig: sjö mínútur í kynn-
ingu og þrjár í umræðu. Tímamörkum verður nákvæmlega fylgt. Stærð veggspjalda er 90 cm (breidd) og 120 cm
(hæð). Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar. Auk frjálsra erinda verða gestafyrirlesarar boðnirtil
ráðstefnunnar.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna.
Auk þess mun dagskrá ráðstefnunnar birtast þar.
Tæknibúnaður: Boöið verður upp á tölvuskjávarpa (windows stýrikerfi) og skyggnuvél við flutning erinda.
Skráning: Hjá framkvæmdastjóra ráðstefnunnar Birnu Þórðardóttur, símar: 862 8031 / 552 1570 / 552 9075 (h);
netfang: birna@birna.is. Þátttakendur er hvattirtil að skrá sig tímanlega
Vísindanefnd læknadeildar, tannlæknadeildar og lyfjafræðideildar
Eiín Soffía Ólafsdóttir Sigfús Þór Elíasson
Gísli Sigurðsson Svandís Sigurðardóttir
Jórunn Erla Eyfjörð Þór Eysteinsson
Við rúmstokkinn
Sjúkratilfellafundur Fræðslustofnunar lækna verður haldinn að Hótel Loftleiðum laugardaginn 7.
desember næstkomandi frá kl. 10:00 til 11:30. Léttur morgunverður er frá kl. 9:30-10:00.
58 ára gömul kona með áreynslubundna verki
og máttleysi í ganglimum og lækkað kalk í blóði
Kynning á sjúkratilfelli: Gunnar Tómasson unglæknir Myndgreining: Verður tilkynnt síðar
Umræða um tilfelli: Ólafur Skúli Indriðason Vefjameinafræði: Sigfús Þ. Nikulásson
Allir læknar og 4.-6. árs læknanemar eru hvattir til að mæta.
Fundurinn er í boði GlaxoSmithKline.
Fræðslustofnun lækna
950 Læknablaðið 2002/88