Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2002, Page 19

Læknablaðið - 15.12.2002, Page 19
FRÆÐIGREINAR / LUNGU OG HEILSA Ástralíu (6,8-9,7%) en jákvæð svör voru lítið færri (yfir 5%) í Bretlandi og Oregon í Bandaríkjunum. Á íslandi svöruðu 2,2% játandi spurningu um asmaköst síðustu 12 mánuði, 3,1% í Noregi og 3,3% í Svíþjóð en fæstir í Antwerpen í Belgíu (1,3%) og Erfurt í Þýskalandi (1,3%). Meðferð við asma fengu hlut- fallslega flestir í Wellington á Nýja-Sjálandi (9,8%) og í öðrum rannsóknarsvæðum í Eyjaálfu en fæstir voru í meðferð við asma í Pavía á Ítalíu (1,3%) og Galdakao á Spáni (1,3%) (24). í Svíþjóð, Bretlandi, Hollandi, Nýja-Sjálandi og Alsír voru yfir 80% þeirra sem fengu greininguna asma í meðferð við asma (24). í Suður-Evrópu, sérstaklega á Ítalíu, í Frakklandi og á Spáni var þetta hlutfall lægra en 70% og lægst var það í Tartu í Eistlandi (30%). Það hefur sérstaklega verið fjallað um niðurstöður úr fyrri hluta Evrópu- rannsóknarinnar á Norðurlöndum (26). Þar voru flestir í asmameðferð í Vesturbotni í Svíþjóð (6,2%) en fæstir í Reykjavík (2,4%). Um 80% þeirra sem fengið höfðu asmaköst á síðustu 12 mánuðum voru í meðferð í Vesturbotni en 60% í Reykjavík. Á öðrum rannsóknarsvæðum á Norðurlöndum var þetta hlut- fall 70%. Asmalyfjanotkun á Norðurlöndum var líka mest í Svíþjóð (53 DDD/1000 íbúa) en minnst á íslandi (40 DDD/1000 íbúa). Finnland tók ekki þátt í Evrópurannsókninni Lungu og heilsa og tölur þaðan því ekki inni í þessum upplýsingum. Niðurstöður úr seinni áfanga: I seinni áfanga Evr- ópurannsóknarinnar þurfti að útiloka fimm rann- sóknarsetur vegna ófullnægjandi gagna og önnur helt- ust úr lestinni af öðrum ástæðum. Eftir stóðu 37 rann- sóknarsetur í 17 löndum sem luku að einhverjum hluta eða öllu leyti við seinni hluta rannsóknarinnar. Meðalþátttaka í seinni hlutanum var 65% úrtaks- hópsins (á bilinu 12-90%) og þátttakendur voru um 18.800 (23). Auk þeirra sem valdir voru í seinni hluta könnunarinnar af handahófi komu 2998 einstaklingar með vegna asmaeinkenna (symptomatic group) í út- reikningum þar sem það á við. Þar sem spurninga- listar í könnuninni voru samdir á ensku fyrir breskar aðstæður var gerð könnun á því hvort samræmi væri í svörum eftir löndum og málsvæðum. Niðurstaða þeirrar könnunar var sú að samræmi væri fullnægj- andi milli Ianda nema á Spáni þar sem fram kom mis- ræmi í svörum varðandi meðferð á asma (27). Asmi og asmalyfjanotkun: I töflu III eru niður- stöður frá íslandi bornar saman við hæstu, mið- og lægstu gildi ýmissa atriða úr seinni áfanga könnunar- innar. Tvö skilmerki þurfti til að vera talinn með asma (stage 2): að læknir hefði einhvern tímann greint asma og að hafa fengið minnst eitt asmaein- kenni á síðastliðnum 12 mánuðum. Til asmaeinkenna töldust: surgur fyrir brjósti, að vakna að nóttu með andþyngsli, mæðiköst að degi til í hvfld, mæðiköst eftir mikla áreynslu og að hafa vaknað með mæðikast á síðustu 12 mánuðum. Þannig skilgreint var algengi asma hæst á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu (11-13%), en Table III. Variation in the prevalence of respiratory symptoms, respiratory disease, sensitization, bronchial responsiveness, exposure and asthma treatment. Reykjavik in comparison to all centres. Reykjavik All centres Median Range Asthma and rhinitis Current asthma (stage 1) 3,4 4,5 2,0-11,9 Asthma (stage 2) 2,5 5,2 1,2-13,0 Nasal allergy and hay fever 17,8 20,9 9,5-40,9 Treatment Asthma medication 3,4 6,2 1,5-16,0 Inhaled bronchodilators 2,5 4,6 0,7 -12,4 Inhaled anti-inflammatory drugs 1 2,8 0,3-8,2 Oral asthma medication 0,5 1,4 0,2-6,5 Compliance 78 67 40-78 Chronic bronchitis about 2,0 2,6 0,7-9,7 Bronchial responsiveness PD20<1 mg 7,2 13 3,4-27,8 ECRHS slope (mean) 8,34 7,6 6,7-8,4 Allergic sensitization Mite 9,2 20,3 6,7-35,1 Cat 7,5 8,5 2,7 -14,8 Timothy 11,9 18 8,1-34,6 Cladosporium 6,5 2,4 0,3-13,6 Any allergen 23,6 33,1 16,2 - 44,5 IgE (geometric mean) kU/L 13,2 35,9 13,2-62,2 Exposure Male smokers 43 38 17-65 Female smokers 36 33 14-52 Nonsmokers exposed in the work 18,0 23,8 2,5 - 53,8 Gas stoves 0,9 63.0 0-100 Cat ownership 12,5 20,1 3,7 - 68,6 Heredity Asthma prevalence in parents 6,9 5,8 3.4-10,6 það var einnig hátt á öðrum enskumælandi rann- sóknarsvæðum og Montpellier og Bordeaux í Frakk- landi (28). Það var lægst í Erfurt í Þýskalandi (1,2%) og á Spáni (1,5-3,0%). Algengi asma var nærri helm- ingi hærra í Noregi og Svíþjóð en á íslandi. Notkun asmalyfja var mest í Eyjaálfu (12-16%). I heildina tekið höfðu 58% þeirra sem tóku asmalyf fengið greininguna asma á sama ári (28). Hlutfallið var hæst í Bretlandi (85%), en litlu lægra í Svíþjóð og Eyjaálfu. Á fslandi tóku 71% þeirra sem greindir voru með asma á sama ári asmalyf, og 47% í Noregi. í hópi þeirra sem greindust með asma var einhver notkun bólgueyðandi innöndunarlyfja á rannsóknar- árinu mest í Bretlandi (49%) og Nýja-Sjálandi (47%), en minnst var hún í Frakklandi (20%) og á Ítalíu (17%). Hér á landi var notkun bólgueyðandi innöndunarlyfja hjá þeim sem greinst höfðu með asma um 25%. Dagleg notkun þessara lyfja var hins vegar miklu minni. Hún var mest í Nýja-Sjálandi (29%) og Bretlandi (27%) en minnst á Ítalíu (0%) og Bandaríkjunum (5%). Á ísland var hún um 10% (28). Þegar kom að hómópatíu og jurtalækningum sögðust 16% Þjóðverja og 15% Belga nota þannig meðferð við asma (28). Hjá öðrum þjóðum voru þessar tölur á bilinu 0 (á íslandi) til 9%. Kannað var hlutfallið milli notkunar bólgueyðandi innöndunar- Læknablaðið 2002/88 895

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.