Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / ATVINNUSJÚKDÓMAR Greining atvinnusjúkdóma Dæmi úr kúfiskvinnslu Gunnar Guðmundsson1 Kristinn Tómasson2 Vilhjálmur Rafnsson3 +Ásbj örn Sigfússon4 Ólafur Hergill Oddsson5 Unnur Steina Björnsdóttir1 Víðir Kristjánsson2 Sigurður Halldórsson6 Helgi Haraldsson2 'Lyflækningadeild Landspítala Fossvogi, 2Vinnueftirliti ríkisins, ’rannsóknastofu háskólans í heilbrigðisfræöi, 4rannsóknastofu háskólans í ónæmisfræði, 'héraðslæknir Norðurlands, hHeilbrigðis- stofnun Þingeyinga. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Gunnar Guðmundsson, Lyflækningadeild E-7, Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími: 543-6876, fax: 543-6568, ggudmimd@landspitali.is ^Ásbjörn Sigfússon lést hinn 8. september 2001. Lykilorð: atvinnusjúkdómar, ofsanœmislungnabólga, kúfisksótt. Ágrip Mikilvægt er að tilkynna um atvinnusjúkdóma til Vinnueftirlits ríkisins því þá er hægt að greina þá, rannsaka ítarlega og gera tillögur til úrbóta. Hér er lýst veikindum starfsmanna í kúskelvinnslu á Þórs- höfn sem leiddu til mjög yfirgripsmikillar rannsóknar og til greiningar kúfisksóttar sem er tegund ofsa- næmislungnabólgu. Margir aðilar tóku þátt rannsókn- inni sem leiddi til endurbóta á verksmiðjunni sem hafa komið starfsfólki til góða. Inngangur Atvinnusjúkdómar eru frábrugðnir öðrum sjúkdóm- um og hafa sérstöðu á margan hátt. Þeir ná oft til hóps fólks sem fær svipuð einkenni og vinnur á sama stað en á að öðru leyti ekki margt sameiginlegt. Ein- kenni atvinnusjúkdóma eru oft óljós og ekki alltaf augljóst að hægt sé að rekja þau til atvinnu. Þá bland- ast einnig inn þættir eins og hagsmunir atvinnurek- anda, svo sem fjarvistir frá vinnu, afköst og kostnað- ur vegna endurbóta atvinnuumhverfis. Leiðir þetta stundum til þess að erfitt er að viðurkenna að um at- vinnusjúkdóm sé að ræða. Á hinn bóginn koma hags- munir launþegans sem óttast að umkvartanir leiði lil atvinnumissis eða breytinga á starfsumhverfi. Þá get- ur einnig verið tregða hjá læknum að viðurkenna að um atvinnusjúkdóm sé að ræða því þeir óttast að það að upplýsa um slíkan sjúkdóm geti leitt til mikillar skriffinnsku og aukavinnu fyrir þá, auk þess að draga úr trausti þeirra í bæjar- eða sveitarfélaginu þar sem þeir starfa. Ef marka má fjölda tilkynninga um at- vinnutengda sjúkdóma til Vinnueftirlits ríkisins mætti halda að þeir væru mjög fátíðir á fslandi. Hér verður rakin frásögn af rannsókn á atvinnutengdum einkennum sem upp komu í kúfiskvinnslu og reynt að sýna fram á hversu flókin og yfirgripsmikil slík rannsókn getur orðið og hve margir aðilar koma að rannsókninni og mikilvægi þess að allir aðilar vinni markvisst að lausn vandans og þá ekki síst atvinnu- rekendur og starfsmenn. Kúskel og kúskelvinnsla Kúskel (arctica islandica) finnst nánast í kringum allt ísland og lifir á 0-100 metra dýpi í leir- eða sandbotni þar sem hún liggur niðurgrafin í sjávarbotninn. Hún er langlíf og vex hægt en hún getur orðið yfir 200 ára gömul. Slíkar skeljar eru verðmæt neysluvara vegna mikils prótíninnihalds og bragðgæða. Þær hafa verið ENGLISH SUMMARY Guðmundsson G, Tómasson K, Rafnsson V, Sigfússon Á, Oddsson ÓH, Björnsdóttir US, Kristjánsson V, Halldórsson S, Haraldsson H Diagnosing occupationai diseases Examples from shellfish industry Læknablaðið 2002; 88: 909-12 It is very important to report suspected occupational diseases in lceland to the Administration of Occupational Safety and Health, so they can be diagnosed, investigated in details and improvements made. This article describes the illness of clam workers at Þórshöfn, a small village in the northern part of lceland. It lead to a detailed investigation and the diagnosis of clamworkers hypersensitivity pneumonitis. Many specialists participated in the study that lead to improvement in the factory that has benefitted the workers. Keywords: occupational diseases, hypersensitivity pneumonitis, clam workers disease. Correspondance: Gunnar Guðmundsson, ggudmund@iandspitaii.is veiddar við austurströnd Bandaríkjanna frá 1944 og eru þar verksmiðjur sem vinna fiskinn úr skelinni í neytendaumbúðir. Kúskelin hefur lengi verið veidd við ísland til beitu en árið 1995 hófust veiðar til út- flutnings (1). í nóvember 1996 hófst vinnsla til út- flutnings á Bandaríkjamarkað hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar. Vinnslan fer þannig fram að skelin kem- ur inn í hús á færibandi og fer síðan í sjóðheitt vatn og opnast þá skelin og fiskurinn losnar frá. Hann flyst síðan á færibandi þar sem skeljabrot og önnur óhreinindi eru losuð frá sem og sandur og innyfli. í fremri sal þar sem skelin kom í hús á færibandi fór hún í suðukatla og mynduðust þar miklar gufur auk þess sem skeljabrot duttu af (sal 1). Síðan fór skelin á færibandinu inn í sal 2 þar sem sandur og innyfli voru skilin frá. Þar var lofti dælt í gegnum bandið til þess að hreinsa sand og skeljaleifar og fóru við það úðadropar út í loftið. Þarna var fiskurinn síðan unn- inn frekar og pakkað til útflutnings. Salur 1 og 2 voru skildir að með þykku plasthengi. Fiskurinn var síðan frystur. Mikið vatn var notað við allt ferlið og var það endurnýtt. Læknablaðið 2002/88 909
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.