Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GJÖF TIL LÍ / LYFJAEFTIRLIT / BÓKARFRÉTT
Gjöf til Læknafélags íslands
60 árgangar af
Læknablaðínu
Á DÖGUNUM kom Gunnlaugur Snædal læknir og fyrr-
verandi formaður Læknafélags Reykjavíkur og stjórn-
armaður í Læknafélagi Islands færandi hendi í Hlíða-
smára 8. Hann hafði meðferðis 60 árganga af Lækna-
blaðinu, fagurlega innbundna, og afhenti þá LI að
gjöf. Þarna er um að ræða alla árganga frá því blaðið
hóf göngu sína árið 1915 fram til 1974.
Sigurbjörn Sveinsson formaður LI veitti gjöfinni
viðtöku og þakkaði fyrir hana. Bað hann Gunnlaug
síðan að aðstoða sig við að stimpla fyrsta árganginn
með sérstökum stimpli sem hann hafði látið útbúa og
merkja það þannig bæði gefanda og þiggjanda. Með
Gunnlaugi í för voru tveir synir hans, Jón og Kristján,
og einnig sonardóttirin Jóhanna Kristjánsdóttir.
Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ
og Gunnlaugur Snædal stimpla fyrsta árganginn.
Fallið frá innheimtu
lyfjaeftirlitsgjalds
í ÁGústmánuði í sumar ritaði Sigurbjörn Sveins-
son formaður LÍ bréf til Lyfjastofnunar þar sem
hann mótmælti innheimtu lyfjaeftirlitsgjalds fyrir
árið 2002. Nú hefur Lyíjastofnun svarað þessu bréfi
og er það svar svohljóðandi:
Lyfjaeftirlitsgjöld árið 2002
Vísað er í bréf Læknafélags íslands, dags. 20. ág-
úst, vegna álagningar lyfjaeftirlitsgjalda árið 2002.
Að gefnu tilefni vill Lyfjastofnun taka fram að
stofnunin hefur fallið frá álagningu lyfjaeftirlits-
gjalds árið 2002 á einstaka lækna, sem kaupa lyf
í heildsölu í eigin nafni. Engar breytingar hafa
verið gerðar vegna innheimtu eftirlitsgjalds á
læknastöðvar. Fjársýsla ríkisins hefur verið upp-
lýst um þessa ákvörðun og mun stofnunin end-
urgreiða þeim sem hafa greitt eftirlitsgjöld í
samræmi við það.
F.h. Lyfjastofnunar,
Daníel Viðarsson
Sviðstjóri gæða- og eftirlitssviðs
Gunnlaugur Snœdal og
sonardóttirin Jóhanna á
milli sonanna Jóns (til
vinstri) og Kristjáns.
Gjöfin er á borðinu fyrir
framan þau.
Handbók um
reykleysi
Út er komin handbók fyrir heil-
brigðisstarfsfólk sem fjallar um reyk-
leysismeðferð og tóbaksvarnir. Bók-
in nefnist Tært loft og er unnin með
hliðsjón af breskri bók, „Cleaning
the air“, en staðfærð og löguð að ís-
lenskum aðstæðum. í henni er að
finna leiðbeiningar fyrir heilbrigðis-
starfsfólk um hvernig það getur að-
stoðað fólk við að hætta að reykja á
sem áhrifaríkastan hátt.
Tilgangur bókarinnar er að
• auka þekkingu heilbrigðisstarfs-
manna á áhrifum reykinga á lýð-
heilsu
• kynna helstu ákvæði tóbaksvarna-
laga
• veita heilbrigðisstarfsfólki upp-
lýsingar um reykleysismeðferð í
því skyni að bæta hæfni þeirra og
öryggi á því sviði
• styðja heilbrigðisstarfsfólk til að
veita markvissa aðstoð til reyk-
leysis
Tært loft
REYKUYUSMtOFERO OC TÓ8AKSVARNIR
HANDBÓK fyrir
HEILBRIGOISSTARFSFOLK
• kynna úrræði og helstu leiðir við
framkvæmd reykleysismeðferðar
• bæta þekkingu heilbrigðisstarfs-
fólks á lyfjameðferð við tóbaks-
fíkn með og án nikótíns og auka
hæfni þess til að ráðleggja reyk-
ingamönnum um lyfjameðferð og
gerð áætlunar fyrir hvern og einn.
Bókin fæst hjá Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur.
(Ur fréttatilkynningu)
Læknablaðið 2002/88 925